Mánudagur til mæðu.....
Ég er ennþá að drepast í fætinum eftir flottu flugferðina mína við Landsann þarna um daginn... allavega er ég hætt að haltra eins og einfættur hani (þetta sagði Árný okkar við mig).
Hvernig á þetta að vera með árshátíðina? verður allt frá a-ö þar eða eigum við að skipuleggja eitthvað spennandi sjálfar? Ég hlakka svo til (jibbíí... ég kann að beygja rétt), mér finnst að við ættum að setja hér inn uppskriftina að uppáhalds kokteilnum okkar eða staupinu.
Ég mæli með russian cocaine... vodki, sítróna, kaffikorgur og sykur. Ummmmm ógó gott!!
Svo er líka gott að þeyta saman vodka, banana og klaka..... hella svo kakódufti og undanrennu útí. Endilega prófið þennan ;o)
Jæja maður ætti kannski að fara að fylgjast með þessum helv... fyrirlestri, ég er alltaf svo löt við það, núna er ég bæði búin að blogga hér og á blogginu mínu og búin að skoða fullt af íbúðum á netinu!
