Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

7.26.2005

Sumarfrí

Sælar skvísur. Mig langar bara að segja ykkur svolítið frá fríinu mínu en það hefur verið frábært fjör og en meira fjör fram undan þar sem ég er bara heima í fjóra daga og er svo aftur farin í útilegu. Ég byrjaði á því að fara á Hólmavík (1 nótt) og svo í trékyllisvík (1 nótt) ( sem er á Ströndum), þaðan fór ég svo á Akureyri (2 nætur). Á þessum stöðum fékk ég frábært veður og naut mín í faðmi fjölskyldunar. Svo var haldið í bæinn vegna þess að veðurhorfurnar voru betri þar og sofin 1 nótt heima en farið strax af stað daginn eftir í bústað á suðurlandi (3 nætur) þar var spánar veður og huguleg heit. Þá var pakkað aftur í bílin og lagt af stað yfir sprengisand og gist 1 nótt í Nýjadal. Daginn eftir var svo sprengisandur kláraður og gist í tvær nætur í Kjarnaskógi ásamt því að fnjóskadalur var skoðaður. Daginn eftir það var farið á Húsavík og þaðan í Ásbyrgi og gist þar eina nótt. Þá fékk ég rigningu en það stopaði mig ekki í því að fara í Vesturdal að skoða hljóðukletta og allt það fallega sem að Vesturdalur hefur að geyma og renna svo upp að Dettifossi. Síðan var komið við á Mývatni og keyrt svo til Akureyrar og snæddur kvöldmatur og keyrt svo af stað í bæinn og komið þangað kl 3 um nóttina. Þetta gera 2520 km eða næstum því það sama og að fara tvisvar sinnum hringveginn. Nú er verið að skoða ferðaáætlun fyrir næstu helgi og ég held að við ættlum að reyna að fara bara eitthvað stutt eða ætti ég að fara á Akureyri 3 helgina í röð því að ég er svo skotinn í Eyjafirðinum. Jæja nóg af mér í bili og endilega skrifið einhverjar ferðasögur hér. Kveðja ferðargormurinn Guðný

Saumó frestað!!!!!

kveðjur Elín.......... sem enginn vill heimsækja ;o(

7.22.2005

Ok þá er það ákveðið!

Saumaklúbbur fyrrum fyrsta A verður þá haldinn heima hjá mér á miðvikudagskvöldið. Allar gellurnar úr bekknum eru velkomnar. Það er fínt að mæta svona uppúr átta er það ekki? Flestum leist vel á þá hugmynd að vera þrjár og þrjár saman í hóp með naslið, þannig að þá er bara spurningin hver ætlar að vera með mér í hóp??? ;o)
Ég var að spá í að við reynum að hringja í sumar sem kíkja sjaldan hér inn á netið, ég skal hringja í Bryndísi, Sunnu, Sólrúnu og Jónínu..... og get prufað -nýjurnar og Nínu og Maríu, en þær eru nú oft hérna inná hvort sem er og sjá þetta ábyggilega
þær sem að vilja vera með, endilega skrifa sig í kommentin og einnig skrifa í hverjar þær ætla að hringja, ef einhvern
kv. Elín
P.s. einnig skrifa hér niðri hver vill vera hópafélaginn minn í 3ja manna hópunum

7.20.2005

Skvísu-Saumó!!

Jæja skvísur, þá er víst komið að því að ég haldi fyrsta saumaklúbbinn. Hvernig lýst ykkur á að hafa hann á næsta miðvikudag? eða þá á fimmtudaginn 4. ágúst?? segið mér hvort hentar betur.
Einnig, ætluðum við að hafa þetta þannig að ég geri bara allt og svo sú næsta í næsta saumó, eða eiga allir að koma með eitthvað smá. Ég man þetta ekki alveg, held samt að Nína og María hafi verið komnar með niðurstöðu í því.
Jæja notið kommentin til að tjá ykkur, ég kíki aftur hér á morgun eða hinn og sé hvað þið eruð að spjalla
kv. Elín

7.19.2005

Árný

takk fyrir frábært kvöld,
þetta var ákkúrat það sem ég þurfti smá minningu um það að við værum bekkjarsystur....
sakna ykkar hinna.. það er víst fljótlega saumó hjá henni Elínu,
hér með er skorað á hana að auglýsa hann... kram og knús Árný

7.16.2005

A spani er gott ad djamma og djusa:):):):)

hallo allir eg komst herna i tolvu her a mallorca og akvad adeins ad rita nokkrar linur. Tetta er geggjad herna nuna er komid midnaetti og tad er 31 stiga hiti bara geggajd. Eg brann fyrsta daginn minn ekki gaman tipyskt eg hef aldrei brunnid a aevinni minni tannig ad tetta var frekar leidinlegt fyri mig. Eg hugsadi rosalega mikid til ykkar i gaer eg hefdi alveg verid til i ad vera i grillinu en vid verdum bara ad grilla tega skolinn byrjar aftur, er tad ekki:)? Jaeja best ad fara drifa sig i ad fa ser meiri bjor bid ad heilsa ykkur dullurnar minar
Kvedja fra Spani
Elva Drofn

7.13.2005

Grillpartý

Hæ hæ gellur! Nú er komið að því að hittast eftir langþráða bið og er komin endanleg niðurstaða í stöðunni. Ég var eitthvað að vandræðast hvort við ættum að halda grillpartýið þar sem svo margar í bekknum eru í útlöndum að sleikja sólina en við hinar sem erum á klakanum viljum endilega láta verða af þessu og verður mæting heima hjá mér í Kópavoginum kl: 18:00. Hver og ein kemur bara með sitt á grillið og til að drekka en ég og María komum með allt meðlætið fyrir allar, þær sem vilja koma með snakk eða eftirrétt mega það ef þær endilega vilja :)
Hugmyndin var svo að grilla og tjútta saman og svo geta makarnir kíkt um kvöldið ef þeir vilja. Vonandi líst ykkur vel á þetta sjáumst hressar og kátar á Laugardagskvöldið í banastuði. Bæjó Nína.

7.12.2005

Hilsen fra Danmark

Hæhæ elskurnar minar

Tid afsakid stafsetninguna er i tolvu med donsku lyklabordi!!!

Mig langadi nu bara ad senda ykkur sma kvedju hedan fra danmorku eg er buin ad vera her i 2 vikur i sol og 29 stiga hita nokkud satt vid lifid og bjorinn:) enn tvi midur mun eg missa af grillveislunni hja henni Ninu. Tvi sendi eg ykkur studkvedju og tid verdid ad lofa ad taka tvofallt a tvi i djamminu tvi tid verdid ad djamma fyrir mig lika:) er taggi annars???

stor koss til ykkar allra pjasan :)

7.11.2005

Féttir frá kópavogi

Sælar skvísur. Þá er kallinn komin í frí og stefnan tekin á útileigu. Garðurinn er fullur af köllum að mála húsið svo það er eins gott að yfir gefa staðinn ásamt því að það á að fara að leita að sumrinu. Hlakka til að hitta ykkur allar. Kveðja Guðný.

7.06.2005

Hjónastuð



Ég hef undanfarna daga verið að púsla saman myndaalbúmi á netinu og hér er
linkur á það. Brúðkaupsdagurinn var frábær og myndirnar segja betur frá en ég.....þær eru allavega nógu margar. Fínt fyrir ykkur sem eruð að vinna á nóttunni að dunda ykkur við að skoða þetta.