Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

11.30.2006

Miðar á Rock Star!!

Hæ skvísur !!

Bróðir minn er að selja 2 miða á tónleikana með Húsbandinu, Magna, Storm, Dilönu, Toby og Josh.
Þetta eru miðar á tónleikana í kvöld, ef ykkuar vantar miða eða þekkið einhvern sem vantar miða endilega hafið samband við mig :o)

Hægt er að bjóða í miðana en held að hann selji þá ekki á lægra en 4500.- stk.

Kveðja María.

11.24.2006

Sing a song

Hæ skottur
ég kemst því miður ekki er að fara á jólahlaðborð en mér skilst að það séu geðv.margir sem ætli að taka lagið. Þið syngið eitt/tvö fyrir mig ekki satt, Guðný ætlar allaveganna að taka lagið með stærðfræðideildinni og skora ég á hinar að skorast ekki undan...
Góða skemmtun og rullið staðnum upp, mér skilst að það verði útsendari frá X-factor á staðnum þannig að þið verðið kannski uppgötvaðar..
love 'Arný

En hvað segið þið....

það er sem sagt stemmning fyrir kvöldinu?!?! :-)

hvenær er mæting?

kv HH

11.21.2006

Hittingur!!!

Jæja stúlkur

Hvernig væri að við myndum skella okkur á Karókí kvöld á föstudaginn í Kennó? Það er orðið allt of langt síðan að við hittumst allar. Maður er farin að sakna ykkar. Þannig að það er um að gera að koma því að þetta er í raun síðasti sjens að hittast fyrir prófin..........

Kv. Elva og Nína(°°,)

11.10.2006

Tapas barinn

Ég, Bryndís og Sunna erum búnar að ákveða að skella okkur á Tapas barinn þann 17 nóv til þess að fagna því að að við séum lausar úr prísund vettvangsnámsins. Við vorum að spá í að hittast þar svona um klukkan sjö og slúðra, kjafta og borða góðan mat.
Langar ykkur ekki að kíkja með okkur? endilega kommentið hér fyrir neðan og segið okkur hvort þið komið með eða ekki, því ef við verðum margar þurfum við eflaust að panta borð.
Þeir sem vilja geta þá farið á djammið eftir á en við hinar (óléttar, mjólkandi og/eða latar) getum bara farið pakksaddar heim og horft á video eða eitthvað
kveðjur Elín, Bryndís og Sunna

11.09.2006

alveg kominn tími....

á einhverja hreyfingu hér á síðunni :)

Hvað segið þið? hvernig gengur í vettvangsnáminu? Það gengur svona glimrandi vel hjá okkur í Austurbæjarskóla en ég er samt mikið farin að hlakka til að koma aftur í skólann og hitta á ykkur! Spáið í því að það eru 4 vikur þar til við erum búnar í prófum!!! úff þett er allt of fljótt að líða.

Var að spá....hvernig er stemmning fyrir kariokikvöldinu? ég hef ekki farið á neina skólaskemmtun í ég veit ekki hvað langan tíma og finnst alveg kominn tími til!!!

hm...já það er svo sem ekkert að frétta af mér en langaði bara aðeins að fá smá líf á síðuna :-)

kv Harpa