Skvísu-Saumó!!
Jæja skvísur, þá er víst komið að því að ég haldi fyrsta saumaklúbbinn. Hvernig lýst ykkur á að hafa hann á næsta miðvikudag? eða þá á fimmtudaginn 4. ágúst?? segið mér hvort hentar betur.
Einnig, ætluðum við að hafa þetta þannig að ég geri bara allt og svo sú næsta í næsta saumó, eða eiga allir að koma með eitthvað smá. Ég man þetta ekki alveg, held samt að Nína og María hafi verið komnar með niðurstöðu í því.
Jæja notið kommentin til að tjá ykkur, ég kíki aftur hér á morgun eða hinn og sé hvað þið eruð að spjalla
kv. Elín
Einnig, ætluðum við að hafa þetta þannig að ég geri bara allt og svo sú næsta í næsta saumó, eða eiga allir að koma með eitthvað smá. Ég man þetta ekki alveg, held samt að Nína og María hafi verið komnar með niðurstöðu í því.
Jæja notið kommentin til að tjá ykkur, ég kíki aftur hér á morgun eða hinn og sé hvað þið eruð að spjalla
kv. Elín

8 Comments:
At 4:00 e.h.,
Nafnlaus said…
Mer list vel a tetta, eg tarf bara ad kikja a vaktarplanid mitt tegar eg kem heim og athuga hvort ad eg komist ekki:D
At 4:45 e.h.,
Nafnlaus said…
mér líst rosa vel á 4 ágúst :) þá verð ég nefnilega komin frá Eyjum ;)
en annars veit ekki með veitingarnar...ég var nú að stinga upp á því að það væri líka hægt að hafa svona 3ja manna hópa þannig að ef að ég, Guðbjörg og Sigrún værum t.d. saman í hóp að þá erum við með veitingarnar þegar einhver af okkur á að halda, skiljiði mig? þegar Guðbjörg á að hafa heima hjá sér þá komum við Sigrún með veitingar ásamt Guðbjörgu :)
allavega ....bara svona hugmynd sko
kv Harpa
At 5:15 e.h.,
Nafnlaus said…
Veit ekki hvort ég kemst, verð líklega í ferðalagi... en líst vel á þessa hugmynd sem Harpa er með, 3ja manna hópana:)
At 5:37 e.h.,
Nafnlaus said…
ég er til í allt :)
At 10:50 f.h.,
Nafnlaus said…
ég verð pottþétt heima þann 3 ágúst en verð farinn á fimmtudeginum með kallinn í útilegu verð víst að viðra hann HA HA, ég er til í allt hvað varðar meðlæti. Ég skal hafa fyrsta saumaklúbbinn þegar skólinn er byrjaður..... kveðja Árný
At 7:53 e.h.,
... said…
sælar skvíses, F bekkjar vinurinn Jóhann hér.
Fannst bara skondin þessi hugmynd með hópana...hélt að allir væru komnir með ógeð af hvers kyns hópavinnu eftir veturinn...skemmtið ykkur annars vel
At 10:13 e.h.,
Nafnlaus said…
Hahaha.. góður Jói:)
Við fáum bara ekki leið á hvor annarri það er nú bara þannig!!
At 9:46 e.h.,
Nafnlaus said…
heyrðu ég er í algjöru rugli, er að vinna þann 4. águst þannig að þetta verður bara núna á miðvikudagskveldið.........blogga um það á morgun
kv. Elín
Skrifa ummæli
<< Home