Fréttir úr sveitinni!!!
Halló elsku dúllurnar mínar(°°,) Vonandi hafið þið það nú voða fínt í sumarfríinu ykkar. Ég er komin í sveitina og hef það alveg súperfínt. Maður vaknar bara klukkan hálf átta og skellir sér í ræktina og er þar í klukkutíma fer svo að hjóla í náttúrunni geggjað stelpur. Maður át svo ógeðslega mikið í prófunum og það eru aðeins sex vikur í utanlandsferð hjá mér þannig að það er bara harkan hjá mér þangað til. Annars er nú voða lítið að frétta ég er að fara að byrja að vinna í dag, hlakka svo til að fara fá einhvern pening. Hafið það súpergott stelpur og við heyrumst.
Kossar og knús til ykkar allra
Elva Dröfn
Kossar og knús til ykkar allra
Elva Dröfn

5 Comments:
At 11:04 f.h.,
Nafnlaus said…
Takk fyrir kveðjuna. Það er gaman að heyra hvað þú hefur það gott. Héðan úr kópavoginum er líka allt gott að frétta, ég var að koma inn úr göngutúr ´með 1 árs gamla tvíbura sem að ég er að passa í dag. Kær kveðja Guðný.
At 1:09 e.h.,
Nafnlaus said…
Gaman að heyra að þú ert að hafa það svona gott í sveitinni:) Allt fínt að frétta hérna líka, ég var að koma úr sundi með vinkonu minni, synti 500 metrana og lá í pottinum að sleikja sólina og slúðra... frekar næs:)
-knús
At 4:42 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég er nú reyndar líka í sveitinni eins og stendur... lítið samt slappað af er búin að vera að pakka tómötum endalaust og svo vinna í gróðurhúsunum... það samt er líka nokkuð fínt bara.. verð að vera í garðyrkjunni svona allavega einu sinni á ári :) Fer svo til reykjavíkur aftur á morgun að vinna á hótelinu. Vonanadi hafiði það sem best.
Kveðja úr tómötunum
Sigrún
At 8:55 e.h.,
Nafnlaus said…
Sigrún endilega pakka sem mest af tómötum...namm. Hvað heitir aftur staðurinn ykkar, veit ég er búin að spyrja þig nokkru sinnum. Annars er allt fínt að frétta af mér er næstum því búin að ákveða hvernig kjóllinn fyrir stóra daginn á að líta út. Held samt að maður þurfi að fara selja sig þar sem það eru að koma mánaðarmót og maður fær engan pening!!!
At 10:03 e.h.,
Nafnlaus said…
Garðyrkjustöðin Melar heitir það það stendur Melar á límmiðanum og límmiðinn er grænn með línu af íslenska fánanum. (eru nokkrar stöðvar með þannig límmiða en efst er merkt hver er hvað og okkar er Melar) .. njóttu pakkaði því sjálf sem kemur í búiðir í þessari viku :)
Skrifa ummæli
<< Home