Takk fyrir okkur!!


Jæja eftir mikið strögl við að komast inn á þessa síðu til að blogga tókst það loksins með hjálp frá Guðnýju. Mig langaði bara til þess að þakka fyrir mig því ég fékk gjafabréf með póstinum um daginn. Þegar betur var að gáð sá ég að þetta var gjöf frá ykkur píunum handa stráksa. Mér langaði þessvegna bara að segja takk fyrir okkur, þetta kemur sér vel :)
Hvað er annars að frétta af ykkur öllum, allir hættir að blogga og engin heldur saumaklúbb þannig að maður veit ekki neitt um neinn lengur. Við verðum að fara að drífa okkur í því að hittast svo að tengslin rofni ekki alveg.
Af mér er allt gott að frétta, er enn í barneignarfríi og nýt lífsins og sé fram á að vera í fríi fram að áramótum en veit ekkert hvað tekur við eftir það......... ætla allavega ekki að fara út í kennslu! Ég setti inn tvær myndir af Matthíasi, önnur er tekin þegar hann var að "máta" dúkkuvagninn hjá vinkonu sinni og hin þegar hann var að fá graut í fyrsta skipti.


