Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

4.01.2005

Kennsla og fleira

Jæja skvísur, hvernig gekk fyrsta vikan í verknáminu hjá ykkur??
Mér finnst alveg ótrúlega skemmtilegt og held að við í Langó séum bara alveg ótrúlega heppnar. Við erum með 64 krakka á eftir okkur en þau eru öll eitthvað svo skemmtileg og góð. Svo eru kennararnir sem tóku á móti okkur bara gull af mönnum.... ja eða konum ef út í það er farið hehehe.
Við fundum daglega eftir kennslu þar sem þær segja okkur hvernig dagurinn hafi farið, hvað var gott og hvað var slæmt....... reyndar gargaði ein þeirra á hlaupum út úr stofunni að við værum frábærar og æðislegar, svo hengdi hún sig í hurðarhúninum, réttara sagt þá flækti hún hálsmens-lyklakippuna í hurðarhúninum og skellti hurðinni, hékk svo þar í nokkrar mínútur áður en hún gat opnað aftur til að bjarga sér úr klípunni. En við þessar frábæru og æðislegu, tókum auðvitað ekki eftir neinu og hjálpuðum henni þar af leiðandi ekki neitt hehehehe
En ég verð bara að monta mig um annað hérna, ég er sko að kafna úr gleði og spennu þessa dagana, því að á morgun er ég loksins að fá íbúðina mína aftur HÚRRRRRAAAA.... æ kant veit!! Ég ætla bara að skipta um teppi á stiganum hjá mér og skella á parketlistunum og svo er ég bara flutt inn aftur........ ég lofa að halda nú smá bekkjarpartý einhverntímann, verst að ég verð líklegast að hleypa ykkur inn í hollum þar sem íbúðin er svo lítil.
Kveðja frá Elínu ofurspenntu

1 Comments:

  • At 10:10 e.h., Blogger Fyrsti A 2004 said…

    úúú gleði gleði, til lukku með það að vera að fá íbúðina aftur..hlakka til að fá að koma í partý ;)

    en annars gengur alveg glimrandi vel hjá okkur í árbæjarskólanum allavega segja krakkarnir að það hafi aldrei verið svona gaman í skólanum áður ;)

    Hlakka til að hitta ykkur aftur...Harpa

     

Skrifa ummæli

<< Home