Fyrsti A er bekkur grunnskólakennaranema við KHÍ. Hér munum við segja frá afrekum okkar á hinum ýmsu sviðum sem og miðla efni á milli okkar.
Við byrjuðum á því í gær að skrá afrekssögu okkar. Laugarvatnsferð var farin og vorum við ellefu úr bekknum sem sáu um að halda fjörinu uppi fyrir restina af nemendum KHÍ. Við sem fórum í ferðina voru, Harpa, Elva, Nína, María, Sigrún, Kristín, Pálína, Vilborg, Bryndís, Eva og Elín. Þar sem við erum testasteron fríar fengum við einn af drengjum BN til að sjá um þau hormon í ferðinni og var Steinþór því tekinn inn í hópinn sem liðsmaður A liðsins.
Ferðin hófst með því að klæða sig upp í "Lite" bolina en svona A lið er auðvitað sponserað af Vífilfell. Drykkjan hófst strax og hermannaböndin voru sett upp. Það mátti strax sjá að A liðið bar af öðrum nemum skólans fyrir einstaka smekkvísi í vali á outfitti! Sponseruðu bolirnir okkar þóttu svo fagrir að fagurgalar skólans kepptust um að fá að kaupa slíka boli, eftirsóknin í að komast í A-liðið er nátturulega engu lagi lík.
Saman í rútu fóru vinabekkirnir A og F og C bekkurinn fylgdi með. Gítarleikur ómaði við fagran söng A bekkjarins og bakradda frá C og F bekk. Við fengum auðvitað strax boð um að ganga í skólakórinn og erum við með umboðsmann okkar í þeim samningsgerðum. Þvagblöðrur nema í F og C þoldi ekki álagið að innbyrða bjórinn þannig að það var strax pissustopp í Mosó. Og þar sem ein beljan mígur, míga þær allar þannig að við A skvísur skvettum úr skvísunni hinum til samlætis. Næsta pissustopp var á Þingvöllum og þaðan lá leiðin beint á Laugarvatn.
Í íþróttahúsinu biðu okkar edrú íþróttakempur KHÍ og gerðu dauðaleit af áfengi og strípuðu víst nokkra í leit af áfengi, þeir drekka víst ekki í íþróttadeild skólans. Í íþróttahúsinu var farið í leiki þar sem hluti A liðsins ( Pálína, Mæja, Nína, Kristín og Harpa) héldu uppi heiðri bekkjarins. Var samin vísa í einum leiknum sem hljóðaði svo(sungið við lagið "Það var einu sinni kelling"):
Það var einu sinni stelpa,
og harpa sagði Ha?
Mæja pæja segir ha,ha,ha,ha,ha
og stína hún segir muhahahahaha
og hún var svo rosa rosalega sæt.
Þetta þótti víst ekki bera þann blús brag sem vísan átti að bera, en keppnisskapið var bara svo mikið að við gleymdum að hlusta á hvað átti að gera!!
Eftir íþróttahúsið var farið í einn leiðinlegasta ratleik sögunnar, þar sem Harpa sýndi leiðtogahæfileika sína og ratvísi Sigrúnar um Laugarvatn kom sér vel. Allt gekk eins og í sögu þar til Vilborg nánast skrúfaði póstkassa Laugvetninga í sundur til að ná einni vísbendingunni upp úr. Þá var ákveðið að gefa skít í leikinn og ráðast í pulsuát.
Eftir mikið svínainnyflaát var farið í brekkusöng (í minnstu brekku sem bekkurinn hefur séð). A-liðið var mjög ánægt með undirspilið og þóttu gítar(leikar)arnir hljóma mjög vel.
Loks var farið með rútunni í Úthlíð, þar sem sagan frá íþróttahúsinu endurtók sig....við vorum strípaðar í leit af bjór. Hljómsveitin Smack lék fyrir dansiballinu og munum við ekkert eftir því hvort eitthvað hafi verið varið í þá hljómsveit. A bekkurinn þótti standa sig með mestu prýði á dansgólfinu enda limaliprar stúlkur á ferð. Eftir að limirnir hefðu leikið um gólfið í Úthlíð var haldið heim á leið og gætt sér á "Nínu-kremjum", sem eru einar af albestu samlokum sem liðsmenn hafa smakkað. Nína setur uppskriftina seinna inn á netið. Aldrei hafði nokkur rúta verið eins lengi á leið frá Laugarvatni til Reykjavíkur og halda liðsmenn A bekkjarins að brögð hafi verið í tafli til að reyna að láta okkur drekka meiri bjór. Allir A liðsmenn héldu velli í ferðinni og ekki hefur heyrst um nein slys á fólki. Þangað til næst.....bless.