Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.29.2005

Afmæli-bjórkvöld...

Sælar elskurnar!!

Ég ætla að byrja á því að óska þér Pálína til hamingju með afmælið í dag!! Vona að þú munir eiga góðan afmælisdag sæta:)

Við fórum nokkrar á útgáfuhófið í gær... alltaf sami kjarninn sem skellir sér á svona samkomur:) Við vorum ekki fleiri en fjórar úr A-bekknum ég, Nína, Elva og Ása og skemmtum okkur svakalega vel... bjórinn beið okkar í Valsheimilinu og mættum við bara snemma til að ná að horfa á Idolið (og auðvitað til að ná fríum bjór). Það var nú engin svaka stemmning yfir Idolinu fyrr en leið á kvöldið og allir voru búnir með nokkra fría bjóra!! Þá myndaðist spenna og allir fóru að tjá sig um hverjum haldið var með o.s.frv. eftir Idolið skelltum við okkur á dansgólfið með honum Steinari úr bóksölunni sem er b.t.w frændi hennar Hörpu okkar og já greinilegt að þetta er mikil dansfjölskylda vááá við áttum ekkert í hann en reyndum eins og við gátum;)
Síðan voru ljósin kveikt og tilkynnt að það væri kominn eðalvagn að ná í okkur til að keyra þennan föngulega hóp niður í bæ og stefnan var tekin á Hressó, það var mikið sungið í gula eðalvagninum á leiðinni eins og kennónemum er einum lagið..já svo var bara drukkið meira, spjallað mikið og dansað á Hressó og var eitthvað misjafnt hvenær fólk kom sér heim:) ég persónulega fór snemma heim á mínum mælikvarða, var komin heim fyrir þrjú aldrei þessu vant en ég er líka að spara mig... því ég er að fara til Köben á föstudaginn vei vei :) !!!!
Jæja skvísur vildi að þið hefðuð verið með í gær, en stefnum á að mæta allar á árshátíðina í staðinn..
Góða helgi fallega fólk og sjáumst á mánudag.
knús og kveðja María.

5 Comments:

  • At 4:12 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    ooohhhh nú sé ég sko eftir að hafa ekki komið!!!...en það verður bara extra gaman á árshátíðinni í staðinn :)

    kv Harpa

     
  • At 6:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jahá það verður sko stuð á okkur þá!!
    En það vantaði alveg að hafa þig í gær Harpa á dansgólfinu;)
    María.

     
  • At 11:29 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    hehe já er það ekki? :) ég lofa að snúa þér allsvakalega á dansgólfinu á árshátíðinni :)

    kv Harpa

     
  • At 12:22 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    stelpur mínar þið misstuð af allsvakalegu fjöri á föstudaginn....... dansaði þvílíkt þannig að ég var óskólafær í dag,..... festist skyndilega í bakinu þegar ég tók yngsta meðliminn í flugferð. Annað hvort var það eftir tjúttið eða aldurinn að segja til sín ,,,,en sennilega er það dansinn því varla er það strax um 29 sem það gerist :)

     
  • At 12:26 f.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    gleymdi að kvitta kveðja Nína twenty nine

     

Skrifa ummæli

<< Home