Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

6.19.2005

Frábær skemmtun

Vááá hvað ég er brjálæðislega syfjuð núna. Er í vinnunni og svaf ekkert fyrir vaktina. Vaknaði fyrir hádegi í gær og gerði mig sæta fyrir brúðkaupið hjá Bryndísi og Kristjáni. Þetta var bara hin fínasta skemmtun og ég sat í góðum félagsskap fólks sem ég þekkti ekki neitt en var samt það hressasta bara. Tókum meðal annars myndir af brjóstunum á Sunnu okkar KHÍ-gellu og túttunum á Gunna vini brúðhjónanna.María systir var að þjóna til borðs í brullaupinu, hún fékk hringingu daginn fyrir það og var lofað pilsi að launum....eins og þið vitið þá er brúðurin nefninlega klæðskeri og getur gert alveg ótrúlega falleg föt í höndunum, hún saumaði til dæmis brúðarkjólinn og hann er sá langfallegasti brúðarkjóll sem ég hef á ævinni séð.... engin rjómatertu/pallíettu/blúndu kjóll, heldur rjómalitur/kálfasíður/plein en um leið sérstaklega fallegur kjóll!! og hann fór Bryndísi alveg rosalega vel, hún var svakalega falleg brúður.Ég gerði mig reyndar að smá fífli með gjöfina, var búin að ákveða að kaupa æðislega eldhúsvog í Þorsteini Bergmann, en gleymdi að það var auðvitað lokað þar á 17 júní, þannig að klukkan átta um kvöldið þann sextánda þá þurfti ég að hendast upp í kringlu og finna eitthvað annað. Svo gleymdi ég að kaupa sellófan þannig að ég pakkaði gjöfinni bara inn í laxapoka... kom samt bara nokkuð vel út.Eftir veisluna hentist ég upp í vinnu og er hérna núna klukkan átta að morgni að DEYJA úr syfju, mér líður eins og ég sé að fá hjartaáfall án gríns, eins gott að það er bara hálftími eftir af vaktinni.
Já og svo frétti ég að 10 mínútum eftir að ég yfirgaf teitið þá var kallað á mig upp á svið til þess að taka þátt í einhverjum leik þar sem ég átti að hlaupa um allan salinn og heimta föt og fylgihluti af fólkinu.... fjúkkitt að ég var farin að vinna þá hehehehe ;o)

4 Comments:

  • At 12:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þetta var ég Elín.......kóperaði þessa færslu af blogginu mínu, með smá breytingum

     
  • At 1:20 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    frábært að það var gaman:O)Hlakka rosa til að sjá myndir úr brúðkaupinu:O)

     
  • At 10:50 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    bíð spennt eftir að heyra meira, ertu flutt snúlla mín (Elín) í íbúðina, áttu ekki kaffi handa kaffi þyrstum skuttlum í A bekk...?
    kveðja Árný

     
  • At 12:50 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    auðvitað á ég til kaffi skvíses..... endilega hringið bara í mig við fyrsta tækifæri
    kv. elín

     

Skrifa ummæli

<< Home