Jólafrí!!!
Jæja stelpur trúið þið þessu, önnin er búin, prófin eru búin!!! Mér finnst þetta alveg ótrúlegt en get varla hætt að brosa ég er svo kát. Ég á að vísu eftir að skrifa 3 leiðarbækur en mér finnst það nú bara smámál miðað við það sem á undan er gengið, þvílík törn!!
Við vorum nokkrar bekkjarsystur upp í skóla til fjögur í nótt að lesa undir þetta blessaða próf, en það borgaði sig held ég bara:) Það var líka svo gaman hjá okkur allar komnar með svefngalsa og létt pirraðar, eða allavega sumar;) en það má alveg!! Stúdentaráð labbaði um skólann og gaf öllum sem voru að lesa bjór, það var nú ekki verra;)
Jæja ætla að reyna að fá mér smá kríu og svo kannski að þrífa heimilið ekki veitir af...
Sjáumst svo bara hressar og kátar annað kvöld og fögnum því að vera búnar í prófum. Ætlið þið ekki allar að koma???
knús og kveðja María

1 Comments:
At 12:19 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég er svo ánægð að þessi blessuðu próf séu búin. Þannig að stelpur við fögnum vel og mikið á morgun. Hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja Elva
Skrifa ummæli
<< Home