Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.22.2005

Er engin að blogga??

Enn eitt föstudagskvöldið ég er komin í íþróttabuxurnar og sé fram á nokkra daga í þeim. Fór með strákinn minn á læknavaktina í dag og er hann sennilegast með lungnabólgu og fengum við pensilín og úðalyf, skólaárið byrjar ekki nógu vel en er ekki fall fararheill? Svo ég hangi bara á netinu og skoða mismerkilega hluti rakst þó á eitt sem mér fannst alveg ótúlega fyndið. Vinkona mín sem fer mikið á allskonar verslanir á netinu var að tala um síðu hjá innanhúshönnuði og ég kíkti á hana það sem vakti áhuga minn var myndaalbúm sem er á síðunni hjá þessum manni þar sem hægt er að skoða,,the latest gorgeus photos" mér finnst eitthvað skrítið við þetta en einnig mjög fyndið held sérstaklega upp á myndina af honum í rósóttu fötunum og finnst verst að hafa ekki getað nælt mér í eitt par fyrir bóndan í tilefni dagsins.
Kv. Bryndís

1 Comments:

  • At 5:03 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ekkert smá flottur gæji..úffff, ég svitna bara á ýmsum stöðum;)
    María.

     

Skrifa ummæli

<< Home