Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.30.2005

Blessaðar:O)

Eru þið búnar að lesa nýjasta Hér og nú það er búið að opna verslun á laugarveginum sem selur strippsúlur þannig að við verum nú eiginlega að skella okkur og kaupa eina er það ekki?:O)

Nú styttist í grillveilsuna hjá Nínu:O) Ég vildi svo að ég gæti komið en ég mun þokkalega vera hjá ykkur í huganum á ströndinni drekkandi bjór að sjálfsögðu(°°,)

Ég er búin að vera velta því fyri mér hvar allir ferðamennirnir eru eiginlega því að það er búið að vera svo lítið að gera hjá mér, það hefur aldrei verið svona lítið um ferðamenn, stelpur þið verðið að fara bjarga þessu og koma og kíkja til mín norður í land. Elín ef þú ert að lesa þetta þá á ég meira að segja til hvítan kristall(°°,)
Kveðja Elva

Að vakna...

Nú eru aðeins einn og hálfur tími eftir af þessari blessuðu næturvakt. Þið flest sofandi í hlýju mjúku rúmunum ykkar bíðið þess að vekjaraklukkan hringi og veki ykkur. Þið væntanlega snúsið nokkru sinnum, drattist á lappir og dröslist í vinnuna þannig þið náið að stimpla ykkur inn á rétum tíma (ef stimpilklukka er til staðar það er að segja). Þetta geri ég einmitt líka... reyndar á kvöldin núna en vanalega á sama tíma. Nú er ég búin að vera að fylgjast með gestum hér á hótelinu sem vakna fyrir allar aldir þ.e. um 6 leytið. Mæta niður í lobby í spandex buxum og vindjakka, brosa hringinn, kíkja á úrið og já þjóta út um hurðina því þeir eru að fara að skokka ... Þetta er einhver nenna sem ég er ekki algveg að skilja... Erum við ekki flest sem nýtum hverja mínútu í svefn þar til við gjörsamlega neyðumst til að drulla okkur fram úr til að verða ekki of sein.
Þetta er hlýtur að kalla á þvílíkan sjálfsaga og já ég bara veit ekki hvað .. allavega eitthvað sem ég ekki hef. Til að toppa allt þá eru all miklar líkur á því að þetta fólk sé í SUMARFRÍI. Ég hreynlega tek ofan fyrir þessu fólki (þ.e. ef ég einhverntíman mundi ganga með hatt/húfu).
Heyrumst og sjáumst og góðan dag
Sigrún

6.26.2005

Hvar er sumarið?

Hvar er sumarið ég spyr bara svona sakleysislega? Allir eru að tala um að það sé komið sumar en ég verð nú bara að segja að ég er bara ekkert búin að sjá það. Það er búið að vera ömurlegt veður, reyndar var sól í dag en það var fyrsta skipti í svona 20 daga, annars er búið að vera rok eða rigning og ég verð nú bara að segja ykkur það að það er aðeins farið að fara í mínar fínustu.
En nóg um kvart og kvein. Mér líður eins og ég sé orðinn lítill krakkiaftur að bíða eftir jólunum, því að það eru aðeins 17 dagar þangað til að ég fer sólina á Mallorca ég get ekki beðið ég vakna á hverjum morgni og segi 19 dagar, svo næsta 18 dagar og svo í morgun jess aðeins 17 dagar jibbý jei:O) Ég hlakka svo til að bara liggja í sólinni og gera ekki neitt, fá mér bjór og sangríu á kvöldin og hafa það alveg þvílíkt gott. Það væri nú reyndar alveg týpískt fyrir mig að þegar ég kem út þá allt í einu byrjar að rigningartímabil eða eitthvað þess háttar, yrði bara kalt og rigning allan tímann eða þvílík hitabylgja að maður myndi ekki geta komist út úr húsi.
Vonandi eru þið búnar að hafa það rosalega gott í sumar, ég sakna ykkar alveg ROSALEGA mikið og get ekki beðið eftir að hitta ykkur aftur og ef þið eigið leið norður í sumar þá endilega kíkið á Skagastönd í sjoppuna til mín þar:O)
Kveðja Elva Dröfn

6.23.2005

Hæ hæ skvises

Hæ allar saman vá það er ekkert smá gaman að komast í tölvu er ekkert búin að koma nálægt tölvu síðan í byrjun júní og mér líður eins og ég sé komin í skólann aftur og er það bara hörku vinna að lesa allt það sem þið eruð búnar að vera að skrifa, en þar sem ég heyri nú reglulega í nokkrum ykkar þrátt fyrir að vera ekki með msnið inni þá lifi ég þetta af. Elsku frú Bryndís innilega til hamingju með brúðkaupið um daginn ég ætlaði að hringja en gleymdi því aftur (þetta með minnið) Mér heyrist það að ég og María höfum misst að miklu fjöri með því að mæta ekki sem eldhúskjellur. En sumarið er búið að vera frábært hjá mér afslöppun, setið út á palli í sólinni og tekið fótsnyrtingar (virkar kannski ekkert girnilegt fyrir þann sem vinnur en fyrir þann sem nýtur dekursins) nuddað, litað, plokkað og vaxað vini og vandamenn. Er búin að taka til í skápunum og fann þá tvö stútfull box af minnistöflum. Var sem sagt búin að gleyma hvar ég setti fyrra boxið og keypti nýtt og mundi svo varla eftir að taka þær MUNIÐ'I þannig að ég á nóg af minnistöflum fyrir A- bekkinn í vetur hehe.. Síðan var ég að mála hjónaherbergið í gær og veit ég ekki alveg hvort mér líkar það eða ekki þar sem Styrmir(fjórði muniði) kom inn í það og sagði: þetta er eins og kúkur og hló og hló. Ég spurði hvort hann væri að gera grín af mér og þá ætlaði hann ekki að geta hætt að hlæja og sagði að veggurinn væri á litinn eins og kúkurinn í klóstinu (fyndið) þannig að ég er farin að efast en mér tókst samt að klína málningu á mig alla og er meira að segja með kúkabrúnan lit á tánum og var fjölskyldan að undra sig mikið á því hvernig mér tókst það (var reyndar berfætt að mála). En ég læt ykkur taka þetta út í grillpartýinu og ef ykkur líkar ekki liturinn þá getum við alltaf farið í keppni í partýinu hver ykkar er fljótust að mála og ganga frá hehe ... jæja fer að hætta að bulla í bili og láta laga tölvuna mína er sem sagt í tölvunni heima hjá Árný. ÉG hlakka mikið til að hitta ykkur í grillinu en ég get helst bara haldið það 15 eða 16 júlí hvernig líst ykkur á það? Knús og kossar Nína

6.19.2005

Frábær skemmtun

Vááá hvað ég er brjálæðislega syfjuð núna. Er í vinnunni og svaf ekkert fyrir vaktina. Vaknaði fyrir hádegi í gær og gerði mig sæta fyrir brúðkaupið hjá Bryndísi og Kristjáni. Þetta var bara hin fínasta skemmtun og ég sat í góðum félagsskap fólks sem ég þekkti ekki neitt en var samt það hressasta bara. Tókum meðal annars myndir af brjóstunum á Sunnu okkar KHÍ-gellu og túttunum á Gunna vini brúðhjónanna.María systir var að þjóna til borðs í brullaupinu, hún fékk hringingu daginn fyrir það og var lofað pilsi að launum....eins og þið vitið þá er brúðurin nefninlega klæðskeri og getur gert alveg ótrúlega falleg föt í höndunum, hún saumaði til dæmis brúðarkjólinn og hann er sá langfallegasti brúðarkjóll sem ég hef á ævinni séð.... engin rjómatertu/pallíettu/blúndu kjóll, heldur rjómalitur/kálfasíður/plein en um leið sérstaklega fallegur kjóll!! og hann fór Bryndísi alveg rosalega vel, hún var svakalega falleg brúður.Ég gerði mig reyndar að smá fífli með gjöfina, var búin að ákveða að kaupa æðislega eldhúsvog í Þorsteini Bergmann, en gleymdi að það var auðvitað lokað þar á 17 júní, þannig að klukkan átta um kvöldið þann sextánda þá þurfti ég að hendast upp í kringlu og finna eitthvað annað. Svo gleymdi ég að kaupa sellófan þannig að ég pakkaði gjöfinni bara inn í laxapoka... kom samt bara nokkuð vel út.Eftir veisluna hentist ég upp í vinnu og er hérna núna klukkan átta að morgni að DEYJA úr syfju, mér líður eins og ég sé að fá hjartaáfall án gríns, eins gott að það er bara hálftími eftir af vaktinni.
Já og svo frétti ég að 10 mínútum eftir að ég yfirgaf teitið þá var kallað á mig upp á svið til þess að taka þátt í einhverjum leik þar sem ég átti að hlaupa um allan salinn og heimta föt og fylgihluti af fólkinu.... fjúkkitt að ég var farin að vinna þá hehehehe ;o)

6.17.2005

Brúðkaupskveðja!!

Elsku frú Bryndís innilegar hamingjuóskir með giftinguna:) Þið gætuð ekki verið heppnari með veður..vona að dagurinn hafi verið fullkominn...og efast ég ekki um það, þetta er það skemmtilegasta sem hægt er að gera það er að gifta sig!!
Megi lukkan fylgja ykkur um ókomna framtíð!

Til hamingju með þjóðhátíðardaginn allar:)

Knús Maja.

6.16.2005

Hvað er þetta með útilegur

Jæja þá er fyrsta tjaldútileigan að hefjast hjá mér þetta sumarið. Sem þýðir að ég verð ekki nettengd á morgun og ættla því að óska þér Bryndís til hamingju með daginn á morgun núna....
En hvað er þetta annars með tjaldútileigur, fyrst er maður að þvo og þvo föt til að hafa með sér, síðan pakkar maður allt of mikið af þeim niður í töskurnar (en það er samt alltaf einhver lífsnauðsynleg flík sem verður eftir heima). Síðan er farið af stað með eins mikið af hlutum til að gera ferðina sem þægilegasta (allt á að vera eins og heima), svo sefur maður illa og lítið því að það má ekki missa af sumarnóttinni, hamast við að skoða náttúruna og spjalla við vinina og sinna börnunum við frumlegar aðstæður. Kemur svo heim dauð þreyttur og illa sofin á Sunnudagskvöldi (helst það seinnt að allir segu hálf sofandi á Mánudeginum. Þá hefst frágangur eftir útileguna og það þarf að þvo allt aftur ´þó svo að það hafi ekki verið notað því það er allt í ryki og svo pakkar maður niður fyrir næstu útilegu og gerir sömu mistökin aftur það er að segja pakkar allt of miklu niður. Svona líður sumarið. En þar sem að ég sitt hér og er að velta þessu fyrir mér þá héld ég að þetta sé þess virði að fá að vera með fjölskyldunni og vinunum í sumarnóttinni (nema að það sé svo mikil rigning) . Vonandi eigið þið líka svona góða helgi framundan eins og ég :) .

Ný fíkn....?

Fíkn er hægt að skilgreina á margan hátt oftast er það þó tengt mjög svo neikvæðum hlutum eins og til dæmis áfengi eða eiturefnum. Fíkn getur þó einnig verið saklausari eins og fíkn í súkkulaði eða eitthvað annað matarkyns. Í raun er fíkn kannski bara þegar eitthvað er notað í óhófi, hvort sem það er innbyrgt eða ekki. Því við höfum einnig heyrt um tölvufíkla sem sitja tímunum saman fyrir framan tölvurnar sínar í einhverjum tölvuleikjum. Sumir eru það langt gengnir að þeir gleyma að neyta matar, drykkjar eða sofa. Öll hristum við hausinn yfir hvers kyns fíkn. Sumt er þó viðurkenndara en annað, eiturlyfjafíklar og áfengissjúklingar (áfengisfíklar) geta leitað sér aðstoðar hjá stofnunum sem geta hjálpað þeim í að yfirstíga fíknina. Einnig eru til mörg ráð, misgóð þó, við hvers kyns matarfíkn. Tölfufíklar eru oft afsakaðir því þeir eru oft svo "klárir" á tölvur og þeim því fyrirgefið með þvi að kalla þá tölvunörda og ekki talið svo slæmt, þ.e. upp að vissu marki.
Það er svo ein fíkn sem er ekki eins viðurkennd og aðrar fíknir... það er sjónvarps fíkn... Hún lýsir sér í því að einstaklingur eyðir tímunum saman við að horfa á sjónvarpið. Tækninni hefur svo fleygt fram í gegnum tíðina að þó að eitthvað leiðinlegt sé í sjónvarpinu er óþarfi að sleppa því að glápa heldur er þá bara horft á spólu eða DVD. Einnig getur vandinn falist í því "festast í" eiinhverju leiðinlegu sjónvarpsefni, hver hefur ekki lent í því. Þegar fíknin er langt leidd er einstaklingurinn háður hinum ýmsu sjónvarpsþáttum og má helst ekki missa af þætti í þeim fjölmörgu þáttaröðum sem hann er að fylgjast með.
Ég tel að ég þjáist af þessari fíkn og ef ég á að segja eins og er held ég að ég sé frekar langt leidd (fyrsta stig er að viðurkenna vandann..). Nú þegar ég er með heilu þáttaraðirnar í höndunum og get horft á allt heila dótið í einu er fátt sem getur stoppað mig. Ég loka horfi á nokkra þætti í einu og furða mig á lífi persónanna í þáttunum, lifi mig inn í sorgir þeirra og drauma, finn til með þeim og gleðst með þeim. Að áhorfi loknu velti ég hinum ýmsu hlutum fyrir mér og finn fyrir tillhlökkun þegar ég veit hvenar ég get horft á næsta þátt en um leið örlítilli sorg þar sem með hverjum þætti nálgast ég lok þáttaraðarinnar. Nú er svo komið að þegar ég ætti að vera sofandi og safna kröftum fyrir morgundaginn flýgur nóttin áfram um leið og ég fylgist með lífi persónanna í þáttaröðinni O.C. (sem eru snilldarþættir, ef ég má bæta því inn í). Þegar mér varð ljóst að þetta er annað kvöldið sem klukkan er orðin tæplega fjögur um nótt og ég ekki farin að sofa vegna sjónvarpsgláps sá ég að ég átti í vanda. Ég er forfallinn sjónvarpssjúklingur... en er ekki fyrsta skrefið að viðurkenna það... ég tel einnig að ég sé ekki sú eina sem á við þetta vandamál að stríða, það allavega væri gott að vita að maður er ekki einn.
Góða nótt öll sömul og lifið heil
p.s. afsakið lengdina...

6.13.2005

Kveðja úr Kópavogi

Sælar skvísur. Mig langaði bara að láta heyra aðeins í mér því það er svo langt síðan að ég bloggaði seinast. Ég ætla að vona að þið hafið það eins gott og ég því ég er að hamast við að gera allt það sem að ég hef ekki haft tíma til að gera í vetur :) . Bryndís mín nú stittist í stóru stundina og ég ætla að vona að hún verði fullkomin. ég fór í brúðkaup á Laugadaginn var og var það æðislegt og var mér mikið hugsað til þín. Jæja nóg af mér í bili. Ástar og saknaðar kveðjur til ykkar allra Guðný.

6.07.2005

GÆSGÆSGÆS

Á síðasta laugardag fékk ég senda körfu um klukkan hálf tvö, í henni var voru gamalr myndir af mér í bekkjarpartý þar sem ég var með skemmtiatriði. Búið var að endurgera búninginn sem ég var í á myndunum og átti ég að reyna líkjast stelpunni á myndunum sem mest. Upphófst nú mikið stresskast þar sem ég hafði aðeins hálftíma að gera mig tilbúna og pakka niður allkyns dóti sem ég átti að hafa meðferðis. Klukkan tvö var ég svo sótt af manni á mótorhjóli, hræddi hann úr mér líftóruna og skilaði mér svo að lokum niður í grasagarð þar sem umslag beið mín, var þar einnotamyndavél og skilaboð frá vinkonum mínum. Ég leysti hinar ýmsu þrautir í garðinum og þurfti að biðja gesti garðsins að taka myndir af mér við hinar ýmsu aðstæður. Þegar því var lokið hitti ég vinkonur mínar sem höfu dúkað upp borð og buðu upp á bjór og samlokur, það var reyndar ekki eins og ég hefði ekki fengið neitt að drekka í ratleiknum. Þegar ég hafði kastað mæðinni var mér tilkynnt að ég væri á leið á landsleik í fótbolta þar sem ég væri með skemmtiatriði í hálfleik, þær voru með músikina og ég átti að æfa dans. Ég var nú ekki alveg til í þetta, frekar önug gæs með stæla, ég sá samt það að þýddi ekkert að mótmæla og æfði mig aðeins. Reyndar var mér orðið ólgatt af stressi og reyndi að stinga af þegar við löggðum af stað á leikinn, sem betur fer var þetta allt saman algjör lygi og við fórum í Laugar en ekki á Laugadalsvöllinn. Í Laugum fórum við danstíma þar sem við lærðum nokkur dansspor og fékk ég svo herra sem dansaði við mig, reyndar varð ég að fá mér tyggjó svo ekki myndi svífa á hann. Eftir nokkur frábær danstilþrif var ég send í nudd fórum við svo í gufubað og eftir það fengum við okkur drykk á veitingastaðnum. Eftir alla þessa afslöppun gerðum við okkur sætar og fínar fórum við í heimahús borðuðum góðan mat og drukkum mikið mikið áfengi, allavega ég. Ég fékk svo gjafabréf í gerfineglur daginn fyrir brúðkaupið.

Þetta var alveg ótrúlega gaman og núna eru aðeins 10 dagar í stóra daginn og hvað er ég að gera, hanga í tölvunni!!! Set svo kannski inn myndir seinna en ég var að læra hvernig hægt er að setja inn beint á síðuna.

Þangað til seinna kveðjur
Bryndís

6.06.2005

Þá eru þær allar komnar.

Ætla bara að láta vita að síðasata einkunin er komin.
Kveðja Sigrún

6.05.2005

Gleðilegt sumar my ass...

Shit hvað ég þoli ekki þetta leiðinda sumar, ég er í leiðinlegri vinnu, mér er of heitt þar, er með drulluleiðinlegan helvítis yfirmann, ég þarf að vera í óþægilegum fötum og í þokkabót eru þau hvít og gegnsæ..... hata þetta helvíti!!!
Annars hef ég ekkert verið að bíða eftir einkunnum, kom mér bara á óvart hvað þetta kom snemma allt saman.
Ég sé til hvort að ég komi í útileguna, fer eftir hvernig ég verð í vinnuhelvítinu þar í kring. Vááá hvað ég hlakka til haustsins, þetta sumardrasl er alveg að fara með kollinn á mér
Elín~pirruð og fúl

6.03.2005

Sumarfrí með A GELLUM

Hæ skottur
er að skipuleggja sumarfríið, var að spá í þetta með tjaldaútileguna okkar meðþetta er fjölskylduútlega ekki satt?
Ég get ekki alveg séð mig í anda ein í O-vodafone tjaldi með Guðný mér við hlið og Nínu hinumeginn drekkandi bjór og syngjandi. Rúllandi í hlíðunum og dettandi um þúfur í leit að stað til að pissa, ég held að ég sé of gömul fyrir slíkt. Ég gerði þetta þegar ég var 17 ára+, endilega látið mig hvernig þig höfðuð hugsað ykkur þetta?
Einnig að staðfesta að þetta sé helgina 24+ júlí.

kveðja Árný
sem bíður eftir einkunnnnnn.....

Enn meiri vangaveltur...

Ég veit ég skrifaði síðast og ég veit ég skrifaði fyrir nokkrum klukkutímum en ég bara varð að deila einu með ykkur....
Hvaða rugludallur ákvað þá vitleysu að föt ættu að vera slétt!!!???? Er ekki nóg að þau séu hrein? Krumpa hér og þar drepur engan. Á liðnum öldum hefur þó einhver verið sammála mér með það og ákvað að skella krumpu á t.d. buxur, þ.e. krumpu sem Á að vera á buxunum.... kallast öðru nafni "brot".... finnst mér sá aðili enn ruglaðari en sá sem vildi hafa fötin slétt... sá sem vildi fötin slétt vissi þó hvað hann vildi en hinn veit ekki í hvorn fótinn hann átti að stíga (að hafa krumpu eða ekki hafa krumpu)...
Glöggir aðilar hafa kannski uppgötvað það af þessum skrifum mínum að mér finnst ekki gaman að strauja... (meira að segja ljótt orð)... Eitt af því leiðilegasta sem ég geri er að strauja og reyni af fremsta megni að komast hjá því. Gallinn er bara sá að ég er í vinnu þar sem fötinn þurfa að vera slétt, og ekki nóg með það þarf krumpa/brot að vera í buxunum! Ég slepp oftast auðveldlega með skyrturnar þar sem ég passa bara að láta þær þorna fínt á herðatré og í versta falli þarf ég bara að strauja kragann... hann er jú það eina sem sést ég er í jakka líka. EN þá er vandamálið með þessar buxur.. ég er búin að vera í sirka korter að berjast við þetta blessaða brot í þessum fjandans buxum, það hreinlega vildi ekki vera á réttum stað, og er í raun ekki enn á réttum stað þar sem ég hreinlega gaf skít í þetta því jakkinn nær niður fyrir rass og þarf þetta brot því ekki að vera fullkomið alla leið... þegar ég skoða þetta betur er ég mjög þakklát fyrir jakkann... ekkert vesen með hann sendi hann í hreinsun og hann felur svo hinar krumpurnar...
Enn nóg í bili af bulli í mér, það bara er svo leiðinlegt að strauja....

Góða nótt
Sigrún...
p.s. þetta varð víst aðeins lengra en ég ættlaði...

6.02.2005

Smá vangaveltur....

Að vera á lausu getur haft marga kosti í för með sér. Til dæmis það að maður þarf oftast að hugsa bara um sjálfan sig þegar maður tekur ákvarðanir um lífið og tilveruna. Þú ræður hvað horft er á í sjónvarpinu, þú ræður hvenar og hvað á að borða, þú ræður hvað þú gerir við frítímann þinn, þú ræður hvað þú ert lengi á djamminu, þú ræður hvað þú gerir á djamminu. Einnig getur gert langtíma og framtíma áætlanir án þess að spurja kóng eða prest.
Þrátt fyrir alla þessa góðu kosti eru líka gallar... þú ræður kannski hvað horft er á í sjónvarpinu en oftast ertu þá að horfa á það einn og ef sjónvarpsefnið er dramatískt og rómantískt er ekki laust við að maður verði einmanna. Þó þú ráðir hvað á að borða getur verið frekar leiðinlegt að elda alltaf fyrir einn og einu samræðurnar við eldhúsborðið er kannski við flugu (ef þú ert heppinn). Þó þú ráðir hvað þú gerir á djamminu og hvenar þú ferð heim er leiðinlegt til lengdar að koma alltaf heim í tómt rúm og stundum væri kannski betra ef maður fengi ekki að ráða öllu sem maður gerir. Í frítímanum getur hins vegar verið stundum notalegt að vera aðeins með sjálfum sér, dekra við sig og jafnvel skreppa í göngutúr eða búðir.
En ef svo vill til að þú lesandi góður ert á lausu og ert svona nokkuð sáttur með það mæli ég ekki að fara í sund (kærustupar að kyssast í pottinum), labba fram hjá Austurvelli (kærustupar að kela í grasinu) og reyndu að forðasta það eins og heitan eldin að fara í Ikea einn!!! þar eru hamingjusöm kærustupör að velja dót á heimilið.
Þegar maður er frekar sáttur við lífið og er hamingjusamlega á föstu með sjálfum sér er ekkert leiðinlegra en það að sjá eitthvað sem minnir mann á það að maður sé einn....

Þetta var bara svona smá pæling á góðum sumardegi systir mín flutt í sveitina og það bergmálar pínulítið í íbúðinni. Það svo sem er allt í lagi... fyrir utan það að á nokkrum klukkutímum fór ég í Ikea, sund og keyrði fram hjá Austurvelli......

Heyrumst
Sigrún