Minnistöflur
Jæja nú ætla ég að láta verða að því að blogga þó svo ég hafi ekkert merkilegt að segja og orðin frekar andlaus eftir að hafa lesið íslensku greinar í nokkra tíma. Eina sem þær gera fyrir mig er að ég verð verri í stafsetningu eftir að hafa lesið grein Halldórs Laxnes þar sem ég er með svo gott sjónminni þrátt fyrir að ég sé ekki með neitt minni. Sem minnir mig á það að ég ætlaði að minna ykkur á að taka minnistöflur fyrir prófin "the Memory pills. Í allan vetur hef ég gleymt að taka þessar minnistöflur og þá er nú mikið sagt. Ég hef janvel munað eftir þeim og sett þær í vasann og ákeðið að taka þær í skólanum en gleymt því. En svo hafa þær hlaðist upp þar og svo þegar ég hef fundið fyrir þeim í vasanum þá hef ég bara horft á þær og hugsað: Hvaða andskotans töflur eru þetta og hent þeim. Joke, en næstum því svona. En allavega þá ætla ég umfram allt að reyna að muna eftir þeim, svo ég geti munað allt það efni sem ég er að fara að frumlesa bæði fyrir þroskann og innganginn.
Nóg af bulli í bili bæjó Nina
P.s. Gangi ykkur öllum vel á prófunum. :)
Nóg af bulli í bili bæjó Nina
P.s. Gangi ykkur öllum vel á prófunum. :)

1 Comments:
At 11:12 e.h.,
Nafnlaus said…
Góður Nína en gangi ykkur öllum vel á morgun
kveðja Elva Dröfn
Skrifa ummæli
<< Home