Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

5.10.2005

Hljómsveitin mín..

Já sælar stúlkur!
Gyða hérna.
Hljómsveitin mín er búin að vera í stúdío og fínheitum eins og þið hafið kannski tekið eftir þar sem mar er ósjaldan með gítarinn meðferðis. En já ef þið hafið áhuga að hlusta eru tvö lög á þessari síðu: www.myspace.com/chthonicismetal
Endilega hlustið á bæði lögin. Fínar melodíur inn á milli og svona. En já bandið heitir sem sagt Chthonic (borið fram þónik) og ég spila lead gítar. Semsagt aðalgítar og sem þetta fínerý. Já hef eila ekkert meira um þetta að segja haha:)
Jú hérna eru myndir af mér og strákunum mínum þegar við spiluðum á Dillon um daginn: http://www.hardkjarni.com/photo/?dir=Chthonic%2FBBTS_Dillon_gudny
Við tökum að okkur að spila í afmælum og brúðkaupum. Gangi ykkur vel í prófunum.
\m/Gyða\m/

4 Comments:

  • At 10:20 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    nokkuð flott hjá ykkur sko...leið samt best í miðju laganna þegar var öskrað sem minnst ;) hehe en Kolli þinn er ansi flottur söngvari og þú nokkuð sleip með gítarinn ......kv Harpa

     
  • At 8:13 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Váá Gyða þú ert nú meiri töffarinn:) Til lukku með þetta, kannksi ekki alveg minn tónlistarsmekkur en samt flott víst þetta ert þú og þín hljómsveit:):)

     
  • At 2:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    rosalega flott hjá þér........ söngvarinn var samt ekki alveg að gera það fyrir mig, finnst hann öskra svolítið, en lögin eru virkilega flott
    kv.Elín

     
  • At 8:39 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    Takk fyrir. En já það er nú enginn metall nema það sé öskur og hamagangur:)
    Erum komin með lögin til niðurhals á rokk.is fyrir gallharða aðdáendur;)
    http://www.rokk.is/default.asp?Flytjandi_ID=1562&sida=um_flytjanda

    -Gyða

     

Skrifa ummæli

<< Home