Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

2.05.2005

Að vera dót í geymslu

Hafiði einhvern tíman velt fyrir ykkur hvernig það sé að vera dót í geymslu...? Ef þið væruð sett í geymslu þýddi það að þið hefðuð mist notagildi ykkar eða væruð notuð mjög sjaldan... örugglega ekki gott fyrir sjálfstraustið Þið yrðuð þá sett inn í hillu í geymslunni, líklega í kassa eða poka, innan um fullt af öðru drasli og svo bara lokað. Ljósin væru alltaf slökkt nema þegar einhver kæmi inn til að ná í eitthvað í geymsluna og í hvert sinn sem ljósin væru kveikt vaknaði von hjá ykkur og eftirvænting um hvort það væri verið að ná í ykkur.... Mesta hræðslan væri samt líklega þegar tekið væri til í geymslunni... kannski verður ykkur þá HENT!! Enduðu á ruslahaugunum sem er mun verri staður en geymsla... einnig er svo vert að minna á að músagangur gæti verið í geymslunni og þær gætu nartað á ykkur gat!!! Smá vangaveltur hér á síðustu klukkutímum næturvaktarinnar.... veltið þessu fyrir ykkur.... Sigrún

3 Comments:

  • At 11:16 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    hehe þú hefur sem sagt verið að lifa þig vel inn í innlifunarfyrirlesturinn :) skemmtileg pæling!

     
  • At 3:14 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    Sigrún, varðandi geymslu þá borgar sig að flytja á nokkurra ára fresti loka augunum og henda!!!! þegar ég flutti síðast þá fann ein mágkona mín 18 jólaskrautakassa og hún er ennþá að staulast á þessu og ég er ekki búin að henda neinu. Ég hendi aldrei neinu ég bíð bara fólki í heimsókn til mín sem elskar drasl og leyfi þeim að taka sma´með sér heim... og rest fer í nytjagáma.... hA HA

     
  • At 11:39 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    Sigrún ,,,, þarna komst þú með það ég get aldrei hent drasli ég binst því svo miklum tilfinningaböndum, verð að gefa einhverjum það ef ég vil losna við það. Það er kannski málið lifi mig svo inn í þeirra hlutskipti að ég verð að finna nýja eigendur ef ég vill það ekki. Ég er reyndar að verða grófari með árunum og fæ kast og hendi helling, þýðir það þá að ég sé orðin kaldlyndari eða tilfinningalega heftari með árunum það er spurning?

     

Skrifa ummæli

<< Home