Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.23.2005

Hæ hæ skvises

Hæ allar saman vá það er ekkert smá gaman að komast í tölvu er ekkert búin að koma nálægt tölvu síðan í byrjun júní og mér líður eins og ég sé komin í skólann aftur og er það bara hörku vinna að lesa allt það sem þið eruð búnar að vera að skrifa, en þar sem ég heyri nú reglulega í nokkrum ykkar þrátt fyrir að vera ekki með msnið inni þá lifi ég þetta af. Elsku frú Bryndís innilega til hamingju með brúðkaupið um daginn ég ætlaði að hringja en gleymdi því aftur (þetta með minnið) Mér heyrist það að ég og María höfum misst að miklu fjöri með því að mæta ekki sem eldhúskjellur. En sumarið er búið að vera frábært hjá mér afslöppun, setið út á palli í sólinni og tekið fótsnyrtingar (virkar kannski ekkert girnilegt fyrir þann sem vinnur en fyrir þann sem nýtur dekursins) nuddað, litað, plokkað og vaxað vini og vandamenn. Er búin að taka til í skápunum og fann þá tvö stútfull box af minnistöflum. Var sem sagt búin að gleyma hvar ég setti fyrra boxið og keypti nýtt og mundi svo varla eftir að taka þær MUNIÐ'I þannig að ég á nóg af minnistöflum fyrir A- bekkinn í vetur hehe.. Síðan var ég að mála hjónaherbergið í gær og veit ég ekki alveg hvort mér líkar það eða ekki þar sem Styrmir(fjórði muniði) kom inn í það og sagði: þetta er eins og kúkur og hló og hló. Ég spurði hvort hann væri að gera grín af mér og þá ætlaði hann ekki að geta hætt að hlæja og sagði að veggurinn væri á litinn eins og kúkurinn í klóstinu (fyndið) þannig að ég er farin að efast en mér tókst samt að klína málningu á mig alla og er meira að segja með kúkabrúnan lit á tánum og var fjölskyldan að undra sig mikið á því hvernig mér tókst það (var reyndar berfætt að mála). En ég læt ykkur taka þetta út í grillpartýinu og ef ykkur líkar ekki liturinn þá getum við alltaf farið í keppni í partýinu hver ykkar er fljótust að mála og ganga frá hehe ... jæja fer að hætta að bulla í bili og láta laga tölvuna mína er sem sagt í tölvunni heima hjá Árný. ÉG hlakka mikið til að hitta ykkur í grillinu en ég get helst bara haldið það 15 eða 16 júlí hvernig líst ykkur á það? Knús og kossar Nína

5 Comments:

  • At 8:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæhæ oh hvað ég öfunda þig að hafa það svona nice....það er reyndar voða gaman í leikskólanum hjá mér ;)

    Mér líst rosalega vel á þessa helgi og hlakka mikið til ef verður af þessu!!

    ég var í eyjum um helgina, alltaf jafn gott að komast HEIM, svo er það ættarmót um næstu helgi grill hjá Nínu og svo ÞJÓÐHÁTÍÐ sem Nína ætlar líka að skella sér á ;) hehe var það ekki annars?!?!?

    en vá hvað þetta er allt saman fljótt að líða!!

    hlakka til að hitta ykkur

    kv Harpa

     
  • At 10:55 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ skvís..

    Mér líst svaka vel á þetta plan, en líst ekkert á að fara að mála með kúkabrúna litnum;) hehe..
    Þetta er örugglega mjög fínt hjá þér.

    Hlakka til að hitta ykkur allar, sakna ykkar svaka mikið:)

    -knús

     
  • At 6:32 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    langar allsvakalega á þjóðhátíð hef aldrei farið áður, aldrei að vita nema ég birtist í brekkusöngnum hef lengi dreymt um það.Talandi um málningakeppnina þá má velja fleiri liti og önnur herbergi hehe... heyri betur í ykkur er í heimsókn núna hjá Rakel vinkonu kv. Nína

     
  • At 7:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    sælar skvísur..vá hvað það er langt siðan maður hefur séð u
    ykkur..
    En ég verð að afboða komu mína í grillið til þín Nína, þar sem ég verð úti á Spáni að leika mér ;) En ég hlakka rosa til að hitta ykkur í haust... :)
    luv ásta

     
  • At 7:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ohhh.. en þú heppin Ásta skvís, góða ferð og skemmtun á Spáni:)

     

Skrifa ummæli

<< Home