Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

2.04.2005

Smá páling yfir helgina!

Sælar skvísur.

Ég get ekki hætt að hugsa um það sem að Ingvar sagði í fyrirlestrinum í gær, að konur væru menn. Er það tilfellið að við séum menn. Erum við þá konur manneskjur og menn? Hvað finnst ykkur? Hvernig myndi ykkur líka það að leggjast upp í rúm með manninum ykkar og hann myndi segja kondu hérna maðurinn minn. Er eitthvað vit í þessu? Jæja látið endilega heyra í ykkur hérna og segið ykkar skoðun.

Kveðja til allra "manna" sem lesa þetta. Guðný.


Er ekki tilfellið að orðið maður beygist svona.

Et. Ft.
Maður Menn
mann Menn
manni Mönnum
manns Manna

1 Comments:

  • At 7:39 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    get ekki sagt að ég hafi pælt mikið í þessu eftir fyrirlesturinn en það er nokkuð til í þessu hjá þér...ég lít allavega ekki á mig sem mann þó ég sé manneskja!! konur eru lögreglukonur en ekki lögreglumenn
    konur eru slökkviliðskonur en ekki slökkviliðsmenn
    ...og svo framvegis... spurðu hann nánar út í þetta comment hjá honum á næsta fyrirlestri ;)

    kv HH

     

Skrifa ummæli

<< Home