Nattevakten og verkefni
nú er ég á enn einni næturvaktinni og vá hvað ég er alltaf dugleg að skrifa þegar ég er að vinna, líklegast vegna þess að þá fæ ég laun fyrir það ;o) Ég var líka á morgunvakt í dag og þá datt einn maður í gólfið og meiddi sig, við náðum honum ekki upp og á endanum þurftum við að kalla á vaktmennina til að hjálpa okkur, ég þurfti að beita mér svakalega asnalega við þetta og það endaði á því að ég tognaði í bakinu...... ekki gaman, nú er ég með verk niður í rass!!
En nú er ég búin að kaupa þessa íbúð á Eiríksgötu, við fengum stigaganginn aðeins ódýrari en hann átti að vera..... en það er samt gott að fallegi kærastinn minn á skítnóg af peningum ;o) Þannig að ég er að fara að flytja inn í 97 fm íbúð með uppþvottavél eða það er að segja ef að við fáum lánin.Nú er Vífillinn minn kominn á sölu og ég þarf að reyna að laga hann svolítið til áður en ég fer að sýna hann. Það eru settar 13,5 millur á hann, það er bara ágætt ha?
úff hvað ég ætla bara rétt að vona að ég nái öllum einingunum núna í vor, það hefur ekki verið neinn tími til að lesa kennslubækurnar því það er svo mikið að gera í verkefnavinnu eins og þið vitið allar auðvitað....... þannig að allt verður frumlesið núna fyrir prófin, en það er ekki eins og ég sé ekki vön því.
Bestu kveðjur Elín

2 Comments:
At 11:33 e.h.,
Fyrsti A 2004 said…
Flott hjá þér að kaupa uppþvottavél og fylgir þá íbúð með?
ein ljós (Árný)
At 11:48 e.h.,
Nafnlaus said…
jamm, ég ætlaði sko að kaupa eldavél með uppþvottavél en það breyttist í íbúð með uppþvottavél hehehe
Skrifa ummæli
<< Home