ANDVAKA
Úfff ég þoli þetta ekki, ég virðist geta sofið alltaf og allsstaðar..... nema heima hjá mér á nóttunni. Nú er klukkan að ganga þrjú, ég er ennþá vakandi og auðvitað á að mæta í skólann snemma í fyrramálið, þetta er ógeðslega leiðinlegt :o(.
Ég er búin að vera föst á e-bay í allt kvöld, var að bjóða í friends safnið, lenti í hörkusamkeppni við einhvern annan... og tapaði auðvitað!! en lét hann nú hækka sig úr 35 dollurum og upp í 105 dollara hehehehe.
Jæja best að fara aftur að liggja og velta sér í bælinu og hugsa. Ég var að hugsa um hvað ég myndi gera við peningana ef ég skyldi verða svo heppin að vinna í lottóinu.
Kveðja Elín- sem lætur sig dreyma um nýja skó og nýjan bíl og stóra hæð í þingholtunum og nýja skó og heimsreisu og tempur rúm og nýja skó og sætan hund og hrærivél og nýja skó og....... o.s.frv

2 Comments:
At 2:45 e.h.,
Nafnlaus said…
Æi já það er svo ömurlegt að vera andvaka og sérstaklega ef maður þarf að vakna snemma um morguninn.
Kveðja Elva sem dreymir líka um nýja skó og fleira en Elín á ég að monta mig aðeins ég á Tempur rúm(°°,) híhíhíhí
At 10:41 e.h.,
Fyrsti A 2004 said…
Elsku dúllan mín
það er ekki neitt mál að sofa, þú bara hringir í einhvern af fyrirlesurum KHI og þeir svæfa þig um leið, ég þori ekki að nefna nein nöfn en það er alveg á hreinu að það svín virkar.
mbk Árný
Skrifa ummæli
<< Home