Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.03.2005

Nýtt ár.... vá 2005

Hæ skutlur
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Nú er að duga eða drepast, nágranni minn er búin að panta tíma í ræktinni fyrir mig og sig, núna í jan.-febr. Eftir jólaátið, þrjár fæðingar og öll þessi ár þá held ég að tími sé kominn fyrir smá átak.... mæting er víst í skólann þann 12 en ef þið sjáið mig ekki þá er ég annað hvort orðin svona grönn HA HA eða þá ligg heima með meiðsli í einhverjum vöðvum sem legið hafa í dvala í allt of mörg ár.... En þið stelpur eigum við að taka á því í vor? Þá er bara að gera eitthvað sniðugt og kíla á það, ég opna umræðuna?

kveðjur úr Kópavoginum
Árný aldursforseti bekkjarins.

1 Comments:

  • At 5:32 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    ó já líst vel á það....við skötuhjúin vorum einmitt að byrja í átaki Í DAG!!! verðum bæði 25 ára í mars og ég ætla að vera búin að losa mig við 6 kíló og hann 10 kíló!! þannig að nú er bara að standa sig...úff..hvað er maður að setja þetta svona á ALNETIÐ!!
    ...jú kannski ágætt...meiri pressa um að standa sig ;)

    ...en allavega..hlakka til að sjá ykkur skutlur...kv Harpa

     

Skrifa ummæli

<< Home