Alvara lífsins.
Jæja nú held ég að ég sé farin að átta mig á því að jólafríið sé búið (en það vandist mjög vel), og farin að bretta upp ermarnar og lesa allan vegana átta sig á því hvaða bók er í hverju fagi.
Í gær varð ég fyrir nettu áfalli. Ég ákvað að demba mér í ræktina og losna við eitthvað af harsperunum sem að ég fékk eftir að hafa farið á skíði á sunnudaginn. Ég lagði bílnum mínum á bílaplaninu fyrir utan íþróttahúsið og fór inn. Þegar að ég kom svo aftur rúmum klukkutíma seina hafði bílinn minn runnið heila bíllengd aftur á bak því að það var svo mikið svell á bílastæðinu (ég hafði sé annan bíl þegar að ég kom sem mér fannst hafa verið lagt frekar asnalega, þannig að ég hafði sérstaklega sett minn í gír og handbremsu) en það var ekki nóg. Stóra stelpan mín stakk upp á því að við hefðum bara alltaf eitthvað í bílnum til að setja við dekkið þegar að við værum að leggja í brekku.
Jæja stelpur verið nú duglegar að blogga, það er alveg kjörið þegar að þið nennið ekki að byrja að læra. Svona er t.d. hægt að hita upp fingurnar fyrir leiðarbók. Kveðja Guðný.

1 Comments:
At 9:59 e.h.,
Nafnlaus said…
Talandi um alvöru lífsins, jóla-visa reikningurinn ætti ekki að vera símanúmer fyrir áfallahjálp neðan við upphæðina???
kv Bryndís
Skrifa ummæli
<< Home