Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.31.2005

Mánudagur til mæðu.....

Úffffff stelpur, ég er svo þreytt að það er ekki eðlilegt, af hverju ætli við þurfum alltaf að mæta svona snemma á mánudögum?
Ég er ennþá að drepast í fætinum eftir flottu flugferðina mína við Landsann þarna um daginn... allavega er ég hætt að haltra eins og einfættur hani (þetta sagði Árný okkar við mig).
Hvernig á þetta að vera með árshátíðina? verður allt frá a-ö þar eða eigum við að skipuleggja eitthvað spennandi sjálfar? Ég hlakka svo til (jibbíí... ég kann að beygja rétt), mér finnst að við ættum að setja hér inn uppskriftina að uppáhalds kokteilnum okkar eða staupinu.
Ég mæli með russian cocaine... vodki, sítróna, kaffikorgur og sykur. Ummmmm ógó gott!!
Svo er líka gott að þeyta saman vodka, banana og klaka..... hella svo kakódufti og undanrennu útí. Endilega prófið þennan ;o)
Jæja maður ætti kannski að fara að fylgjast með þessum helv... fyrirlestri, ég er alltaf svo löt við það, núna er ég bæði búin að blogga hér og á blogginu mínu og búin að skoða fullt af íbúðum á netinu!

2 Comments:

  • At 1:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Held að það verði allt frá A-Ö, matur, skemmtiatriði og hljómsveit, fullt af skemmtilegu og fallegu fólki og við bara allt sem við þurfum:)
    Líst vel á þessa kokkteila Elín, veit samt ekki alveg með kaffikorkinn en alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, annars er ég alltaf hrifnust af Brjáluðu Bínu, beylís, kahlúa og vodka, hrist saman með fuuulllt af klaka mmmmmhh..
    kv María.

     
  • At 2:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er einmitt farin að hlakka svo til að fara á árshátíðina gaman gaman. En vitið þið stelpur er þetta eitthvað voða gala kvöld á maður að mæta í galakjól eða??? Í sambandi við kokteila þá er ég nú alveg sammála María Brjáluð Bína bara gott, svo er líka sex on the beach ferlega gott það er sem sé vodki, grenadine, appelsínusafi og ferskjulíkjör. Svo er líka voða gott að fá sér bara skot ég er búin að vera prófa ýmis skot núna undanfarið og er búin að finna 2 sem eru geggjuð það er Töfrateppið= amaretto og magic og olnbogaskot= baleyis og bananalíkjör. Jæja nóg um vín... Sjáumst hressar elsku dúllurnar mínar(°°,)
    Elva Dröfn

     

Skrifa ummæli

<< Home