Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

7.13.2005

Grillpartý

Hæ hæ gellur! Nú er komið að því að hittast eftir langþráða bið og er komin endanleg niðurstaða í stöðunni. Ég var eitthvað að vandræðast hvort við ættum að halda grillpartýið þar sem svo margar í bekknum eru í útlöndum að sleikja sólina en við hinar sem erum á klakanum viljum endilega láta verða af þessu og verður mæting heima hjá mér í Kópavoginum kl: 18:00. Hver og ein kemur bara með sitt á grillið og til að drekka en ég og María komum með allt meðlætið fyrir allar, þær sem vilja koma með snakk eða eftirrétt mega það ef þær endilega vilja :)
Hugmyndin var svo að grilla og tjútta saman og svo geta makarnir kíkt um kvöldið ef þeir vilja. Vonandi líst ykkur vel á þetta sjáumst hressar og kátar á Laugardagskvöldið í banastuði. Bæjó Nína.

13 Comments:

  • At 7:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    sjáumst þá

     
  • At 9:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hlakka til að hitta ykkur :D

     
  • At 12:36 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er alveg komin með fiðring í magan af spenningi :) sjáumst þar

     
  • At 1:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já þetta verður BARA gaman:)Hlakka svo til að hitta ykkur allar!!

     
  • At 8:08 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er ekki ennþá búin að ákveða hvort ég eigi að koma suður eða ekki... Mig langar svo en það kostar svooo marga peninga...

     
  • At 10:18 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ææii Vilborg plíííís koddu þú átt það alveg skilið sko, hefur gott af því að komast í smá "frí" :) sleppir bara tónleikunum þá kostar þetta ekkert svo mikið :D

     
  • At 1:30 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já Villa þú verður að koma... það er alveg möst að þú komir!!! En hvaða tónleika ertu að fara á..?? Ekki þó Snoop Dog?? ;)

     
  • At 9:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    en hvað með klæðnað?!?!? lopapeysa í útigrill og stemmningu eða borðum við inni og farið í bæinn jafnvel og þá "bæjardjammföt" ....ef þið skiljið mig

     
  • At 12:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    er það ekki bara svona casual fínt, ég var allavega að kaupa mér nýtt pils sem á að prufa

     
  • At 1:09 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Held að stefnan sé tekin á bæinn sko eftir grillið!!!
    Ég ætla allavegana að koma í nýju fínu gullskónum mínum;) tek kannski gúmmískóna með til að grilla í... :)

     
  • At 1:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hlakka til að hitta ykkur virðist einmitt vera veður fyrir gúmmítútturnar á meðan er verið að grilla. spurnign um regnhlifar líka???

     
  • At 1:43 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já nákvæmlega það er engin smá rigning...Bara regnföt og gúmmítúttur engin spurning;)
    Hlakka til að hitta ykkur í kvöld krúttin mín!!

     
  • At 12:54 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    takk fyrir frábært kvöld, þetta var ákkúrat það sem ég þurfti smá minningu um það að við værum bekkjarsystur.... sakna ykkar hinna.. það er víst fljótlega saumó hjá henni Elínu, hér með er skorað á hana að auglýsa hann... kram og knús Árný

     

Skrifa ummæli

<< Home