Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

4.21.2005

AAARRRRGGGGG!!!!!!!!!!!!!!!

Sælar skvísur og GLEÐILEGT SUMAR! :)

Ég er að verða vitlaus á að bíða eftir NN einkuninni minni, við sem eigum eftir að fá einkun áttum að fá hana senda í gær en kom ekki þá var sagt að hún ætti að koma í dag, en NEEIII það bólar ekkert á henni og þetta er svo þreytandi..... það er ekki mín sterkasta hlið að bíða svona!! Er samt búin að fá tvo pósta frá Meyvant í dag og varð svaka spennt en ekki var það svo gott að einkunin væri komin, bara útskýringar á verkefninu.. :(
Eru ekki einhverjar fleiri en ég sem eiga eftir að fá einkun????

Fyrir utan þetta "vandamál" þá er allt gott að frétta, hrikalegur léttir að vera búin að skila flestum verkefnunum og hin tvö sem eftir eru ganga bara vel held ég ;).
Ég, Kristín og Elva hittumst í morgun klukkan níu niðri í skóla og erum næstum því búnar með NN verkefnið, Nína er líka með okkur í hóp en hún er í Köben núna að kaupa "gögn" fyrir flutninginn! :)

Jæja krúttin mín vona að allt gangi vel hjá ykkur:) Sjáumst á morgun!

Knús og kveðja María.

3 Comments:

  • At 8:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gleðilegt sumar sömuleiðis :)

    Þú ert ekki ein um það að vera óþolinmóð. Ég er hreinlega að tapa mér yfir þessu. Þetta eru fáranleg vinnubrögð, hann sagði við okkur í síðustu viku að við myndum fá þetta eftir helgi... það er mánudagur og kannski þriðjudagur. Núna er fimmtudagur, hann lofaði því líka í gær að þetta yrði komið til allra fyrir hádegi í dag en ekkert bólar á þessu ennþá. Hann á heldur ekki að byrja senda út einkunnir fyrr en allar einkunnirnar eru tilbúnar, sem er greinilegt að er ekki því sumir fengu einkunn á þriðjudag!!!

     
  • At 9:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er föstudagur 22.04 og kl er 21.19 og enn hef ég ekki fengið einkunn én hef hins vegar fengið marga pósta frá herranum!!
    kv Arndís
    eða bara Dísa skvísa

     
  • At 10:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hey Dísa skvísa ertu búin að fá ummælin frá viðtökukennaranum?? Það var sko ekki leiðinlegt að lesa yfir það... bara frábært:):):)
    Góða helgi..
    Knús Maja pæja;)

     

Skrifa ummæli

<< Home