Megrun og allt það
Það er ekkert mál að fara í aðhald, en halló ef maður hreyfir sig of mikið þá þyngist maður bara á viktinni, það var einhver spekulant sem sagði mér að þetta væru vöðvar sem væru að styrkjast og þyngjast.... voða gaman en samt kallinn er farinn að ná utan um mig (æði) og krakkarnir geta orðið setið í fanginu á mér án þess að renna fram af, því ég er svo lappastutt. Nóg um lýsingu af mér og mínu mitti. Það er árshátíð núna í febrúar og það er skildumæting, ekki satt. vikuna fyrir ætlum við í AAAA BBBEEEKKK að vera með vina viku. Eins og í barnaskóla, eignast leynivin og semja ljóð og teikna myndir handa henni (við erum örugglega bara skutlur í bekknum ekki satt) þykjast vera voða góður við viðkomandi og njóta þess að láta hana halda að það sé einhver annar að dekra við hana. Góð hugmynd væri t.d. að færa henni alltaf kaffi í alla tíma... sú yrði ánægð.... ég með kveðju úr Kópavoginum Árný
ps spriklkortið mitt rennur út á laugardaginn kemur og þá þarf ég að spá í eitthvað annað ekki satt, halda áfram að þyngjast og styrkja einhverja vöðva????
ps spriklkortið mitt rennur út á laugardaginn kemur og þá þarf ég að spá í eitthvað annað ekki satt, halda áfram að þyngjast og styrkja einhverja vöðva????

2 Comments:
At 11:03 e.h.,
Nafnlaus said…
Hey góð hugmynd að hafa vinaviku:)
Kv María
At 9:37 f.h.,
Nafnlaus said…
Það er svo gaman að eiga leynivin góð hugmynd!!!
kv. Bryndís
Skrifa ummæli
<< Home