Jæja best að blogga
Sælir lesendur.
Ég var beðin um að blogga af Hörpu húsmóðir, (þurfum að finna nikknöfn á okkur allar). Ég tek nátturulega þessari áskorun og hefst nú handa.
Fyrsta mál á dagskrá er megrun!
Hver hefur ekki farið í megrun og ekki nennt því? Já, kannski er ég ein um það ef svo er þá er það allt í lagi og kannski er ég líka ein um eftirfarandi atriði:
*Pakka ofan í ræktartöskuna- og taka upp úr henni viku seinna!
*Vera komin í ræktina og hlaupa í 20 mín og fara svo heim
*Opna ískápinn og þér mæta eintómar skyrdollur og undanrennur, snúa þér við og opna nammi skápinn.
*Fara í ræktina og eingöngu anorexíustilkar mæta þér á þrjúþúsund á hlaupabrettinu.
*Fara í ræktina og mæta þeim misskilningi að konan við hliðina á þér sé feitari en þú og það gleður þig, þangað til að þú lítur næst í spegil!
*Fara í kringluna og vera haldin mikillri villu um að þú komist í gamla númerið þitt af því að þú ert búin að hreyfa þig í 3 daga!
En það eru líka góðar tilfinningar sem fylgja megrun:
*Ekkert er betra en tilfinningin sem heita harðsperrur eða strengir!
*Fátt er betra en að sigra letidrauginn og fara í ræktina!
*Ekkert er betra en 100 magaæfingar á dag.
*Yndislegt að vera léttur á sér eftir nærandi og hressandi jarðaberja-banana búst!
*OG ÞAÐ ER GEGGJUN EIN AÐ KOMAST Í FÖTIN SÍN.
Jæja stelpur, nú er það american idol, ég verð rosalega agressif eftir þessa þætti því sumir ameríkanar eru svo takmarkaðir....!
Kv Pálína megrunarbani.

3 Comments:
At 10:02 e.h.,
Nafnlaus said…
úps ég fór á KFC
kv.Bryndís
At 11:01 e.h.,
Nafnlaus said…
Æ velkomin aftur á bloggið Pálína, alltaf svo gaman að lesa það sem þú skrifar:) er búin að sakna þess...!!
Kv María
At 7:42 e.h.,
Fyrsti A 2004 said…
keep it up girl...eða eitthvað ;/ allavega...líst vel á þig!! :)
kv HH...Harpa Hausks...ja eða Harpa húsmóðir ;)
Skrifa ummæli
<< Home