Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

5.06.2005

Próflestur....

Sælar sælar.. :)
Vonandi skemmtið þið ykkur jafn vel við prófalestur og mér.. ég fyllist gleði og lífsnautn og skil tilgang lífsins þegar ég reyni að stauta mig í gegnum þessar svo ljúfu greinar sem eru til prófs í Menningu og samfélagi, ég hef sjaldan litið jafn vel út og ánægjan gjörsamlega geislar úr andliti mínu þegar ég lít í spegil.... (ef þið hafið ekki fattað kaldhæðnina í þessum línum mínum bendi ég á það hér og nú)...
Á svona prófdögum er margt sem maður gleðst yfir sem hefði ekki glatt mann alveg jafn mikið ef ekki væru próf. Til dæmis finnst mér núna gaman að setja í þvottavél og bíð spennt eftir að geta hengt upp þvottinn þegar hún er búin. Ég afþýddi frystinn um daginn og leirtauið fær ekki að liggja lengi í vaskinum... allt getur verið skemmtilegra en að sitja yfir bókunum og allar afsakanir sem eru mjög svo lölega samþykktar eru vel þegnar....svo fyrir utan öll svona lítil verk þá er það blessaða sjónvarpið... Nágrannar hafa til dæmis sjaldan verið jafn skemmtilegir eins og síðustu daga og ég tala nú ekki um spennuna!!!!

Vildi bara deila með ykkur smá vangaveltum og gangi ykkur vel með lesturinn :)
Kveðja Sigrún.

2 Comments:

  • At 1:18 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert endalaust fyndin :-) Ég set ekki einu sinni í þvottavél... Ég þykist bara alltaf ætla að fara læra og enda svo á því að horfa á glósurnar.

     
  • At 12:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Nákvæmlega... ótúlegt hvað maður er eitthvað fjölhæfur líka, ég er alveg að lita á mér hárið, þrífa vaskinn, setja krakkana í bað og "lesa" í einu!!
    :) :)

     

Skrifa ummæli

<< Home