Sumarfrí
Sælar skvísur. Mig langar bara að segja ykkur svolítið frá fríinu mínu en það hefur verið frábært fjör og en meira fjör fram undan þar sem ég er bara heima í fjóra daga og er svo aftur farin í útilegu. Ég byrjaði á því að fara á Hólmavík (1 nótt) og svo í trékyllisvík (1 nótt) ( sem er á Ströndum), þaðan fór ég svo á Akureyri (2 nætur). Á þessum stöðum fékk ég frábært veður og naut mín í faðmi fjölskyldunar. Svo var haldið í bæinn vegna þess að veðurhorfurnar voru betri þar og sofin 1 nótt heima en farið strax af stað daginn eftir í bústað á suðurlandi (3 nætur) þar var spánar veður og huguleg heit. Þá var pakkað aftur í bílin og lagt af stað yfir sprengisand og gist 1 nótt í Nýjadal. Daginn eftir var svo sprengisandur kláraður og gist í tvær nætur í Kjarnaskógi ásamt því að fnjóskadalur var skoðaður. Daginn eftir það var farið á Húsavík og þaðan í Ásbyrgi og gist þar eina nótt. Þá fékk ég rigningu en það stopaði mig ekki í því að fara í Vesturdal að skoða hljóðukletta og allt það fallega sem að Vesturdalur hefur að geyma og renna svo upp að Dettifossi. Síðan var komið við á Mývatni og keyrt svo til Akureyrar og snæddur kvöldmatur og keyrt svo af stað í bæinn og komið þangað kl 3 um nóttina. Þetta gera 2520 km eða næstum því það sama og að fara tvisvar sinnum hringveginn. Nú er verið að skoða ferðaáætlun fyrir næstu helgi og ég held að við ættlum að reyna að fara bara eitthvað stutt eða ætti ég að fara á Akureyri 3 helgina í röð því að ég er svo skotinn í Eyjafirðinum. Jæja nóg af mér í bili og endilega skrifið einhverjar ferðasögur hér. Kveðja ferðargormurinn Guðný

2 Comments:
At 2:45 e.h.,
Nafnlaus said…
Vá ... þú greinilega nýtir sumarfríið til hins ítrasta. Gaman að heyra í þér :)
At 10:56 f.h.,
Nafnlaus said…
Váá það er stuð hjá ykkur!!
Við fjölskyldan erum einmitt að fara hringinn í kringum landið okkar fallega núna næstu 10 dagana verðum fyrstu næturnar á Apavatni en síðustu á Súðavík :)
Skrifa ummæli
<< Home