Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

2.08.2005

Oh my god......

Úff og hjálpi mér allir heilagir, ég er að klepra hérna!!
Sit hér og blogga í staðinn fyrir að hlusta á fyrirlesarann, meika það bara ekki....... eins og oftast reyndar.
Ætla allir að fá sér ný föt fyrir árshátíðina? Ég á ekki fín föt en tími ekki að kaupa mér þau heldur. Ætlið þið að vera bara í pilsi og topp, eða er þetta alveg gala-dæmi, þ.e.a.s síðkjólar, uppsett hár og ljósabrenndir líkamar með gerfineglur?
Ég nenni varla á hana lengur, það er ótrúlegt hvað maður er orðin mikil kerling hehehehe
en auðvitað skellir maður sér, fáum okkur bara nóg í glas og þá verður fjör.... ég ætti kannski bara að koma í íþróttagallanum, ég er nefninlega þekkt fyrir að gera mig að fífli á Broadway (er þetta ekki þar?) Hef dottið niður tröppurnar nokkrum sinnum og misst allt upp um mig, hef hellt yfir mig kertavaxi og hef strippað á dansgólfinu sitjandi ofan á dreng undir lögaldri og margt annað sem er of skammarlegt til þess að segja frá hér á blogginu ;o)

7 Comments:

  • At 11:51 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    úps þetta var semsagt ég Elín litla að blogga

  • At 10:15 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    wow nógu krassandi er það sem þú ert búin að telja upp....hvað hefuru þá gert þar sem þú vilt ekki segja?!?!?!? :)

    en allavega...ég er í voða prinsessufílíng fyrir árshátíðina, langar að kaupa mér e-h föt en þegar ég ætla mér það þá verður yfirleitt aldrei neitt úr því!! ætla kannski að láta frænku mína greiða mér og vinkonu mína farða mig (báðar lærðar) þannig að ef fleiri eru í svoleiðis fílíng en vita ekki um neinn þá væri kannski gaman að vera nokkrar saman og fá þær til okkar í dúllerí :) bara smá hugmynd sko :)

  • At 10:17 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    já og þetta var sem sagt comment frá:
    Hörpu hásvæf/houseswife

  • At 11:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er líka í pínu prinsessufíling... litla systir saumaði nebbla autfit á mig í skólanum en ég hef ég hef aldrei notað það .... synd að nota það ekki :)
    Sigrún

  • At 11:56 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Lína kannski ætturðu að fá samfesting með rennilás á bakinu úr eldvörðu efni þú missir hann hvorki upp né niður um þig, kveikir ekki í þér og getur ekki strippað en þú verður að taka einhvern með þér heim til að hjálpa þér úr.
    Bryndís

  • At 10:46 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    úúúú mér líst nú bara ágætlega á það......... set þig í það að sauma hann!!!!
    kv. Elín

Skrifa ummæli

<< Home