Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

2.26.2005

Hæhæ

2.24.2005

Til Rögnu frá leynikonunni....

Lára fór inn í gæludýrabúð og rak strax augun í glæsilegan páfagauk sem kostaði 5.000 krónur. ,,Af hverju er hann svona ódýr?" spurði Lára. Gæludýrabúðareigandinn leit á hana og sagði:,,sko. Málið er að þessi páfagaukur hefur verið í mörg ár í vændishúsi og getur verið ansi orðljótur. Hreint hroðalega. Þess vegna er hann á útsöluprís." Lára ákvað samt sem áður að kaupa gauksa, fór með hann heim og hengdi búrið upp í borðstofunni. Fuglinn leit í kringum sig, síðan á Láru og sagði:,,Nýtt hús, ný húsfrú ." Konunni varð brugðið en fannst þetta síður en svo ljótt orðbragð. Nokkru síðar komu dætur Láru heim úr háskólanum og fuglinn sagði um leið: ,,Nýtt hús, ný húsfrú og nýjar hórur." Stelpurnar voru dálítið móðgaðar en byrjuðu svo að hlæja að þessum fyndna fugli. Augnabliki síðar kemur eiginmaður Láru heim úr vinnunni. Páfagaukurinn leit á hann og sagði:, Hæ Helgi!."

Leynivinur

allir að pukrast, vonandi sérð þú þetta Ragna mín og vonandi hefur þú skoðað í hólfið þitt? Það var nefnilega farið að fyllast að dóti á miðv.dagsmorgun.....
Speki dagsins
Gleðibros barnsins er svipað og morgunroði,
er kastar geislum sínum fyrir blómiskrýtt engi. Bros öldungsins er sem kvöldroði, sem gyllir snæviþakta fjallatinda.
Hið fyrrnefnda boðar von, hið síðarnefnda er ævi mannsins.
Milli hvorutveggja er ævi mannsins.

Pálína mín :)

Jæja Pálína árshátíð á morgun, er þér ekki farið að hlakka til en ég ákvað að koma með eitt annað ljóð til þín gjörðu svo vel...

Vinur er fjarsjóður!
Vinur er einhver sem að við leitum til!
Þegar hugarástand okkar þarfnast upplyftingu!
Vinur er einhver sem við virðum
og treystum, vegna þess að vináttan er dýrmæt.
Vinur er einhver sem fyllir lífið,
með fegurð, gleði og þokka!
Og gerir veröldina sem við lifum í,
betri og ánægilegri!!!
Vináttan kemur og vináttan fer.
Eins og aldan sem kemur upp á sandinn.
Eins og dagur og nótt.
Eins og fuglar á flugi.
Eins og snjórinn sem fellur.
En þú og ég erum eitthvað annað.
Vináttan okkar er hér til að vera.
Eins og fjöllin sem aldrei hverfa.

2.22.2005

Pálína mín

Pálina þetta er fyrir þig

Þökk fyrir þennan vetur,
þökk fyrir brosið þitt.
Þú hefur sól og sumar,
sent inn í hjartað mitt


Kveðja þinn leynivinur XXX

2.18.2005

Árshátíð og allt það

hæ pæjur
greyjið hann Börksi okkar, að þurfa að kenna okkur eftir hádegi á föstudögum, hvað voru margir símar sem hringdu í dag? ég nánast svaf, það er svona þegar aldurinn færist yfir mann. Jæja ég dróg nafn í dag og vitiði hver það er? ég veit það, sú/sá fær fullt af fallegum ljóðum kossum og knúsum í næstu viku.... jæja blogga meir síðar... kv Árný

Árshátíð og allt það

hæ pæjur
greyjið hann Börksi okkar, að þurfa að kenna okkur eftir hádegi á föstudögum, hvað voru margir símar sem hringdu í dag? ég nánast svaf, það er svona þegar aldurinn færist yfir mann. Jæja ég dróg nafn í dag og vitiði hver það er? ég veit það, sú/sá fær fullt af fallegum ljóðum kossum og knúsum í næstu viku.... jæja blogga meir síðar... kv Árný
jæja skutlur...er ekki kominn fílíngur í ykkur?!?!?

allavega þá hlakka ég mikið til og eins og sumar hafa kannski heyrt þá var ég að stinga upp á að fá kannski vinkonu mína heim til Ásu þ.e.a.s. ef einhverjar hefðu áhuga á að fá förðun. Heyrist svona á flestum að þeir ætli nú bara að sjá um þetta sjálfar en við Ása ætlum allavega að fá hana til að farða okkur.

Ef ef einhverjar af ykkur hafa áhuga þá endilega komið með komment. Ef við verðum bara tvær þá förum við nú bara heim til hennar en ef við verðum fleiri þá er möguleiki að fá hana heim til Ásu :)

Hún tekur 2000 kr á kellu (veit ekki hvort það sé mikið eða ekki) og ætla ég bara að líta á það þannig að LANDSBANKINN sé að bjóða mér í förðun ;)

En endilega komið með komment..þær sem vilja, þær sem ekki vilja, þær sem ætla að sjá um þetta sjálfar og þær sem ætla ekki að mæta farðaðar...ég vil endilega heyra frá ykkur öllum ;)

...og hvað með dressið...ætlið þið í gala eða semi fínar eða fara ekki fínar? :)

kv Harpa

2.17.2005

LITE-liðið!!

Sælar skvísur!

Þá er komið að keilukvöldi í skólanum...og búið að skipa í þetta fína lið fyrir A bekkin æðislega:) og auðvitað verðum við Lite-liðið en ekki hvað;)
það eru s.s ég, Harpa, Sólrún og Nína sem ætlum að taka það að okkur að halda uppi heiðri bekkjarins, en hún Nína er að vísu eitthvað að reyna að komast undan því að vera með vegna eymsla í baki.. þannig að það vantar einn liðsmann, Sigrún ætlar að reyna að koma og Vilborg og Pálína eru inn í myndinni líka til að vera með í liðinu, en endilega komiði sem flestar í kvöld til að vera með almennilegt klapplið og höfum það svolítið skemmtilegt saman..!!
Sjáumst hressar og kátar í kvöld.
Er svo ekki verið að tala um að starta leynivinaviku á morgun?? Spennandi, ég veit að vísu ekki almennilega út á hvað það gengur en þið fræðið mig nú örugglega um það..
Knús og kveðja María.

2.09.2005

Ó þessir saklausu sveitastrákar

Það var eitt sinn að borgarstúlka hitti þvílíkt sætan sveitastrák á balli. Þegar að ballið var að vera búið þá labbaði stelpan að sveitastráknum og kvíslaði. Hey þú sæti sveitastrákur, viltu taka það harðasta sem að þú átt og setja það þar sem að ég pissa? Elskulegi sæti sveitastrákurinn tók þá gsm síman sinn og seti hann í klósetið.............

2.08.2005

Oh my god......

Úff og hjálpi mér allir heilagir, ég er að klepra hérna!!
Sit hér og blogga í staðinn fyrir að hlusta á fyrirlesarann, meika það bara ekki....... eins og oftast reyndar.
Ætla allir að fá sér ný föt fyrir árshátíðina? Ég á ekki fín föt en tími ekki að kaupa mér þau heldur. Ætlið þið að vera bara í pilsi og topp, eða er þetta alveg gala-dæmi, þ.e.a.s síðkjólar, uppsett hár og ljósabrenndir líkamar með gerfineglur?
Ég nenni varla á hana lengur, það er ótrúlegt hvað maður er orðin mikil kerling hehehehe
en auðvitað skellir maður sér, fáum okkur bara nóg í glas og þá verður fjör.... ég ætti kannski bara að koma í íþróttagallanum, ég er nefninlega þekkt fyrir að gera mig að fífli á Broadway (er þetta ekki þar?) Hef dottið niður tröppurnar nokkrum sinnum og misst allt upp um mig, hef hellt yfir mig kertavaxi og hef strippað á dansgólfinu sitjandi ofan á dreng undir lögaldri og margt annað sem er of skammarlegt til þess að segja frá hér á blogginu ;o)

2.06.2005

Nammi dagurinn búin

Þá er nammi dagurinn búinn og rjómabollu verttíðin að hefjast. Ég borðaði náttúrulega nammi en fór svo á Brodway og fékk mér snúning með bóndanum "hitta upp fyrir árshátíðina sem er á næstunni". Vonandi hef ég bara brennt namminu. Annars er þetta venjulegur sunnudagur fyrir bolludag. 'Eg er búin að baka bollur í morgun sem að mistókust að vanda svo að elsta stelpan er búin að fá það verkefni að fara út í búð að kaupa bollur. "Allir glaðir". Nú á að fara að læra. Hlakka til að sjá ykkur í fyrramálið í íslensku.

Knús og kram Guðný.

2.05.2005

Að vera dót í geymslu

Hafiði einhvern tíman velt fyrir ykkur hvernig það sé að vera dót í geymslu...? Ef þið væruð sett í geymslu þýddi það að þið hefðuð mist notagildi ykkar eða væruð notuð mjög sjaldan... örugglega ekki gott fyrir sjálfstraustið Þið yrðuð þá sett inn í hillu í geymslunni, líklega í kassa eða poka, innan um fullt af öðru drasli og svo bara lokað. Ljósin væru alltaf slökkt nema þegar einhver kæmi inn til að ná í eitthvað í geymsluna og í hvert sinn sem ljósin væru kveikt vaknaði von hjá ykkur og eftirvænting um hvort það væri verið að ná í ykkur.... Mesta hræðslan væri samt líklega þegar tekið væri til í geymslunni... kannski verður ykkur þá HENT!! Enduðu á ruslahaugunum sem er mun verri staður en geymsla... einnig er svo vert að minna á að músagangur gæti verið í geymslunni og þær gætu nartað á ykkur gat!!! Smá vangaveltur hér á síðustu klukkutímum næturvaktarinnar.... veltið þessu fyrir ykkur.... Sigrún

2.04.2005

Mergrun, megrun, megrun

Þá er Laugadagur á morgun "nammidagur". Ég kaupi og kaupi nammi allt sem að mig langar til að borða alla vikuna og svo kemur laugadagurinn. Þá stend ég fyrir framan nammiskápinn og hugsa um þann litla árangur sem að ég hef náð yfir vikuna "á viktinni" og oftar en ekki sleppi ég því að borða laugardagsnammið og er því nammiskápurinn því orðinn frekar fullur. Nú er víst nammidagur á morgun og ég er strax farin að hugsa til þess hvort að ég eigi að "taka til" í nammiskápnum á morgun eða hvað. Ég fór í bónus áðan með Árnýju og keypti snakk fyrir kvöldið en ég ákvað að velja einhverja tegund sem að mér þætti ekki góð en bara börnunum. Jæja þetta nammiát er seinni tíma vandamál "á morgun" Kveðja Guðný.

Smá páling yfir helgina!

Sælar skvísur.

Ég get ekki hætt að hugsa um það sem að Ingvar sagði í fyrirlestrinum í gær, að konur væru menn. Er það tilfellið að við séum menn. Erum við þá konur manneskjur og menn? Hvað finnst ykkur? Hvernig myndi ykkur líka það að leggjast upp í rúm með manninum ykkar og hann myndi segja kondu hérna maðurinn minn. Er eitthvað vit í þessu? Jæja látið endilega heyra í ykkur hérna og segið ykkar skoðun.

Kveðja til allra "manna" sem lesa þetta. Guðný.


Er ekki tilfellið að orðið maður beygist svona.

Et. Ft.
Maður Menn
mann Menn
manni Mönnum
manns Manna

2.03.2005

Í Köben, í köben....

Jæja skvísur..
Ég sit hér og les bloggið okkar og commenta á ykkur þegar ég ætti að vera að pakka, já s.s ekki búin að pakka og klukkan orðin ellefu og ég á flug klukkan 7.30 í fyrramálið...en varð bara að kasta á ykkur kveðju yndislegu bekkjarsystur:)
Hugsiði til mín þegar þið sitjið á FREMSTA bekk í fyrirlestri NKS í fyrramálið og þá mun ég sitja með einn öl einhversstaðar á Strikinu.. hehehe.. en engar áhyggjur ég skal drekka einn öl á mann fyrir ykkur allar, kannski ekki alla á morgun en svona yfir helgina..hljómar það ekki vel;)
Góða helgi!
Knús og kveðja María.

Megrun og allt það

Megrun og allt það

Það er ekkert mál að fara í aðhald, en halló ef maður hreyfir sig of mikið þá þyngist maður bara á viktinni, það var einhver spekulant sem sagði mér að þetta væru vöðvar sem væru að styrkjast og þyngjast.... voða gaman en samt kallinn er farinn að ná utan um mig (æði) og krakkarnir geta orðið setið í fanginu á mér án þess að renna fram af, því ég er svo lappastutt. Nóg um lýsingu af mér og mínu mitti. Það er árshátíð núna í febrúar og það er skildumæting, ekki satt. vikuna fyrir ætlum við í AAAA BBBEEEKKK að vera með vina viku. Eins og í barnaskóla, eignast leynivin og semja ljóð og teikna myndir handa henni (við erum örugglega bara skutlur í bekknum ekki satt) þykjast vera voða góður við viðkomandi og njóta þess að láta hana halda að það sé einhver annar að dekra við hana. Góð hugmynd væri t.d. að færa henni alltaf kaffi í alla tíma... sú yrði ánægð.... ég með kveðju úr Kópavoginum Árný
ps spriklkortið mitt rennur út á laugardaginn kemur og þá þarf ég að spá í eitthvað annað ekki satt, halda áfram að þyngjast og styrkja einhverja vöðva????

Jæja best að blogga

Sælir lesendur.
Ég var beðin um að blogga af Hörpu húsmóðir, (þurfum að finna nikknöfn á okkur allar). Ég tek nátturulega þessari áskorun og hefst nú handa.
Fyrsta mál á dagskrá er megrun!
Hver hefur ekki farið í megrun og ekki nennt því? Já, kannski er ég ein um það ef svo er þá er það allt í lagi og kannski er ég líka ein um eftirfarandi atriði:
*Pakka ofan í ræktartöskuna- og taka upp úr henni viku seinna!
*Vera komin í ræktina og hlaupa í 20 mín og fara svo heim
*Opna ískápinn og þér mæta eintómar skyrdollur og undanrennur, snúa þér við og opna nammi skápinn.
*Fara í ræktina og eingöngu anorexíustilkar mæta þér á þrjúþúsund á hlaupabrettinu.
*Fara í ræktina og mæta þeim misskilningi að konan við hliðina á þér sé feitari en þú og það gleður þig, þangað til að þú lítur næst í spegil!
*Fara í kringluna og vera haldin mikillri villu um að þú komist í gamla númerið þitt af því að þú ert búin að hreyfa þig í 3 daga!

En það eru líka góðar tilfinningar sem fylgja megrun:
*Ekkert er betra en tilfinningin sem heita harðsperrur eða strengir!
*Fátt er betra en að sigra letidrauginn og fara í ræktina!
*Ekkert er betra en 100 magaæfingar á dag.
*Yndislegt að vera léttur á sér eftir nærandi og hressandi jarðaberja-banana búst!
*OG ÞAÐ ER GEGGJUN EIN AÐ KOMAST Í FÖTIN SÍN.

Jæja stelpur, nú er það american idol, ég verð rosalega agressif eftir þessa þætti því sumir ameríkanar eru svo takmarkaðir....!

Kv Pálína megrunarbani.

2.02.2005

ANDVAKA

Úfff ég þoli þetta ekki, ég virðist geta sofið alltaf og allsstaðar..... nema heima hjá mér á nóttunni. Nú er klukkan að ganga þrjú, ég er ennþá vakandi og auðvitað á að mæta í skólann snemma í fyrramálið, þetta er ógeðslega leiðinlegt :o(.
Ég er búin að vera föst á e-bay í allt kvöld, var að bjóða í friends safnið, lenti í hörkusamkeppni við einhvern annan... og tapaði auðvitað!! en lét hann nú hækka sig úr 35 dollurum og upp í 105 dollara hehehehe.
Jæja best að fara aftur að liggja og velta sér í bælinu og hugsa. Ég var að hugsa um hvað ég myndi gera við peningana ef ég skyldi verða svo heppin að vinna í lottóinu.

Kveðja Elín- sem lætur sig dreyma um nýja skó og nýjan bíl og stóra hæð í þingholtunum og nýja skó og heimsreisu og tempur rúm og nýja skó og sætan hund og hrærivél og nýja skó og....... o.s.frv