Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

12.22.2004

Kápuþjófur í KHÍ

Sælar stelpur og takk fyrir síðast harðsperrurnar eftir allan dansinn eru rétt að hverfa, maður leit nú út eins og belja á svelli miðað við hana Hörpu dancing queen. Litlu munaði þó að kvöldið hefði frekar slæman endir fyrir mig þar sem ég var á leið heim í alltof stóum karlmannsjakka og með eitt tár í augunum yfir því að vera búin að tapa kápunni minni. Málið var semsagt að ég hafði sett kápuna mína og skinnið sem ég var með um hálsinn í fatahengið og svo þegar við Elín hugðum á heimferð og fórum að sækja kápurnar okkar var mín horfin. Við leituðum um allt fatahengi með dyggri aðstoð Maríu systur hennar Elínar en eftir mikla leit ákváðum við að gefast upp og tókum jakka úr óskilamunum sem voru í ruslapokum undir borðinu og ég skildi koma aftur daginn eftir skila ljótu druslunni sem ég var komin í og athuga hvort kápan mín hefði fundist. Þegar ég er að labba upp tröppurnar lít ég til baka og sé þá strák standa við fatahengið (og þar sem ég tek eftir öllu) sé ég eitthvað hvítt(skinnið) ég fer til hans og þá heldur hann á kápunni minni. Ég spyr hann hvað í ósköpunum hann sé að gera með kápuna mína hann segist vera að geyma hana fyrir stelpu sem er í fatahenginu að gramsa í fötum þar og hafði verið þar þegar við vorum að leita að kápunni minni og hafði rifið í veskið hennar Maríu. Gellan var að leita sér að drasli til að stela og var komin með kápuna mína og annan jakka og var að skima eftir fleiru. Þvílík ósvífni að vera búin að stela kápunni minni og leita svo bara af meiru á meðan við erum þarna ég að lýsa kápunni fyrir stelpunum. Henni var hennt út vonandi var hún ekki í jakka og er núna heima hjá sér með lungnabólgu og ef hún er í skólanum vonandi féll hún í prófunum. Við fórum svo og fengum okkur pylsu og ég röflaði um það allan tíman hvað ég var fegin að hafa fundið kápuna aftur. Ég á pantað far vestur á aðfangadag svo endilega biðjið veðurguðina um gott veður. Gleðileg Jól og hafið það gott og það þarf örugglega ekki að kíkja á Ugluna klukkan sex á aðfangadag.
Kv. Bryndís

1 Comments:

  • At 4:01 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ, mikið var nú gott að þetta fór svona vel með kápuna, það er til svo ómerkilegt fólk:(
    Ég ætla að reyna að koma við hjá þér áður en þú ferð vestur til að ná í jakkan minn og peysuna...
    knús María.

     

Skrifa ummæli

<< Home