Hvað er þetta með útilegur
Jæja þá er fyrsta tjaldútileigan að hefjast hjá mér þetta sumarið. Sem þýðir að ég verð ekki nettengd á morgun og ættla því að óska þér Bryndís til hamingju með daginn á morgun núna....
En hvað er þetta annars með tjaldútileigur, fyrst er maður að þvo og þvo föt til að hafa með sér, síðan pakkar maður allt of mikið af þeim niður í töskurnar (en það er samt alltaf einhver lífsnauðsynleg flík sem verður eftir heima). Síðan er farið af stað með eins mikið af hlutum til að gera ferðina sem þægilegasta (allt á að vera eins og heima), svo sefur maður illa og lítið því að það má ekki missa af sumarnóttinni, hamast við að skoða náttúruna og spjalla við vinina og sinna börnunum við frumlegar aðstæður. Kemur svo heim dauð þreyttur og illa sofin á Sunnudagskvöldi (helst það seinnt að allir segu hálf sofandi á Mánudeginum. Þá hefst frágangur eftir útileguna og það þarf að þvo allt aftur ´þó svo að það hafi ekki verið notað því það er allt í ryki og svo pakkar maður niður fyrir næstu útilegu og gerir sömu mistökin aftur það er að segja pakkar allt of miklu niður. Svona líður sumarið. En þar sem að ég sitt hér og er að velta þessu fyrir mér þá héld ég að þetta sé þess virði að fá að vera með fjölskyldunni og vinunum í sumarnóttinni (nema að það sé svo mikil rigning) . Vonandi eigið þið líka svona góða helgi framundan eins og ég :) .

6 Comments:
At 9:52 f.h.,
Fyrsti A 2004 said…
Þetta er bara ég Guðný
At 10:47 f.h.,
Nafnlaus said…
Já þetta er allt saman þess virði, það jafnast ekkert á við það að vera í útilegu... góða ferð og góða skemmtun Guðný mín:)
At 11:55 f.h.,
Nafnlaus said…
Góða ferð Guðný:O)
At 12:27 e.h.,
Nafnlaus said…
Góða ferð og góða skemmtun :-)
At 9:40 e.h.,
Nafnlaus said…
Mínar útilegur eru ekki svona erfiðar, allir í sömu fötunum alla helgina og svo eins og við vitum þá höfum við ekki sama úthald og við gerðum!!!!! Mín reynsla er sú að alveg sama hve mikið ég drekk í útilegum þá varð ég ekki þunn, kannski er það útiveran? en góða helgi Guðný min og sjáumst á sunnudaginn kemur...
kveðja Árný
At 2:15 f.h.,
Nafnlaus said…
Er einmitt að fara sofa núna, síðasta nóttin sem frk. var einmitt að horfa á D.H. sem ég tók upp fyrr í kvöld.
Skrifa ummæli
<< Home