Andvarp og geisp
Nú fara prófin að byrja og ég þarf að drífa mig að fara að læra undir þau. Ekki gaman að neyðast til að frumlesa allt helvítis efnið á nokkrum dögum en það er víst of seint að ætla að breyta því héðan í frá!!Ég þarf líka að kaupa jólagjafir fyrir liðið úti í ameríkunni, var búin að steingleyma því. Hvað er hægt að gefa könum í gjöf nú til dags? Ég var að spá í að senda þeim nýjan forseta, já eða bara smá part af heila, þarf ekkert að vera neitt flottur heili, bara einhver sem er ekki stríðsóður, ekki geðveikur og ekki heimskur... það eru allir heilar betri heldur en heilinn hans Bush!!Það kom ónefnd manneskja til mín um daginn og krafðist þess að við myndum raka okkur að neðan, ég átti að láta alla vita, bæði karlmenn og konur.........ástæðan, já við viljum ekki hafa neinn helvítis bush þarna niðri hehehe.
Kveðjur Elín (Lína Fína, systir Nínu Fínu)
Hittumst hressar og "bush"lausar á mánudaginn, eigiði góða helgi
Kveðjur Elín (Lína Fína, systir Nínu Fínu)
Hittumst hressar og "bush"lausar á mánudaginn, eigiði góða helgi

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home