Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.26.2005

Hvar er sumarið?

Hvar er sumarið ég spyr bara svona sakleysislega? Allir eru að tala um að það sé komið sumar en ég verð nú bara að segja að ég er bara ekkert búin að sjá það. Það er búið að vera ömurlegt veður, reyndar var sól í dag en það var fyrsta skipti í svona 20 daga, annars er búið að vera rok eða rigning og ég verð nú bara að segja ykkur það að það er aðeins farið að fara í mínar fínustu.
En nóg um kvart og kvein. Mér líður eins og ég sé orðinn lítill krakkiaftur að bíða eftir jólunum, því að það eru aðeins 17 dagar þangað til að ég fer sólina á Mallorca ég get ekki beðið ég vakna á hverjum morgni og segi 19 dagar, svo næsta 18 dagar og svo í morgun jess aðeins 17 dagar jibbý jei:O) Ég hlakka svo til að bara liggja í sólinni og gera ekki neitt, fá mér bjór og sangríu á kvöldin og hafa það alveg þvílíkt gott. Það væri nú reyndar alveg týpískt fyrir mig að þegar ég kem út þá allt í einu byrjar að rigningartímabil eða eitthvað þess háttar, yrði bara kalt og rigning allan tímann eða þvílík hitabylgja að maður myndi ekki geta komist út úr húsi.
Vonandi eru þið búnar að hafa það rosalega gott í sumar, ég sakna ykkar alveg ROSALEGA mikið og get ekki beðið eftir að hitta ykkur aftur og ef þið eigið leið norður í sumar þá endilega kíkið á Skagastönd í sjoppuna til mín þar:O)
Kveðja Elva Dröfn

10 Comments:

  • At 11:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Sælar mín kæra
    Sumarið á Íslandi er alls ekki svo slæmt, a.m.k hér í REYKJAVÍKINNI og hef ég þó búið í mörg ár erlendis. Sumarið hefur verið svo flott hér í Fossvogi!!! Erum þó á leið í sólina í Portúgal á miðv.d.morgun. En Þegar við komum aftur heim þá ætlum við beinustu leið á Melrakkasléttu og á aðalstaðinn sem er RIBEN eða RAUFIN eða bara RAUFARHÖFN og komum örugglega við í Kántrýbæ á leiðinni. Mundu bara við viljum ekkert rauðkál á okkar pylsu!!!! Litlir Akureyringar eru bara ekki til í okkur!!!!!
    kv. Arndís

     
  • At 1:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú verður endilega að kíkja á Skagaströnd í leiðinni og trúðu mér hér er ekkert rauðkál á pylsurnar það er bara á Akureyri:O)

     
  • At 7:41 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ekki leiðinlegt fyrir ykkur Elva og Arndís að vera á leið til úttlanda.. hehe.. góða ferð og skemmtun...glatað að þú komist ekki í grillið Elva mín:(

     
  • At 9:08 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    já mig langar svo að koma ömurlegt en ég verð svo með ykkur í huganum:O)

     
  • At 11:54 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Verður grillið ekki pottþétt 18. júlí?

     
  • At 1:23 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ha? hvaða grill er þetta........ trúi ekki að mér sé ekki boðið búhúúú :o(

    Elín~gleymd og týnd

     
  • At 9:55 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hvenær á að grilla? Ég er jafnvel að hugsa um að kíkja kannski :-D Ef ég þar að segja lauma mér ekki í ferðatöskuna hennar Elvu :-)

     
  • At 12:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Halló halló... hvað er málið það stendur allt um grillið í færslunni fyrir neðan sem Nína skrífaði... þið eruð nú meiri kjánabangsarnir!!! ;)

     
  • At 8:28 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    sigrún...18 júlí er mánudagur!! er ekki frekar verið að tala um 15. eða 16. júlí?

    kv Harpa

     
  • At 9:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ó jú ég var líka að meina það :)

     

Skrifa ummæli

<< Home