Smá vangaveltur....
Að vera á lausu getur haft marga kosti í för með sér. Til dæmis það að maður þarf oftast að hugsa bara um sjálfan sig þegar maður tekur ákvarðanir um lífið og tilveruna. Þú ræður hvað horft er á í sjónvarpinu, þú ræður hvenar og hvað á að borða, þú ræður hvað þú gerir við frítímann þinn, þú ræður hvað þú ert lengi á djamminu, þú ræður hvað þú gerir á djamminu. Einnig getur gert langtíma og framtíma áætlanir án þess að spurja kóng eða prest.
Þrátt fyrir alla þessa góðu kosti eru líka gallar... þú ræður kannski hvað horft er á í sjónvarpinu en oftast ertu þá að horfa á það einn og ef sjónvarpsefnið er dramatískt og rómantískt er ekki laust við að maður verði einmanna. Þó þú ráðir hvað á að borða getur verið frekar leiðinlegt að elda alltaf fyrir einn og einu samræðurnar við eldhúsborðið er kannski við flugu (ef þú ert heppinn). Þó þú ráðir hvað þú gerir á djamminu og hvenar þú ferð heim er leiðinlegt til lengdar að koma alltaf heim í tómt rúm og stundum væri kannski betra ef maður fengi ekki að ráða öllu sem maður gerir. Í frítímanum getur hins vegar verið stundum notalegt að vera aðeins með sjálfum sér, dekra við sig og jafnvel skreppa í göngutúr eða búðir.
En ef svo vill til að þú lesandi góður ert á lausu og ert svona nokkuð sáttur með það mæli ég ekki að fara í sund (kærustupar að kyssast í pottinum), labba fram hjá Austurvelli (kærustupar að kela í grasinu) og reyndu að forðasta það eins og heitan eldin að fara í Ikea einn!!! þar eru hamingjusöm kærustupör að velja dót á heimilið.
Þegar maður er frekar sáttur við lífið og er hamingjusamlega á föstu með sjálfum sér er ekkert leiðinlegra en það að sjá eitthvað sem minnir mann á það að maður sé einn....
Þetta var bara svona smá pæling á góðum sumardegi systir mín flutt í sveitina og það bergmálar pínulítið í íbúðinni. Það svo sem er allt í lagi... fyrir utan það að á nokkrum klukkutímum fór ég í Ikea, sund og keyrði fram hjá Austurvelli......
Heyrumst
Sigrún

7 Comments:
At 5:01 e.h.,
Nafnlaus said…
Díses hvað ég skil þig ógeðslega vel Sigrún kannast allt of vel við þetta allt saman sem þú varst að skirfa. Knús og kossar
At 5:24 e.h.,
Nafnlaus said…
Æi elsku dúllan mín, maður vorkennir þér bara... nú verður bara farið í markvissa leit að kærasta handa þér í sumar er það ekki?? ;) spurning hvort það verði einhver á Sólon í kvöld hmmm...
En við sjáumst allavega í kvöld:)
-knús til ykkar allra.
At 5:53 e.h.,
Nafnlaus said…
Málið er samt að ég er alveg sátt að hafa engan kærasta.... þeir bjóða svo oft upp á eitthvað vesen en það er samt bara stundum sem væri gott að eiga einn... sem maður svo gæti bara skilað þegar maður vildi... hafa einn í skápnum bara .. ef þið skiljið hvað ég meina... :)
At 6:49 e.h.,
Nafnlaus said…
Heheh. já við skiljum alveg hvað þú ert að meina;) en svona bara ef þú vissir það ekki þá ertu bara helv... góður penni og mættir gjarnan skrifa oftar hérna á bloggið okkar:)
At 8:32 e.h.,
Nafnlaus said…
..hehe.. maría þú færð mann alveg til að roðna....
At 8:22 f.h.,
Nafnlaus said…
Sigrún þú getur keypt þér einn uppblásinn á ebay. Þá væri jafnvel tilvalið að blása hann upp áður en þú ferð á djammið og lagt hann í rúmið þitt. Ekki er verra að hann er vatnsheldur þannig að þú getur kippt hounum með þér í sund :-)
At 3:47 e.h.,
Nafnlaus said…
Hún Sigrún vill bara íslenskt og hún styður íslenska framleiðslu (KALLA LÍKA) svo að flytja þá inn í gegnum EBAY dugar ekki.
kveðja Árný
Skrifa ummæli
<< Home