Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

10.29.2005

kvedjur fra Berlin

saelar er i honeymoon i Berlin, rosa gaman er t.d buin ad kaupa 2 por af skom og drekka gedveika kokteila. I kvöld erum vid svo ad fara a veitingastad thar sem bordad er i algjöru myrkri og thjonarnir eru blindir, thad var maelt med thvi ad vid myndum panta ovissuferdina, spennandi!!!!

Kv. Bryndis a utlensku lyklabordi

10.27.2005

Uppástunga

Sælar skvísur. Hér er ein hugmynd sem að ég og Árný höfum verið að ræða. Hvernig lýst ykkur á að um miðjan nóvember (svona áður en próflestur fer að byrja) að hafa vinaviku hjá A bekknum gamla góða t.d. frá mánudeginum14 nóv til föstudagsins 18 nóv. Síðan að fara saman út að borða um kvöldið 18. t.d. á Ítalí (fá borð uppi), og upplýsa þar hver leynivinurinn var. Spáið í því...............

Kveðja Guðný

Ein að velta fyrir sér....

Ég var að pæla hvar á ég að leggja inn pening fyrir myndasíðunni?
Eigum við ekki að fara að borga þér María mín:D
Kveðja
Elva Dröfn

10.23.2005

Einn léttur á laugardagskveldi...

Endur fyrir löngu, í landi langt langt í burtu, rakst falleg, sjálfstæð og sjálfsörugg prinsessa á frosk þar sem hún sat og velti vöngum yfir vistfræðilegum álitamálum við bakka ómengaðrar tjarnar á fagurgrænu enginálægt kastalanum sínum.

Froskurinn stökk upp í kjöltu prinsessunnar og sagði: Fagra frú, ég var eitt sinn gjörvilegur prins en grimm norn lagði á mig álög. Ef þú smellir á mig einum kossi mun ég aftur verða að þeim snotra prinsi sem ég raunverulega er.

Þá getum við, mín kæra, gifst og stofnað heimili í kastalanum þínum. Þú getur framreitt málsverði fyrir mig, þvegið klæði mín, alið börnin mín og fundið til þakklætis og hamingju um alla eilífð.

Sama kvöld sat prinsessan yfir málsverði sínum - léttsteiktum froskalöppum í hvítlaukssmjöri - og hló lágt með sjálfri sér:

Ég held nú fokking síður!



Kveðja Sigrún

10.21.2005

Well well well

Þá er komin á hreint með þetta blessaða partý og niðurstaðan er sú að það verður ekki partý að þessu sinni. Við erum ekki nema 7 úr bekknum sem komumst þannig að það er spurnig hvort að Elín haldi bara um næstu helgi þá er líka meiri fyrirvari en er núna. Þannig að ég segi bara góða helgi elskunar mínar.

Kveðja
Elva Dröfn

PARTYPARTYPARTY

Hvað segið þið er partý eða ekki??? Við Sunna munum mæta ef svo er, gott að fá að vita sem fyrst, svo við getum ákveðið í hverju við eigum að vera og sett á okkur gervineglurnar og augnhárin eða þanning................ Er aðallega að hugsa hvort barnið þurfi að fara í pössun


Bryndís og Sunna

10.19.2005

123.is

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er reynslutími okkar hjá 123.is runnin út.. það er s.s myndasíðan okkar, það kostar 2990.- árið hjá þeim og þurfum við að fara að borga núna annars dettur myndasíðan alveg út. Ég var búin að nefna við einhverjar af ykkur um að vera með í að borga ársgjaldið, því fleiri því betra og minna á mann. Endilega kommentið þær sem eru til í að borga með mér fyrir þetta!!!

Og ekki hætta að kommenta á færsluna hennar Elvu fyrir neðan;)

Knúz María.

Partý partý partý!!!!!!!

Jæja stelpur þá er spurning um að fara hittast og djamma:D Málið er að ég get haldið partý á föstudaginn og mig langar að vita hvort að það sé einhver stemming í hópnum? Þannig að endilega commentið og látið vita hverjir myndu mæta og ef það er góð mæting þá verður partý:D
Kveðja
Elva Dröfn

10.17.2005

Karókí:D:D:D:D

Jæja stelpur mína!!!!
Það er karókí á fimmtudaginn:D Eigum við ekki bara að fjölmenna og mæta og taka kannski eitt eða tvö lög. Við gætum til dæmis rifjað upp gamla minningar og tekið Like a virgin:D

Hugsum málið
Elva Dröfn

Palli einn í heiminum

Mér líður svolítið eins og Palla sem var einn í heiminum og meira að segja er ég í djúpulauginni.
Er það eins sjá ykkur hinum að þið eruð að drukkna í verkefnum og ykkur finnst þið vera að vinna allt einar. Kveðja Guðný

10.05.2005

Hittingur!!!

Fyrir þær sem ekki vita þá er partý heima hjá Elínu núna á föstudaginn. Hún verður reyndar ekki heima þar sem hún er að vinna en engar áhyggjur ég kann að opna gluggan með skrúfjárni:D

Sjáumst hressar
Elva Dröfn