Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

2.18.2005

jæja skutlur...er ekki kominn fílíngur í ykkur?!?!?

allavega þá hlakka ég mikið til og eins og sumar hafa kannski heyrt þá var ég að stinga upp á að fá kannski vinkonu mína heim til Ásu þ.e.a.s. ef einhverjar hefðu áhuga á að fá förðun. Heyrist svona á flestum að þeir ætli nú bara að sjá um þetta sjálfar en við Ása ætlum allavega að fá hana til að farða okkur.

Ef ef einhverjar af ykkur hafa áhuga þá endilega komið með komment. Ef við verðum bara tvær þá förum við nú bara heim til hennar en ef við verðum fleiri þá er möguleiki að fá hana heim til Ásu :)

Hún tekur 2000 kr á kellu (veit ekki hvort það sé mikið eða ekki) og ætla ég bara að líta á það þannig að LANDSBANKINN sé að bjóða mér í förðun ;)

En endilega komið með komment..þær sem vilja, þær sem ekki vilja, þær sem ætla að sjá um þetta sjálfar og þær sem ætla ekki að mæta farðaðar...ég vil endilega heyra frá ykkur öllum ;)

...og hvað með dressið...ætlið þið í gala eða semi fínar eða fara ekki fínar? :)

kv Harpa

5 Comments:

  • At 3:40 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    hehe róleg á stærðinni!! hehe

    allavega þá vil ég fá förðun takk og ég er að vinna í því að finna mér e-h fínt dress ;)

     
  • At 3:41 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    kv Harpa...var sem sagt að svara mínu eigin bloggi ;)

     
  • At 3:50 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    ég er í tómu tjóni hér...bloggið var sem sagt HUGE áðan og núna pínku pons...en allavega...þiið skiljið mig vonandi ;)

     
  • At 10:32 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    jæja ég held þá bara áfram að svara sjálfri mér þar sem enginn annar gerir það ;)

    en hversu geðveikur er maður?!?! nú hugsa ég ekki um annað en að ég sé rugluð að vera að spá í förðun! ég get svo sem alveg gert þetta sjálf!! æ nú veit ég ekkert hvað ég geri ;) hehe
    kv....Ég sjálf

     
  • At 11:58 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    Nína ætlar að mála mig og ég ætla að greiða henni þannig að við tökum ekki þessu góða boði:)
    Klæðnaðurinn er ekki alveg kominn á hreint hjá okkur stöllum...
    knús frá okkur upp í skóla að læra :(
    María og Nína.

     

Skrifa ummæli

<< Home