Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.11.2005

Týnd próf

Oojj hvað ég er að verða brjáluð á þessu, af hverju eru kennararnir búnir að gefa fjarnáminu einkun en ekki staðnemunum... við tókum sama prófið og á sama andsk*** tíma.
Ég er pirruð á þessu og fer að verða fúl líka, maður vill nú fá að ljúka einni önn áður en sú næsta byrjar!!
En hvernig hefur svo öllum gengið í prófunum? Ég er búin að vera að fá glimrandi einkunnir, nema kannski í stærðfræðinni, hefði viljað fá hærra þar ;o)
Vona að síðustu einkunnirnar komi inn á morgun, það væri reyndar týpiskt að þær komi inn þá af því að þá sef ég af mér daginn eftir næturvaktina...
Jæja reynið nú að telja stafsetningarvillurnar í þessu hjá mér, ég er vansvefta og gat ekki einu sinni munað hvernig á að skrifa orðið skór á ensku.... talandi um að missa minnið á næturvöktunum ;o)
kveðjur frá gleraugnagláminum ykkar henni Elínu

1 Comments:

  • At 11:57 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er svo sammála þér ég er farin að vera frekar pirruð og þreytt á að bíða eftir einkunnum. Það er vonandi að þær komin inn í dag. Sjáusmt hressar og kátar á morgun hlakka til að hitta ykkur. Knús og kossar frá mér
    Elva Dröfn

     

Skrifa ummæli

<< Home