Úff. Hvað á ég að gera
Hæ stelpur. Ég er með smá vandamál sem þarf að leysa og bið ykkur um aðstoð. Sko þannig er að ég sitt og er að læra (eins og þið allar að ég held) en ég næ engri einbeitingu. Ég byrja að lesa einhvern texta en þegar að ég er búin með svona tvær línur þá byrjar það. Einbeitingin fer alveg út um þúfur og í eyrunum á þér byrjar að hljóma undur fögur rödd sem að syngur "ÉG fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið". Þetta er ekki nóga gott svo að ég hristi hausinn og byrja aftur á textanum en eftir tvær línur byrjaði það aftur nema í þetta skipti hljómaði röddin svona ( Sumarið er komið va va úúúúú). Ég hristi hausinn aftur og ákvað að taka mér smá hlé til að hugsa um hvernig ég geti nú einbeit mér að því að lesa þennan texta. En viti menn ég var ekki búin að hugsa mikið um það þegar að hugur minn fór að hugsa um hvað það yrði gaman á fimmtudagskvöldið. Jæja ég ætla að reyna aftur að fara að lesa þennan texta (reyndar er ég bara orðin svolítið spennt að vita um hvaða skemmtilegheit hugurinn fer að hugsa um). En við sjáumst allaveganna hressar og kátar í prófinu á morgun.
Kveðja Guðný.
Kveðja Guðný.

2 Comments:
At 3:02 f.h.,
Nafnlaus said…
Jiii hvað ég er að lenda í nákvæmlega þvi sama Guðný mín... klukkan orðin þrjú og ég er búin að vera að lesa og lesa og glósa og glósa en það gerist hreint ekki neitt, festist ekkert af þessu efni inní hausnum á mér og ég hugsa líka bara um hvað það verður gaman hjá okkur á fimmtudagskvöldið;)
En gangi ykkur bara vel á morgun...
Knús-
At 11:39 f.h.,
Nafnlaus said…
Uff hvað ég er sammála þessu, nema þetta með ég fer í fríið lag.... nú er ég pirruð út í þig því ég losna ekki við það úr kollinum ;o)
Skrifa ummæli
<< Home