Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

4.30.2005

Stærðfræði stærðfræði stærðfræði

Þar sem að ég sitt nú fyrir framan tölvuna og er að púsla saman stærfræðiverkefnunum okkar saman eins og mér hentar best að hafa þau þá ákvað ég að kíkja hérna inná og fannst það heldur einsleg aðkoma. þ.e.a.s. það eru alltaf sömu stelpurnar sem eru svo duglegar að blogga en ég veit að það eru annsi margar í bekknum sem að kíkja hérna inn reglulega. Ég tók mig til á tímabili og var voða dugleg en mér var farið að finnast þetta vera einka blogg há mér því að á þeim tíma varlítið verið að skrifa. Nú er að koma vor og við að fara allar í sitthvora áttina eftir prófin. Því legg ég til að við reynum allar að blogga allavegana einu sinni í viku eitthvað hér inn sem að við erum að gera svo að við höldum nú smá teingslum í sumar. Kveðja úr kópavogi. Guðný

4.29.2005

Takk fyrir veturinn!

Jæja þá er bara fyrsti veturinn búinn, fyrir utan prófin að sjálfsögðu :)
Við ætlum nokkrar að kíkja á bjórkvöld á Gauknum í kvöld bara svona í ca. einn bjór....
Mæting um níu leytið endilega reynum að mæta sem flestar, aðeins að hittast yfir bjór og spjalla saman fyrir átökin!
Takk kærlega fyrir veturinn þetta er búið að vera æðislegt:)
Kv. María.

4.27.2005

Síðasti skóladagurinn!!

Jæja stelpur nú er síðasti skóladagurinn að renna upp.... persónulega finnst mér það alveg hreint ótrúlegt!!!
Það er svo stutt síðan við hittumst í fyrsta bekkjartímanum og mynduðum okkur alls slonar skoðanir á hvor annarri.. hehe.. :)

En eins og þið vitið dúllurnar mínar þá ætlum við að vera með "nett" hlaðborð á föstudaginn í NKS tímanum og erum við búnar að hripa niður svona ca. hvað hver á að koma með en þetta er aðallega gert til þess að það koma ekki allir með það sama en ef þið hafið betri hugmyndir þá endilega komið með comment á það ;)



  • Alfa - ávexti
  • Gyða - Eitthvað hollt :)
  • María - rækjusalat og kex
  • Elva - köku
  • Eva - osta
  • Elín - eitthvað gott (mátt ráða)
  • Nína - túnfisksalat
  • Harpa - salat og kex
  • Guðbjörg - grænmeti
  • Vilborg - brauð og pestódós
  • Pálína - brauð og pestódós
  • Ásta - osta
  • Arndís - eitthvað (mátt ráða)
  • Lára - eitthvað (mátt ráða)
  • Sylvía - plastdiska
  • Margrét - eitthvað gott kex (ekki ritz eða þess háttar)
  • Ása - nammi
  • Bryndís - salat (grænmetis)
  • Árný - brauðterta
  • Guðný - doritos og með því
  • Ragna - vínber og ritz
  • Jónína - köku
  • Guðrún - brauð
  • Sólrún - súkkulaðikex
  • Sigrún - brauð
  • Kristín - eitthvað (mátt ráða)

Jæja dömur endilega komið með athugasemdir ef þið hafið einhverja!!!!

Þær sem "mega ráða" hvað þær ætla að koma með eru þær sem annaðhvort voru ekki í tíma í morgun eða þá þær sem voru ekki alveg vissar um hvað þær vildu koma með og ætluðu að koma okkur á óvart:)

Jæja vona að þið séuð bara sáttar við þetta..

Kveðja María.

4.23.2005

stærðfræði-dæma skipting

Jæja skvísur, þá eru spurningarnar fyrir stærðfræðina komnar á vefinn, ég spjallaði við Maríu og við ákváðum bara að ég myndi drífa í að skipta niður spurningunum á allan hópinn. Við skulum skila þessu í síðasta lagi á fimmtudaginn bara í meili til mín:elinbald@khi.is ég skal setja þetta saman og senda síðan á allann hópinn...ef einhver vill ekki vera með þá láta mig endilega vita og eins ef að einhverja vantar inná listann hjá mér. þeir sem senda mér svör fá síðan samsettan lista á fimmtudagskvöldið, en hinir fá ekkert :,(
ég ákvað að setja með linka á heimasíðurnar okkar, alltaf gaman að skoða þær

Alfa nr1
Arndís nr 2
Árný nr 3
Ása nr 4
Ásta nr 5
Bryndís nr 6
Elín nr 7
Rut aukari nr 8
Elva nr 9
Eva nr 10
Guðný nr 11
Guðrún nr 12
Gyða nr 1
Harpa nr 2
Jónína nr 3
Kristín nr 4
Nína nr 5
Pálína nr 6
Ragna nr 7
Sigrún nr 8
Sólrún nr 9
Vilborg nr 10

munum að setja númerið á spurningunni efst og eins hafa bold eða skáletrað spurninguna sjálfa og svarið í eðlilegu letri, þá verður svo miklu auðveldara að lesa úr þessu öllu saman.
kv. elín frekjugella

4.22.2005

Rétturinn hennar Arndísar.....

Sælar skvísur...

Arndís bauð okkur hópnum úr Árbæjarskóla í mat í skólanum um daginn og fengum við þennan geggjaða rétt...hún var að senda mér uppskriftina og ég heyrði í dag að það voru fleiri til í að fá þessa uppskrift....mjög spes en svooooooo gott :) kv Harpa

spænskur kjúklingur

fyrir 4-5

6 kjúklingabringur
1/2 saxaður hvítlaukur
1/4 bolli rauðvínsedik
2 msk oregano krydd þurrkað eða búnt af fersku
1 bolli saxaðar sveskjur
1 lítil dós eða krukka af grænum ólífum
1 lítil dós kapers
1 bolli ólífuolía
5-6 lárviðarlauf
salt og pipar eins og hentar
1 lítil sacla dós svart eða grænt ólífu -tapenade(má sleppa en er þó undur ljúft)
1 búnt söxuð steinselja
1 bolli hvítvín(sakar ekki ef það er spænskt katalóníu t.d Raimat)
1/2 bolli púðursykur eða hrásykur (má sleppa ef að td sykursjúkur er í mat)

skerið bringur í 3 hluta. Setjið allt í skál nema steinselju, hvítvín og sykur. Setjið kjúkling út í og látið marínerast í a.m.k. 6 klst. Allra best er þó ef þetta fær að marínerast í sólahring. Bætið svo rest við og hrærið vel saman. Setjið í eldfast mót og eldið í 45 mín við 180 gráður í ofni. Gott með hrísgrjónum og góðu snittubrauði. Katalóníuhvítvín eða vatn smellpassar með

4.21.2005

AAARRRRGGGGG!!!!!!!!!!!!!!!

Sælar skvísur og GLEÐILEGT SUMAR! :)

Ég er að verða vitlaus á að bíða eftir NN einkuninni minni, við sem eigum eftir að fá einkun áttum að fá hana senda í gær en kom ekki þá var sagt að hún ætti að koma í dag, en NEEIII það bólar ekkert á henni og þetta er svo þreytandi..... það er ekki mín sterkasta hlið að bíða svona!! Er samt búin að fá tvo pósta frá Meyvant í dag og varð svaka spennt en ekki var það svo gott að einkunin væri komin, bara útskýringar á verkefninu.. :(
Eru ekki einhverjar fleiri en ég sem eiga eftir að fá einkun????

Fyrir utan þetta "vandamál" þá er allt gott að frétta, hrikalegur léttir að vera búin að skila flestum verkefnunum og hin tvö sem eftir eru ganga bara vel held ég ;).
Ég, Kristín og Elva hittumst í morgun klukkan níu niðri í skóla og erum næstum því búnar með NN verkefnið, Nína er líka með okkur í hóp en hún er í Köben núna að kaupa "gögn" fyrir flutninginn! :)

Jæja krúttin mín vona að allt gangi vel hjá ykkur:) Sjáumst á morgun!

Knús og kveðja María.

4.19.2005

ÓÞOLANDI KANNANIR ALLTAF

Sælar var að senda skrifstofustjóra khi eftirfarandi bréf ........


Sæl og blessuð

Mér þætti vænt um ef þú gætir komið þeim skilaboðum áleiðis að við nemendur á grunnskólabraut erum orðin mjög þreytt á sífelldum könnunum um allt mögulegt er viðkemur skólanum og skólastarfinu. Gerum okkur fulla grein að þetta á að vera í okkar þágu en hinsvegar er ómögulegt að starfa undir því að fá í sífellu póstsendingar þar sem er verið að minna okkur á þessa og hina könnunina, við sjáum alveg í fyrsta sinn þegar tilkynning um könnun kemur og ákveðum þá strax hvort við viljum svara eða ekki.

Með fyrirfram þökk
Pálína Jóhannsdóttir.



Var þetta of harkalegt eða bara í stakastalagi...? Er bara að bilast á því að fá engan póst nema tilkynningar um kannanir.....og er að gera menning og samfélag ritgerð þannig að pirringurinn fór í yfirgír!!!!

Kv Pálína brjálína

4.17.2005

Tíminn hjá Gunnari Berki

Hæ stelpur
við vorum að klára verkefnið okkar (nks) niðrí skóla í dag þegar við hittum hann Gunnar Börk og bað hann um smá skilaboð til ykkar.
Það eru fjórir fyrirlestrar í fyrramálið um sérkennslu og síðan eigum við að byrja kl. 13.30 að setja upp vettvangsverkefnin okkar, hann kemur sjálfur um kl. 13.50 og hjálpar okkur. Einnig verður ekki nein kennslustund en hann ætlar samt aðeins að spjalla við okkur og ef við erum með einhverjar spurningar þá er timi til þess. Semsagt hann ætlar að hitta okkur á morgun (mánudag) kl. 13.50 og vonandi verðum við þá búnar að setja upp stórsýningu fyrir gesti og gangandi.

Jæja stelpur

Mér leiðist mikið á næturvaktinni þannig að ég ákvað að taka bloggið okkar aðeins í gegn, ég er komin með svo skelfilegt ógeð á skærgræna litnum, hann minnir mig nefninlega alltaf svo mikið á Norwalk-veiru smitaðan niðurgang.
látið mig bara vita ef þetta er ómögulegt og ég skal breyta til baka
over and out, Ella litla með rassverkinn

Nattevakten og verkefni

nú er ég á enn einni næturvaktinni og vá hvað ég er alltaf dugleg að skrifa þegar ég er að vinna, líklegast vegna þess að þá fæ ég laun fyrir það ;o) Ég var líka á morgunvakt í dag og þá datt einn maður í gólfið og meiddi sig, við náðum honum ekki upp og á endanum þurftum við að kalla á vaktmennina til að hjálpa okkur, ég þurfti að beita mér svakalega asnalega við þetta og það endaði á því að ég tognaði í bakinu...... ekki gaman, nú er ég með verk niður í rass!!

En nú er ég búin að kaupa þessa íbúð á Eiríksgötu, við fengum stigaganginn aðeins ódýrari en hann átti að vera..... en það er samt gott að fallegi kærastinn minn á skítnóg af peningum ;o) Þannig að ég er að fara að flytja inn í 97 fm íbúð með uppþvottavél eða það er að segja ef að við fáum lánin.Nú er Vífillinn minn kominn á sölu og ég þarf að reyna að laga hann svolítið til áður en ég fer að sýna hann. Það eru settar 13,5 millur á hann, það er bara ágætt ha?

úff hvað ég ætla bara rétt að vona að ég nái öllum einingunum núna í vor, það hefur ekki verið neinn tími til að lesa kennslubækurnar því það er svo mikið að gera í verkefnavinnu eins og þið vitið allar auðvitað....... þannig að allt verður frumlesið núna fyrir prófin, en það er ekki eins og ég sé ekki vön því.
Bestu kveðjur Elín

4.14.2005

BORING!!!

Jæja nú sit ég í hljóða salnum og er að reyna að skoða þetta blessaða íslenskuverkefni. Ég verð nú bara að segja að ég er enginn íslenskusnillingur en eru þið ekki að grínast þetta er svo auðvelt að það er ekki eðlilegt. Ég hélt nú að maður væri að fá eitthvað krefjandi verkefni en nei nei.

Þið voruð nú vonandi ekki að trúa því sem ég var að skrifa því ég er algjörlega lost í þessu verkefni, búin að flétta fram og til baka hvað þetta og hvað hitt er. Búin að vera í tvo tíma að reyna að svara tveimur spurningum. Ég hata íslenka málfræði því ég kann hana ekki:(

Jæja best að fara kíkja betur á þetta, það verður greinilega gaman hjá mér að læra fyrir þetta skemmtilega próf, einhver sem kemue með mér í prófið í águst?????

Gangi ykkur vel með öll verkefnin ykkar(°°,)

Kveðja Elva Dröfn

4.08.2005

Skólinn okkar

Það er svo notalegt að setjast hérna niður í KHI, eftir langa viku í grunnskóla. við erum hérna nokkrar að vinna að ritgerðinni í Menning og samfélag og skólinn er nánast tómur..

sakna ykkar, sjáumst á þriðjudag..
kveðja Árný

4.07.2005

Halló stelpur...

Ég sé að einhver er að setja inn nokkra brandara hérna inn þannig að ég ákvað að koma með einn hérna líka....

Woman was helping her husband set up his computer, and at the appropriate point in the process, told him that he would now need to enter a password.. Something he will use to log on. The husband was in a rather amorous mood and figured he would try for the shock effect to bring this to his wife's attention. So, when the computer asked him to enter his password, he made it plainly obvious to his wife that he was keying in P... E... N... I... S. His wife fell off her chair laughing when the computer replied:***PASSWORD REJECTED. NOT LONG ENOUGH***


Kveðja Elva Dröfn

Lífið er erfitt

Hér er saga einnar sem er nýlega orðin 43 ára:

Þegar ég var 16, vonaðist ég til að einhvern daginn myndi ég eignast
kærasta.

Þegar ég var orðin 18 eignaðist ég kærasta, en það var engin ástríða.
Svo ég ákvað að finna mér ástríðufullan náunga með tilfinningu fyrir
lífinu og tilverunni.

Á háskólaárunum var ég með ástríðufullum strák, en hann var of
tilfinningasamur. Allt var neyðarástand í hans augum. Hann grét og
hótaði að drepa sig. Ég fann fljótlega að mig vantaði mann sem væri
traustur og jarðbundinn.

Loks, þegar ég var orðin 25 hitti ég mjög jarðbundinn mann, en hann var
leiðinlegur. Hann var algjörlega útreiknanlegur og varð aldrei spenntur
yfir einu eða neinu. Lífið varð svo leiðinlegt að ég ákvað að reyna að
finna mér mann sem að væri spennandi.

Þegar ég var 28 fann ég mjög spennandi gaur, en ég gat engan veginn
haldið í við hann. Hann rauk úr einu í annað og gat aldrei verið lengi á
sama stað eða verið lengi með sömu áhugamálin. Hann framkvæmdi allt sem
honum datt í hug, hvort sem það var hættulegt eða fífldjarft og daðraði
við allt sem hreyfðist. Hann var skemmtilegur en áttavilltur. Þannig að
ég ákvað að reyna að finna mann með metnað.

Þegar ég var orðin 31 fann ég loksins gáfaðan mann með metnað. Hann var
með fæturna á jörðinni og við giftum okkur. Hann var svo metnaðarfullur
að hann skildi við mig, hirti allt sem ég átti og stakk af með bestu
vinkonu minni.

Svona er lífið... það er fótbolti

Hennar hlið á gærkvöldinu Hann var í furðulegu skapi í gærkvöldi. Við höfðum ákveðið að hittast á kaffihúsi yfir einum drykk eða svo. Ég hélt að það væri mér að kenna, þar sem ég var heldur sein vegna þess að ég var að versla með stelpunum og gleymdi mér aðeins. Hann minntist samt ekkert á það. Okkur gekk ekkert að ná saman, svo ég hélt að það yrði kannski þægilegra að vera einhverstaðar þar sem við gætum verið ein, svo við fórum á mjög rómantískt veitingahús. En hann var ennþá í ferlega furðulegu skapi. Ég reyndi að hressa hann og var farin að spá í hvort að þetta væri bara ég eða hvort eitthvað alvarlegt væri í gangi. Ég spurði hann, en hann svaraði því neitandi. En ég var ekki viss. Allavega, á leiðinni heim, þá sagði ég honum hvað ég elskaði hann heitt. Hann setti hendina utan um mig, en svaraði mér ekki. Ég veit ekki hvað í fjandanum það á að þýða, því ég var nú kannski að vonast til að hann myndi segja að hann elskaði mig líka eða eitthvað. Við komum loksins heim og ég var farin að spá í hvort hann ætlaði að dömpa mér. Ég reyndi að fá hann til að tala, en hann kveikti bara á sjónvarpinu. Þá gafst ég upp og fór í rúmið. Mér til mikillar undrunar þá kom hann upp til mín um það bil 20 mínútum seinna. Við gerðum það, en hann virtist ennþá vera utan við sig. Eftir sexið; dauðlangaði mig að hundskamma hann, en ég grét mig bara í svefn. Ég veit ekki hvað ég á að gera lengur. Ég meina, í alvöru. Ég held að hann sé farinn að halda framhjá mér. Hans hlið á gærkvöldinu: Manchester tapaði. Ég fékk þó að ríða.

4.06.2005

Sex syngjandi sælar stúlkur....

Já það er bara alveg glimrandi skemmtilegt að vera í þessu verknámi, ég er búin að eignast einn 12 ára aðdáanda sem knúsar mig og kyssir í hvert sinn sem ég kem nálægt honum.... algjör dúlli!
Þetta er mjög lærdómsríkt að vera svona sex saman, fullt af misskilningi og ruglingi kemur upp, en hingað til höfum við alltaf getað unnið úr honum.
Gunnar Börkur ætlaði að koma í dag að kíkja á okkur, en hann skrópaði, talaði við viðtökukennarana okkar og þær sögðu honum bara að slaka á þetta gengi allt vel... JIBBÍÍ
En aftur að íbúðinni minni, ég geri alltaf allt með trompi þegar ég byrja, núna eru loksins listarnir komnir á gólfin og ég er búin að standa sveitt við að skafa ónýta teppið að stiganum, ætla reyndar líka að mála smá, skella á nýja teppinu og skipta um útidyrahurð áður en ég flyt inn :o)
Í gær skrapp ég svo upp á Eiríksgötu að skoða aðra íbúð sem mig langar að kaupa, hún er líka þriggja herbergja en miklu stærri eða um 97fm með geymslu og er öll nýuppgerð...
En jæja, back to the study, hlakka mikið til að sjá ykkur upp í KHÍ í næstu viku
kv. Elín

4.02.2005

handbolti go girls

hæ stelpur
ég óvart kveikti á sjónvarpinu í dag (laugardag) og viti menn þá sá
ég tvær A bekkjar dömur í handbolta... þær Ástu (víking) og Guðbjörgu
(ÍBV) flottar stelpur, góður leikur hjá ykkur báðum, flott mörk, ætla
að klára að horfa á leikinn ......
kv Árný handbolta fan

handbolti go girls

4.01.2005

Kennsla og fleira

Jæja skvísur, hvernig gekk fyrsta vikan í verknáminu hjá ykkur??
Mér finnst alveg ótrúlega skemmtilegt og held að við í Langó séum bara alveg ótrúlega heppnar. Við erum með 64 krakka á eftir okkur en þau eru öll eitthvað svo skemmtileg og góð. Svo eru kennararnir sem tóku á móti okkur bara gull af mönnum.... ja eða konum ef út í það er farið hehehe.
Við fundum daglega eftir kennslu þar sem þær segja okkur hvernig dagurinn hafi farið, hvað var gott og hvað var slæmt....... reyndar gargaði ein þeirra á hlaupum út úr stofunni að við værum frábærar og æðislegar, svo hengdi hún sig í hurðarhúninum, réttara sagt þá flækti hún hálsmens-lyklakippuna í hurðarhúninum og skellti hurðinni, hékk svo þar í nokkrar mínútur áður en hún gat opnað aftur til að bjarga sér úr klípunni. En við þessar frábæru og æðislegu, tókum auðvitað ekki eftir neinu og hjálpuðum henni þar af leiðandi ekki neitt hehehehe
En ég verð bara að monta mig um annað hérna, ég er sko að kafna úr gleði og spennu þessa dagana, því að á morgun er ég loksins að fá íbúðina mína aftur HÚRRRRRAAAA.... æ kant veit!! Ég ætla bara að skipta um teppi á stiganum hjá mér og skella á parketlistunum og svo er ég bara flutt inn aftur........ ég lofa að halda nú smá bekkjarpartý einhverntímann, verst að ég verð líklegast að hleypa ykkur inn í hollum þar sem íbúðin er svo lítil.
Kveðja frá Elínu ofurspenntu