Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

12.25.2005

Gleðileg Jól

Gleðileg jól snúllurnar mínar
hafið það sem allra best yfir hátíðarnar
hlakka til að hitta ykkur á nýja árinu :)

jólakveðja úr Eyjum..

Harpa

12.15.2005

Próflokapartý

Jæja stelpur til hamingju að vera búnar með prófin, já þetta gátuð þið án þess að missa vitið. Held að ég sé búin að missa mitt þar sem ég er ekki ennþá farin að sofa eftir að hafa aðeins sofið 3 tíma í nótt. Ég ætla að bjóða ykkur duglegu bekkjarsystrum mínum í partý áður en við förum á jólaballið. Ég bý ennþá á sama stað og í fyrra, miðsvæðis í kjallara og það er gul keramik önd í klukkanum. Mæting um 19 en allar eiga vera búnar að borða holla og staðgóða máltíð fyrir mætingu svo það verði eitthvað úthald. Það verður voða lítið um óhollt nasl hjá mér en ykkur er velkomið að hafa það með ykkur.

kv. Bryndís

12.11.2005

Timi kominn á nýja færlsu!!!

Ég ætla nú ekki að segja margt merkilegt, smá könnun bara:

Hver ætlar á jólaball 16. des???

og gangi ykkur vel í prófum og prófalestri.

Kveðja Sigrún