Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.03.2005

Enn meiri vangaveltur...

Ég veit ég skrifaði síðast og ég veit ég skrifaði fyrir nokkrum klukkutímum en ég bara varð að deila einu með ykkur....
Hvaða rugludallur ákvað þá vitleysu að föt ættu að vera slétt!!!???? Er ekki nóg að þau séu hrein? Krumpa hér og þar drepur engan. Á liðnum öldum hefur þó einhver verið sammála mér með það og ákvað að skella krumpu á t.d. buxur, þ.e. krumpu sem Á að vera á buxunum.... kallast öðru nafni "brot".... finnst mér sá aðili enn ruglaðari en sá sem vildi hafa fötin slétt... sá sem vildi fötin slétt vissi þó hvað hann vildi en hinn veit ekki í hvorn fótinn hann átti að stíga (að hafa krumpu eða ekki hafa krumpu)...
Glöggir aðilar hafa kannski uppgötvað það af þessum skrifum mínum að mér finnst ekki gaman að strauja... (meira að segja ljótt orð)... Eitt af því leiðilegasta sem ég geri er að strauja og reyni af fremsta megni að komast hjá því. Gallinn er bara sá að ég er í vinnu þar sem fötinn þurfa að vera slétt, og ekki nóg með það þarf krumpa/brot að vera í buxunum! Ég slepp oftast auðveldlega með skyrturnar þar sem ég passa bara að láta þær þorna fínt á herðatré og í versta falli þarf ég bara að strauja kragann... hann er jú það eina sem sést ég er í jakka líka. EN þá er vandamálið með þessar buxur.. ég er búin að vera í sirka korter að berjast við þetta blessaða brot í þessum fjandans buxum, það hreinlega vildi ekki vera á réttum stað, og er í raun ekki enn á réttum stað þar sem ég hreinlega gaf skít í þetta því jakkinn nær niður fyrir rass og þarf þetta brot því ekki að vera fullkomið alla leið... þegar ég skoða þetta betur er ég mjög þakklát fyrir jakkann... ekkert vesen með hann sendi hann í hreinsun og hann felur svo hinar krumpurnar...
Enn nóg í bili af bulli í mér, það bara er svo leiðinlegt að strauja....

Góða nótt
Sigrún...
p.s. þetta varð víst aðeins lengra en ég ættlaði...

4 Comments:

  • At 3:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er hægt að strauja tölvur, svo að þetta orðasamband er ekki svo vitlaust, annað þetta með brot, þá þurfum við á þeim að halda annars værum við ekki með neitt lögguveldi og enga afbrotamenn og nauðsynlegt er að kunna að brytja niður pizzur svo að brot eru nauðsyn....

    sjitttttt hvað við erum orðnar djúpar... kveðja Árný

     
  • At 3:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég samt bara var að tala um föt...

     
  • At 3:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ok sorrý ég vann einu sinni í þvottahúsi þegar framhaldskólakennarar voru í verkfalli og ég var mjög glöð þegar það verkfall leystist, stífa skyrtur og pressa buxur er ekki gaman....
    kveðja Árný

     
  • At 10:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    he he einmitt það sem ég var að tala um :)

     

Skrifa ummæli

<< Home