Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

1.02.2005

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt ár stelpur og vonandi mundu allar að sleppa prikinu í gær. Ég er stödd á Ísafirði á bólakafi í snjó hér hefur ekki sést jafnmikill snjór í mörg ár. Ég fór vestur á aðfangadag fljúgandi og þvílíkur léttir þegar vélin lenti því þegar við komum um borð tilkynnti flugstjórinn að ófært væri til Ísafjarðar en fyrst það væru að koma jól myndum við fara af stað og vélin væri með klukkutíma auka eldsneyti til að sveima úti fyrir Ísafirði. Ég var nú ekkert of bjartsýn og sá mig í anda vera lenda aftur eftir tæpa tvo tíma og hlaupa út í búð til að bjarga jólunum og hvað ætti ég að segja við Stefán þegar við myndum lenda aftur í Reykjavík? En sem betur fer gátum við lennt strax, eru jólin ekki einmitt tími fyrir kraftaverk.
Sjáumst, kv. Bryndís

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home