12.31.2004
Jæja þá er jólasteikin runnin niður og undirbúningur fyrir áramótin í fullum gangi. Ég er búin að eyða jólafríinu frá 22 des í að vera veik eða að einhver úr fjölskyldunni er búin að vera veikur. Því hef ég ekkert farið um háttíðina nema í eitt jólaboð sem að ég slapp í en yngsta stelpan var orðin veik þegar að við komum heim. Jæja ég ættla að sprengja þessi veikindi upp klukkan tólf en annars finnst mér börnin bara tillitsöm að nota þessa frídaga í þetta meira að segja var ég búin að skrá yngstu sem er á leikskóla í frí á milli jóla og áramóta. Hafið þið það sem allra best um hátíðirnar og muniði eftir að sleppa prikunum þegar að þið eruð að skjóta upp flugeldunum. Mig er farið að hlakka til að sjá ykkur allar aftur. Kveðja Guðný.
12.29.2004
þjófóttir nemar
Hæ hæ gellur!
Takk kærlega fyrir síðast og gleðileg jól og vonandi hafið þið haft það ljúft um jólin. Talandi um þjófnað þá er ég farin að hallast að því að kennaranemar séu þjófóttir upp til hópa. Einhverjar muna eflaust eftir því þegar úlpunni minni var stolið um daginn á útgáfuhófinu ég var ekki svo lítið pirruð yfir þessu helv..... pakki,, þvílík ósvífni,,. Er ekki að ná því að fólk sé svona óheiðarlegt sérstaklega ekki lítill hópur af fólki sem kannast við hvort annað. En kannski voru þetta gestir með nemunum sem rændu úlpunnni og kápunni hennar Bryndísar. Vona það eiginlega svo nemarnir fari ekki í skólana seinna þjófóttir kennarar. Sérstaklega barnanna vegna svo þau megi ekki eiga von á því að kennarinn þeirra sé búin að ræna yfirhöfninni þeirra eða dóti úr pennaveskjunum þeirra til þess að gefa börnunum heima:) En það er gott að við allar bætum upp flóru landsins með heiðarleika og bros á vör. Sjáumst hressar á nýju ári og hafið það gott um áramótin. Endilega sendið mér sms ef þið fáið einkunnir nenni ekki lengur að vera alltaf að kíkja í tölvuna :) . Bæ bæ Nína.

12.22.2004
Kápuþjófur í KHÍ
Sælar stelpur og takk fyrir síðast harðsperrurnar eftir allan dansinn eru rétt að hverfa, maður leit nú út eins og belja á svelli miðað við hana Hörpu dancing queen. Litlu munaði þó að kvöldið hefði frekar slæman endir fyrir mig þar sem ég var á leið heim í alltof stóum karlmannsjakka og með eitt tár í augunum yfir því að vera búin að tapa kápunni minni. Málið var semsagt að ég hafði sett kápuna mína og skinnið sem ég var með um hálsinn í fatahengið og svo þegar við Elín hugðum á heimferð og fórum að sækja kápurnar okkar var mín horfin. Við leituðum um allt fatahengi með dyggri aðstoð Maríu systur hennar Elínar en eftir mikla leit ákváðum við að gefast upp og tókum jakka úr óskilamunum sem voru í ruslapokum undir borðinu og ég skildi koma aftur daginn eftir skila ljótu druslunni sem ég var komin í og athuga hvort kápan mín hefði fundist. Þegar ég er að labba upp tröppurnar lít ég til baka og sé þá strák standa við fatahengið (og þar sem ég tek eftir öllu) sé ég eitthvað hvítt(skinnið) ég fer til hans og þá heldur hann á kápunni minni. Ég spyr hann hvað í ósköpunum hann sé að gera með kápuna mína hann segist vera að geyma hana fyrir stelpu sem er í fatahenginu að gramsa í fötum þar og hafði verið þar þegar við vorum að leita að kápunni minni og hafði rifið í veskið hennar Maríu. Gellan var að leita sér að drasli til að stela og var komin með kápuna mína og annan jakka og var að skima eftir fleiru. Þvílík ósvífni að vera búin að stela kápunni minni og leita svo bara af meiru á meðan við erum þarna ég að lýsa kápunni fyrir stelpunum. Henni var hennt út vonandi var hún ekki í jakka og er núna heima hjá sér með lungnabólgu og ef hún er í skólanum vonandi féll hún í prófunum. Við fórum svo og fengum okkur pylsu og ég röflaði um það allan tíman hvað ég var fegin að hafa fundið kápuna aftur. Ég á pantað far vestur á aðfangadag svo endilega biðjið veðurguðina um gott veður. Gleðileg Jól og hafið það gott og það þarf örugglega ekki að kíkja á Ugluna klukkan sex á aðfangadag.
Kv. Bryndís
Kv. Bryndís
12.21.2004
Féttir frá kópavogi
Hæ skvísur nú er síðasti hausinn farin og ég komin í langþráð jólafrí. Þá er best að fara að klára að versla jólagjafir og skúra já og þvo kannski smá þvott sem að safnaðist upp í prófunum. Ég held að mér eigi ekki eftir að leiðast neitt í "friinu" (réttar gæsalappir voru ekki á boðstólum). Það fer reyndar heilmikil tími í að kíkja á Uglu og að athuga hvort að einhverjar einkunnir séu komnar. Jæja hafið þið það sem best í fríinu og gleðileg jól. Kveðja Guðný.
Jólakort :)
Elsku þið allar
Gleðileg jól og farsælt komndi ár og takk fyrir það liðna.
Hafið það sem allra best um hátíðirnar og hittumst svo feitari og sælari en áður á næsta ári.
Jólakveðja
Sigrún :)
Gleðileg jól og farsælt komndi ár og takk fyrir það liðna.
Hafið það sem allra best um hátíðirnar og hittumst svo feitari og sælari en áður á næsta ári.
Jólakveðja
Sigrún :)
12.18.2004
Jólaballið!!
Sælar skvísur!!
Takk fyrir síðast þið sem voruð með í gær:) Mikið var nú gaman hjá okkur...
Við mættum til hennar Bryndísar á bilinu hálf sjö til ellefu, borðuðum pizzu saman og svo var farið í drykkjuleik, Jónsi, Birgitta, Hemmi Gunn., Gísli Marteinn, Monica Lewensky og fleiri komu þar við sögu... og já líka Pamela Anderson ekki má gleyma henni;) eina vandamálið í drykkjuleiknum var að það var svo lítið vín eftir!!! En þá skelltum við okkur
á Hverfisbarinn og þar hittum við okkar ástkæru skólafélaga, mikið dansað, drukkið og hlegið:) Nú er ég komin í sveitina til mömmu og pabba og var að föndra jólakort með familíunni í dag ekki seinna vænna!!
Takk fyrir önnina elsku bekkjarsystur mér finnst voða skrítið að vera ekki að fara í skólann á mánudaginn.. en kærkomið frí, nú knúsum við bara kallana og krakkana og sjáumst svo í janúar:)
Bryndís takk fyrir boðið í gær!!
Gleðileg jól elskurnar!
knús og kveðja María.

12.17.2004
Leti í hámarki
Blessaðar...ég ætla að bara að láta heyra í mér. Ég ætlaði að mæta í kvöld til ykkar en ég var að vinna og verð að vinna í fyrramálið og svo lenti ég í smá óhappi í gær.... brenndi mig pínulítið... engar áhyggjur það var ekki ljósabekkur í þetta skiptið núna var það heitt vax :) gerði þetta um nótt þannig ég var upp á slysó að reyna að fá eithvað við þessu þar sem öll hel#$% apótekin voru lokuð... en allavega vona að þið hafi skemmt ykkur vel og heyri í ykkur seinna.
Kveðja Sigrún :)
Kveðja Sigrún :)
Ryksugan á fullu
Jæja núna er klukkan hálf sex og ég var að koma heim á eftir að laga til ekkert verið gert af því í prófatörninni. Best að skella einhverju hressandi á fóninn og setja upp hanskanaog hlaupa um íbúðina eins og hvítur stormsveipur (ætli ég eigi Ajax) hlakka til að sjá ykkur eftir einn og hálfan tíma...............úff
kv. Bryndís
kv. Bryndís
12.16.2004
Eitthvað hefur verið kvartað yfir leiðbeiningunum um hvar ég eigi heima, þær séu eitthvað ónákvæmar??????? En þið eruð allar velkomnar í Barmahlíð 27 það er gengið inn bakatil við vorum að tala um 7 og myndum kannski panta okkur eitthvað að borða saman. Hlakka til að sjá sem flestar.
kv Bryndís
kv Bryndís
Jólafrí!!!
Jæja stelpur trúið þið þessu, önnin er búin, prófin eru búin!!! Mér finnst þetta alveg ótrúlegt en get varla hætt að brosa ég er svo kát. Ég á að vísu eftir að skrifa 3 leiðarbækur en mér finnst það nú bara smámál miðað við það sem á undan er gengið, þvílík törn!!
Við vorum nokkrar bekkjarsystur upp í skóla til fjögur í nótt að lesa undir þetta blessaða próf, en það borgaði sig held ég bara:) Það var líka svo gaman hjá okkur allar komnar með svefngalsa og létt pirraðar, eða allavega sumar;) en það má alveg!! Stúdentaráð labbaði um skólann og gaf öllum sem voru að lesa bjór, það var nú ekki verra;)
Jæja ætla að reyna að fá mér smá kríu og svo kannski að þrífa heimilið ekki veitir af...
Sjáumst svo bara hressar og kátar annað kvöld og fögnum því að vera búnar í prófum. Ætlið þið ekki allar að koma???
knús og kveðja María

12.15.2004
Síðustu metrarnir og svo ...........
Jæja þá eru nokkrir klukkutímar í það að önnin klárist, reyndar á ég eftir að skrifa þrjár leiðarbækur úff........en það verður nú lítið mál. Þá er næsta mál á dagskrá jólaballið. Ég hef ákveðið að opna dyrnar hjá mér fyrir ykkur(bekkjarsystrum mínum) á föstudaginn fyrir jólaballið ef einhver áhugi er fyrir því. Ég bý miðsvæðis í hálfniðurgrafinni íbúð(kjallara) það er rauð og blá jólasería í stofuglugganum einnig er þar gul önd úr keramiki, gengið er inn bakatil. Sjáumst
Bryndís
Bryndís
12.14.2004
Eitt stykki eftir.....
Jæja þá er prófið í þroskasálfræðinni búið...... vona að öllum hafi gengið glimrandi vel.
Ég fór heim eftir prófið í sturtu og svo beint aftur upp í skóla að læra (kom reyndar við og keypti magic í lítratali). Setti mig í stellingar, prentaði út glósur og BAMMMM.......
Ég steinrotaðist fram á borðið í fína herberginu mínu niðri á bókasafni. Klukkan sex kom systir mín síðan til mín og fékk kast, ég var hrjótandi!!! hólí smólí og hjálpi mér allir heilagir, ég svaf af mér fokking daginn!
Jæja nú er ég öll krumpuð í framan eftir peysuna og gormana á stílabókinni og sit hér í skólastofu H-208 alein og leiðist og er ekki byrjuð að læra :o(
Jæja ég er þá bara byrjuð að læra og vonast til þess að sjá einhverja af ykkur hér í kvöld!!

12.10.2004
Próf og jól
Sælar,
þetta virðist ætla að ganga, þessi próf. Allaveganna þá klárast þau, þá meina ég klárast, áður en ég vissi var tíminn útrunninn í prófinu hjá honum Baldri. Langt próf á stuttum tíma, ég skrifaði látlaust allan tímann samt vantaði mig allaveganna um 30 mín til að gera þetta almennilega. Nú er bara að halda áfram og vona að hin tvö verði sanngjörn þe lengdin á prófunum. Verð víst að reyna að lesa smá, þetta gengur voða hægt, mér finnst eins og ég sé að lesa símaskránna öfugt með fullt af fullyrðingum um hvað hinn og þessi gerði. Það er alveg á hreinu að þessir kallar voru allir snillingar, meira og minna. Látið í ykkur heyra um helgina..
kram og knús
þessi sem er í leti.

12.08.2004
Minnistöflur
Jæja nú ætla ég að láta verða að því að blogga þó svo ég hafi ekkert merkilegt að segja og orðin frekar andlaus eftir að hafa lesið íslensku greinar í nokkra tíma. Eina sem þær gera fyrir mig er að ég verð verri í stafsetningu eftir að hafa lesið grein Halldórs Laxnes þar sem ég er með svo gott sjónminni þrátt fyrir að ég sé ekki með neitt minni. Sem minnir mig á það að ég ætlaði að minna ykkur á að taka minnistöflur fyrir prófin "the Memory pills. Í allan vetur hef ég gleymt að taka þessar minnistöflur og þá er nú mikið sagt. Ég hef janvel munað eftir þeim og sett þær í vasann og ákeðið að taka þær í skólanum en gleymt því. En svo hafa þær hlaðist upp þar og svo þegar ég hef fundið fyrir þeim í vasanum þá hef ég bara horft á þær og hugsað: Hvaða andskotans töflur eru þetta og hent þeim. Joke, en næstum því svona. En allavega þá ætla ég umfram allt að reyna að muna eftir þeim, svo ég geti munað allt það efni sem ég er að fara að frumlesa bæði fyrir þroskann og innganginn.
Nóg af bulli í bili bæjó Nina
P.s. Gangi ykkur öllum vel á prófunum. :)
Nóg af bulli í bili bæjó Nina
P.s. Gangi ykkur öllum vel á prófunum. :)
Hvort lýst ykkur betur á 1/4 eða 3/6
Jæja þá er stærðfræðiprófið búið og allir komin á kaf í íslenskuna. tölfræðilega séð erum við búin með 1/4 af prófunum en ef að við tökum öll fögin okkar þá voru þau sex. Leiðarbók og heimasíða eru farin svo að mér lýst betur á að segja að við séum búnar með 3/6 svo að við erum í raun hálfnaðar. jibbí. Kv. Guðný.
ps. það eru bara átta sólahringar þangað til við erum búin í prófum......
ps. það eru bara átta sólahringar þangað til við erum búin í prófum......
12.07.2004
Hittingur á morgun!!!
Jæja stelpur!
Við ætlum að hittast hérna gellurnar úr bekknum í fyrramálið klukkan 9 og spjalla aðeins um mál og rit.... svona undirbúningur fyrir prófið.
Endilega mætið sem flestar!!
Vonandi gekk öllum vel í stærðfræðinni, ég var að monta mig við systur mína hvað síðasta dæmið hafði verið létt og uppgötvaði þá mér til mikillar skelfingar að ég gerði það vitlaust...... ekki gaman!!
Kveðja Lína Fína (Elín)

12.03.2004
Hjátrú í próflestri!!
Hæ elskurnar!!
Varð að koma með sögu um hjátrú í próflestri svona í kjölfar bloggsins hennar Elínar.
Einn skólafélagi okkar var að segja mér hvernig rakstur karla tengist hjátrúnni, eins og oft er talað um, að þeir raki sig ekki meðan á keppnum stendur og annað því um líkt.... þið skiljið vonandi hvert ég er að fara... en allavega vildi þessi skólafélagi okkar meina það að það mætti ekki raka sig í miðjun próflestri ekki fyrr en eftir hvert og eitt próf, vegna þess að viskan safnast þar fyrir eins og í heilasellunum (s.s í skegginu) en það væri allt í lagi að raka sig eftir hvert og eitt próf þvi að þá væri maður bara að hreinsa til, síðan á að byrja að lesa undir næsta próf og ekki raka sig á meðan o.s.frv. Þannig að ætli það sé ekki best að bíða með að fjarlægja "bushinn" fram yfir próf... mætum kannski bara allar "bush" lausar á jólaballið ;) hehehe...
knús og kveðja
María.

Allar saddar og sælar.
Jæja þá er síðasti skóladagurinn búin og allir pakksaddir eftir að hafa farið á kringlukrána. Vonandi eru þið ekki eins þreyttar og ég og farnar að læra en ég nenni ekki að byrja fyrr en á morgun. nýtið þið nú helgina vel og við sjáumst hressar í óendalegri stærðfræði á mánudaginn.
Kveðja Guðný.
p.s ég held að ég sé orðin yfir stressuð svo að ég get ekki gert neitt.
Kveðja Guðný.
p.s ég held að ég sé orðin yfir stressuð svo að ég get ekki gert neitt.
Andvarp og geisp
Nú fara prófin að byrja og ég þarf að drífa mig að fara að læra undir þau. Ekki gaman að neyðast til að frumlesa allt helvítis efnið á nokkrum dögum en það er víst of seint að ætla að breyta því héðan í frá!!Ég þarf líka að kaupa jólagjafir fyrir liðið úti í ameríkunni, var búin að steingleyma því. Hvað er hægt að gefa könum í gjöf nú til dags? Ég var að spá í að senda þeim nýjan forseta, já eða bara smá part af heila, þarf ekkert að vera neitt flottur heili, bara einhver sem er ekki stríðsóður, ekki geðveikur og ekki heimskur... það eru allir heilar betri heldur en heilinn hans Bush!!Það kom ónefnd manneskja til mín um daginn og krafðist þess að við myndum raka okkur að neðan, ég átti að láta alla vita, bæði karlmenn og konur.........ástæðan, já við viljum ekki hafa neinn helvítis bush þarna niðri hehehe.
Kveðjur Elín (Lína Fína, systir Nínu Fínu)
Hittumst hressar og "bush"lausar á mánudaginn, eigiði góða helgi
Kveðjur Elín (Lína Fína, systir Nínu Fínu)
Hittumst hressar og "bush"lausar á mánudaginn, eigiði góða helgi
12.02.2004
Síðasti skóladagurinn á morgun!!!
Sælar skvísur!!
Í tilefni af því að það er síðasti skóladagurinn á morgun ætlum við út að borða allar saman eins og þið flestar ef ekki allar vitið:)
Vildi bara minna á það, Kringlukráin strax eftir bekkjartímann...:)
Kv. María
p.s. vil líka benda á að þið sem komið og kíkið á síðuna okkar að muna að skrifa í gestabókina ( þá er ég að meina alla sem eru ekki í bekknum) ;)

12.01.2004
Stærðfræðisnillingarnir
Senn líður að prófum, því miður finnst mér, Elvu alla vega. Elín getur ekki beðið eftir að prófin koma því henni finnst svo gaman að læra fyrir
þau(°°,) Við erum búnar að vera hérna í skólanum í allan dag ásamt Nínu og Maríu að læra fyrir Inngang að uppeldisvísindum og svo glugguðum við aðeins í Mál og rit. Erum við ekki búnar að vera duglegar???? Í rauninni ætluðum við að koma hérna í dag til að fara að læra fyrir stærðfræði og mættum hérna galvaskar með stræðfræðidótið okkar skelltum því á borðið og fórum að slúðra. Þannig að ekki varð mikið um stærðfræði lestur í dag. Munið bara að við viljum engan Bush
Kveðja Elva og Elín