Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

5.31.2005

Einkunnir í nks og nn væntanlegar

Sælar stúlkur...
Ég hin óþolinmóða dreifbýlistútta sendi bæði Meyvant og Lilju póst í dag og bað þau vinsamlega um að senda mér líklegar dagsetningar á einkunnabirtingu. Frá Lilju fékk ég þau skilaboð að einkunnir yrðu komnar fyrir miðnætti í kvöld (þriðjudag). En frá Meyvant að þær kæmu í síðasta lagi á föstudag...(sem er þá kannski á föstudag eftir viku??????)
Jæja vona að þetta fari að koma í hús svo maður geti kvatt uglu vefinn í sumar!
Kv Pálína

Kaffihúsaferð

jæja þá er búið að ákveða stað og stund fyrir kaffihúsaferðina!!!
Semsagt Fimmtudagskvöld á Sólon kl:21 ég vona að sem
flestar láti sjá sig :)

5.30.2005

Einkun komin í hús!!

Það er s.s komin menn og sam einkun!
Vona að ykkur hafi öllum gangið vel og sjáumst hressar á fimmtudagskvöld:)

-knús Maja.

5.27.2005

Sumarplan!

Sælar elskurnar mínar já þessi stóratburður hefur átt sér stað ég er að blogga í fyrsta sinn verð ein ótrúlega stolt af sjálfri sér núna :) en jæja nóg með það!
ástæðan fyrir því að ég er að skrifa er að nokkrar af okkur hafa verið með þá hugmynd í kollinum í svolítinn tíma að við ættum að skella okkur saman í útileigu í sumar og spyr ég því hvernig líst ykkur á að taka frá helgina 23-24 júlí í A-bekkjar útileigu????
Einnig var hugmynd um að kíkja á kaffi hús núna e-h tíman í næstu viku og væri ekki bara fimmtudagskvöldið tilvalið? ákveðin verður svo staður og stund eftir því hvernig eftirtektirnar eru?
Jæja nú ætla ég að hætta þessu rausi látið mig endilega vita hvað ykkur finst um þessar tillögur með kærri sumar og saknaðar kveðju Ása :)

5.26.2005

Einkunn í eintölu :)

Vildi bara láta vita að Mál og hugtök einkunin var að koma inn :)
Kveðja Sigrún

Vorið er komið loksins

hæ skutlur
ég er ferlega fúl yfir því að fá ekki neina einkun, ég vil fara að fá þetta sem allra fyrst.
Hvert ertu að fara Elva ? við hinar ætlum að vera á hinni alíslensku strönd og sleikja alíslenska sól !!!
Eru kannski einhverjar fleiri að fara út?
Sorrý ég er bara að skreppa til Svíþjóðar í keppnisferð í handbolta með stóru stelpunni minni, í viku ...
höres Árný

5.25.2005

Fréttir úr sveitinni!!!

Halló elsku dúllurnar mínar(°°,) Vonandi hafið þið það nú voða fínt í sumarfríinu ykkar. Ég er komin í sveitina og hef það alveg súperfínt. Maður vaknar bara klukkan hálf átta og skellir sér í ræktina og er þar í klukkutíma fer svo að hjóla í náttúrunni geggjað stelpur. Maður át svo ógeðslega mikið í prófunum og það eru aðeins sex vikur í utanlandsferð hjá mér þannig að það er bara harkan hjá mér þangað til. Annars er nú voða lítið að frétta ég er að fara að byrja að vinna í dag, hlakka svo til að fara fá einhvern pening. Hafið það súpergott stelpur og við heyrumst.
Kossar og knús til ykkar allra
Elva Dröfn

5.24.2005

Klippi-klipp!!

Hæ elskurnar mínar,

Ætla bara að minna ykkur á það að þið getið talað við mig ef ykkur vantar lit, klip, perm o.s.frv. bjallið bara á mig.
Verið í bandi..hvort sem ykkur langar bara að spjalla eða fá klip;)
Vona að þið séuð að hafa það rosa gott hvar sem þið eruð staddar á landinu!
Stefnum svo á grill heima hjá Nínu í sumar:)

-miss u,
María.

5.23.2005

Vá mánudagur og enginn skóli

Ég er í hálfgerðu sjokki, það er mánudagur, enginn skóli og enginn lestur. Þó svo að nóg sé að gera þá finnst mér þetta eiginlega vera pínu skrítið, en njótum þess meðan allir hinir eru ennþá í skólanum.... Harpa bið að heilsa öllum þessum þáttum sem þú ert búin að vera að taka upp sl. mánuð, góða DALLAS stemmingu...
kveðja úr Kópavogi (Árný)

5.20.2005

Gaman saman....

oh hvað var nú gaman hjá okkur í gær...við klikkum aldrei..það er alltaf jafn gaman hjá okkur. Ekkert smá nice að vakna kl 11 og ekkert stress í gangi nema kannski að nú bíður manns fjall af taui og loðin íbúð!!

Nú þarf ég að fara að kæla á mér lærið sem er ansi blátt eftir snúninginn með Guðný þar sem ég lenti svo skemmtilega á borðinu ;).....úff María mín og ég sem er alltaf að henda þér svona í gólfið (sorry) hehe

Best að koma sér verkin svo maður geti strikað e-h út af to-do listanum og hent sér út í sólina ;)

takk fyrir önnina dúllurnar mínar og hlakka til að sjá ykkur í saumó í sumar!!!

Harpa(og takið eftir því að ÉG er að blogga)

5.19.2005

Ég er snillingur!!!!1

Jæja elskurnar, þetta er orðið að veruleika prófin eru búin og ekkert annað en stanslaus gleði framundan. Það er samt eitthvað svo skrýtið að vera ekki að mæta í skólann á mánudaginn og hitta ykkur. Við verðum nú að vera voða duglegar að halda sambandi við hvora aðra í sumar er það ekki?

En ég ætla aðeins að segja ykkur frá því hvað ég Elva er mikill snillingur. Elva litla ákvað í dag að prófa að kaupa sér háreyðngarkrem og prófa, ég meina ég hef oft keypt svoleiðis og gegnið bara mjög fínt að nota, nema hvað ég ákvað að prófa að kaupa eitthvað sem er alveg glænýtt og alltaf verið að auglýsa. Kem heim og ákvað að skella þessu á löppina á mér og gæti ekki verið betra hægri löppin silkimjuk. Þá er það bara vinstri, þá byrjar vesenið ég skelli kreminu á mig og eftir eina mína fer mér að svíða svona ferlega og ég auðvitað strax að þvo mér en nei ég náði að brenna hluta af kálfanum á mér. En haldið að ég hafi hætt að nota kremið ó nei. Mín ákvað að próf að setja aðeins á lærið á sér og sagan endurtók sig þannig að ég er með silkimjúka hægri löpp og eldrauða og flekkótta vinstri löpp. Gaman hjá mér grát grát en hvað gerir maður ekki fyrir Eurovison partý(°°,)

En við sjáusmt hressar í kvöld og tjúttum saman þar sem þetta er síðasta djammið okkar sem
1-A....
Kveðja Elva Dröfn

Yes

Jæja nú er draumurinn orðinn að veruleika PRÓFIN ERU BÚIN........................
sól úti og partý í kvöld þetta gæti ekki verið betra.
TIL HAMIMGJU ALLAR SAMAN.
Kveðja Guðný.

5.18.2005

Partý-Partý-Partý!!!

Jæja elskurnar nú er komin endanleg tala og verður þetta 1000.- á mann, vona að allir séu bara sáttir við það!!
Það gæti verið að það verði fleiri sem bætast við en ef það verður þá verður afgangnum eytt í snakk og svoleiðis......

Mæta með pening til mín í Skála klukkan tólf á morgun- !!

Húsið opnar 18.00 og endilega mætum snemma og horfum á Evrovision saman;)

Knús og kveðja María

Lengsti dagur ever..

Þessi dagur varla sníglast áfram, orðin eru á blaðinu en þau vilja ekki skolast inn í kollinn. Ég hef lúmskan grun um að hann sé orðin fullur.... eða þannig, við eigum svo sannarlega allar skilið mikla vorkun, þetta er ekki sanngjarnt... en er ekki mæting á morgun í LÖGGUSAL kl. 18.45
kveðja úr Kópavogi Árný

Fótbolti... :)

Ákvað að setja smá "íþróttir" á síðuna okkar en það er þessi tengill hér!
kv Sigrún

5.16.2005

Úff. Hvað á ég að gera

Hæ stelpur. Ég er með smá vandamál sem þarf að leysa og bið ykkur um aðstoð. Sko þannig er að ég sitt og er að læra (eins og þið allar að ég held) en ég næ engri einbeitingu. Ég byrja að lesa einhvern texta en þegar að ég er búin með svona tvær línur þá byrjar það. Einbeitingin fer alveg út um þúfur og í eyrunum á þér byrjar að hljóma undur fögur rödd sem að syngur "ÉG fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið". Þetta er ekki nóga gott svo að ég hristi hausinn og byrja aftur á textanum en eftir tvær línur byrjaði það aftur nema í þetta skipti hljómaði röddin svona ( Sumarið er komið va va úúúúú). Ég hristi hausinn aftur og ákvað að taka mér smá hlé til að hugsa um hvernig ég geti nú einbeit mér að því að lesa þennan texta. En viti menn ég var ekki búin að hugsa mikið um það þegar að hugur minn fór að hugsa um hvað það yrði gaman á fimmtudagskvöldið. Jæja ég ætla að reyna aftur að fara að lesa þennan texta (reyndar er ég bara orðin svolítið spennt að vita um hvaða skemmtilegheit hugurinn fer að hugsa um). En við sjáumst allaveganna hressar og kátar í prófinu á morgun.

Kveðja Guðný.

5.15.2005

Saumaklúbbur fyrsta A

Jæja gellur!!
Okkur Vilborgu, Sunnu og Elvu datt í hug að stofna saumaklúbb fyrsta A. Nú verðum við ekki saman í skólanum á næsta ári en þar sem við erum alveg æstar í að halda sambandi hver við aðra þá ákváðum við að prófa að stofna saumaklúbb. Ég ætla að halda fyrsta fundinn einhverntímann í sumar og svo heldur þetta áfram í haust og vetur og bara ALLT lífið ;o)
Þær sem vilja vera með í klúbbnum skrifið ykkur endilega í kommentakerfinu.
við sem komnar erum erum: Elín, Elva, Sunna, Bryndís, Vilborg og svo viljum við að allar þessar skemmtilegu gellur í bekknum verði með okkur í þessu.
Jæja, ég er greinilega ekki að nenna að læra meira þessa dagana, veðrið er allt of gott til þess að sitja við lestur, mig er farið að langa til þess að skoppa út í sumarið.... allavega í nokkrar mínótur áður en ég fer að loka mig inni á spítalanum restina af sumrinu.
See you og gangi ykkur vel í prófunum sem eftir eru. kv Elín

Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag.......

.....hún á afmæli hún Guðbjörg...hún á afmæli í dag:)

Til hamingju elsku Guðbjörg!!

Knús og kveðjur frá Maríu, Nínu og Jóa :)

5.14.2005

PRÓFLOKAPARTÝ!!!

Jæja þá er þetta komið á hreint elskurnar, ég var að senda ykkur póst um partýið!!
Það er mjööög mikilvægt að þið svarið mér sem fyrst um hvort þið mætið, upp á salinn að gera:)
Kíkið á þetta og sendið mér svo póst um þáttöku...
Svo fyrir þá alla hörðustu er djamm á vegum skólans á föstudagskvöld þannig að ef við verðum svakalega ánægðar að vera búnar í prófum mætum við á það líka.. hehe..!!
Gangi ykkur vel að læra
Knús og kveðja María.

Sælar skvísur

Hæ, hæ nú fer að stittast í það að við förum í sumarfrí. Ég veit fyrir vissu að það eru bara tvö próf eftir en ég er ekki með á hreynu hvaða dag ég eigi að fá mér pössun eftir prófin til að geta skemmt mér með ykkur. Er búið að plana eitthvað endalega eða er þetta allt í lausu lofti enþá. Ef eingin veit neitt en ætlar samt að gera eitthvað þá eru allar humyndir vel þegnar.
Kveðja Guðný sem getur ekki beðið eftir að fagna próflokum

5.11.2005

Brandarahornið

Jói litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans,
ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.
"Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?"
"Enginn", svarar Jói.
"Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan?
"Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Jói
Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"
Örstuttu seinna réttir jói litli upp hendi.
"Já Jói"
"Má ég spyrja þig einnar spurningar?"
"Endilega" segir kennslukonan.
"Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Jói
Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað"
"Neeiiii" segir Jói litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar"

Kv Pálína

5.10.2005

Hljómsveitin mín..

Já sælar stúlkur!
Gyða hérna.
Hljómsveitin mín er búin að vera í stúdío og fínheitum eins og þið hafið kannski tekið eftir þar sem mar er ósjaldan með gítarinn meðferðis. En já ef þið hafið áhuga að hlusta eru tvö lög á þessari síðu: www.myspace.com/chthonicismetal
Endilega hlustið á bæði lögin. Fínar melodíur inn á milli og svona. En já bandið heitir sem sagt Chthonic (borið fram þónik) og ég spila lead gítar. Semsagt aðalgítar og sem þetta fínerý. Já hef eila ekkert meira um þetta að segja haha:)
Jú hérna eru myndir af mér og strákunum mínum þegar við spiluðum á Dillon um daginn: http://www.hardkjarni.com/photo/?dir=Chthonic%2FBBTS_Dillon_gudny
Við tökum að okkur að spila í afmælum og brúðkaupum. Gangi ykkur vel í prófunum.
\m/Gyða\m/

Sælar dömur

Jæja þá eru tvö próf búin og þrjú eftir. Við erum að alveg að vera hálfnaðar. Prófið í morgun var nú frekar langt að mínu mati fyrir 30%. Þetta var mikil vinna og lítil laun. Jæja það þýðir nú lítið að sitja og kvarta. Nú er eins gott að fara að stilla einbeitinguna og koma sér í baðstofu stemmingu. Gangi ykkur vel að lesa dúllurnar mína. Guðný.

5.06.2005

Próflestur....

Sælar sælar.. :)
Vonandi skemmtið þið ykkur jafn vel við prófalestur og mér.. ég fyllist gleði og lífsnautn og skil tilgang lífsins þegar ég reyni að stauta mig í gegnum þessar svo ljúfu greinar sem eru til prófs í Menningu og samfélagi, ég hef sjaldan litið jafn vel út og ánægjan gjörsamlega geislar úr andliti mínu þegar ég lít í spegil.... (ef þið hafið ekki fattað kaldhæðnina í þessum línum mínum bendi ég á það hér og nú)...
Á svona prófdögum er margt sem maður gleðst yfir sem hefði ekki glatt mann alveg jafn mikið ef ekki væru próf. Til dæmis finnst mér núna gaman að setja í þvottavél og bíð spennt eftir að geta hengt upp þvottinn þegar hún er búin. Ég afþýddi frystinn um daginn og leirtauið fær ekki að liggja lengi í vaskinum... allt getur verið skemmtilegra en að sitja yfir bókunum og allar afsakanir sem eru mjög svo lölega samþykktar eru vel þegnar....svo fyrir utan öll svona lítil verk þá er það blessaða sjónvarpið... Nágrannar hafa til dæmis sjaldan verið jafn skemmtilegir eins og síðustu daga og ég tala nú ekki um spennuna!!!!

Vildi bara deila með ykkur smá vangaveltum og gangi ykkur vel með lesturinn :)
Kveðja Sigrún.

Allir að kíkja á póstinn sinn

Sælar skvísur.

Meyvant er aðsenda út einkunnir fyrir hópverkefnið sem að við fluttum. Vonandi gengur ykkur vel að læra fyrir prófin. Kveðja Guðný

5.04.2005

Með sól í hjarta......

......og söng á vörum :)
Svona líður mér í dag er svo ánægð að vera búin með þetta blessaða munnlega stærðfræðipróf sem mig er búið að kvíða fyrir að fara í alla önnina.
Stelpur það eru "bara" fjögur próf eftir og þá verður sko kátt í höllinni hjá okkur!!
Gangi ykkur vel að læra elskurnar, við rúllum þessu upp er það ekki???
Knús og kveðja-María:)

5.03.2005

Eitt próf búið

Jæja þá er einu prófi af fimm lokið og mér sýnist að allir hafi komið glaðir út. Þá er bara að bretta upp ermarnar og fara að skipulega sig fyrir næstu 4 próf. Gangi ykkur vel.
Kveðja Guðný.

Eitt próf búið

5.01.2005

Gjöfin hans Barkar(°°,)

Hæ hæ skvísur, ég vildi bara minna ykkur á að borga mér fyrir gjöfina hans Barkar en það var 300 krónur á mann. Þætti ofboðslega vænt um að ég fengi borgað sem fyrst. Ef það eru einhverjar sem vilja leggja inná mig þá er bankinn 0160 og inn á tékkareikning númer 8118.
Þær ykkar sem eiga eftir að borga eru:
Ragna
Gyða
Margrét
Ásta
Bryndís
Vilborg
Pálína
Ása
Arndís
Alfa
Guðrún
Kristín
Silvía
Lára
Sólrún

Kveðja Elva í stærðfærðilestri.