Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

2.21.2006

Saumóstuð

Jæja stúlkur. Mikið var nú skemmtilegt í kvöld. Ég var að enda við að taka allt til eftir okkur og henda í uppþvottavélina (sem ég er svoooo fegin að eiga heheheh). Ég er svo sprengsödd að ég get ekki farið að sofa þannig að ég ákvað að skella bara í þvottavél líka og er því að bíða eftir að hún klári.
Það mættu nú færri en höfðu ætlað en það var samt súper skemmtilegt hjá okkur. Allir mættu með fullt af mat og nammi og dönsku fæði og svo var bara troðið í sig og slúðrað.... já og svo má nú ekki gleyma því að Árný var sú eina sem stóð sig almennilega og tók upp prjóna og svei mér þá ef hún kláraði ekki bara heilt ungbarnasett á barnið sem Elva Dröfn segist bera undir belti.
Svo eftir allt átið var bara reykt vatnspípu með eplatóbaki.... Nína hélt reyndar að þetta væri dóp, sagðist sjá það á augunum á okkur hehehehe
Því miður gleymdu allir að taka með myndavél þannig að það eru engar myndir, ég náði reyndar að taka tvær á mína vél áður en hún dó úr orkuskorti.
Ég vil veita Árný, Guðný og Jónínu verðlaun kvöldsins fyrir slökkvistarf en þær vörnuðu því að kofinn brynni ofan af mér þegar þær slökktu RISASTÓRT bál sem kviknaði út frá kerti í stofuglugganum.
Takk fyrir mig og endilega ákveðum strax hver á að halda þetta næst. Kv. Elín

P.S. Sunnan okkar ætlar að hafa partý fyrir árshátíðina og við vorum að spá í að allir leggi smá í púkk og fyrir það kaupum við romm, mintulauf, sítrónu og hrásykur og búum okkur til Mojito....namminamminamm líst ykkur ekki vel á það???

2.19.2006

Saumó hjá Elínu

hæ skottur,
á morgun M'ANUDAG er fyrsti í saumó ???? hjá Elínu skottu okkar, við megum víst taka með okkur eitthvað á hlaðborð, samt kannski ekki allar.
Hún sér um gosið og kaffið, ég tek hana Guðný nágranna með mér, vilja fleiri far úr Kópavoginum kl. 20.0?
sjáumst hressar á morgun Árný í saumóstuði,
ps ég ætla að mæta með prjóna....

2.15.2006

Hitum upp fyrir árshátíð!!

http://www.pixagogo.com/6011245102

Hvar á svo að vera partý? :)

2.02.2006

Hittingur smittingur

Jæja Gellzzzz!!
Nú heimta ég einhver viðbrögð við blogginu fyrst ég er svona dugleg að blogga loksins. Já og á meðan ég man þá eyddi ég þessu óþolandi prufubloggi sem kom alltaf líka upp þegar ég loggaði mig inn.

En ég var að spá...
Er einhver áhugi fyrir hitting í febrúar? Ég var að spá að hafa svona fyrstaA sauma/ekkisauma klúbbskvöld þann 20 febrúar.
Ef að þetta er eitthvað sem ykkur líst á þá datt mér líka að hug að sem flestar gætu bara mætt með eitthvað smáræði með sér.... í gogginn sko
Ég myndi kaupa gos til að hafa og kannski búa til einhvern góðan danskan rétt hehehe (svona fyrir okkur dönsku píurnar)
Kveðja Elín

2.01.2006

Könnun/tilraun

Hæ hæ
Ákvað að gera smá tilraun eða könnun. Þar sem þessi síða er nánast sama sem dauð fór ég að velta því fyrir mér hvort það eru bara í kringum 5 mans sem skoða hana. Því langar mig að biðja þær sem skoða þessa síðu að láta vita af sér með kommenti!
Kveðja Sigrún