Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

9.22.2004

Niðurgangspest!

Jæja...það er verið að kvarta yfir bloggleysi á þessum bæ. Þannig að nú skal tekið til hendinni. Það sem er að frétta af vígstöðvum a-bekkjarins er að hörku niðurgangspest herjar á liðsmenn. Baldi Sig er að fara með okkur með verkefnum í Mál og Rit. Ritgerðasmíði er að valda truflunum í görnum, því það er verið að stressa okkur fram úr hófi með tilvísunum, heimildum og rannsóknaspurningum.
Að öðru er það helst að forsíðufyrirsætan er blikkuð á göngum skólans og heldur því fram að hún hafi einhver ítök í stúdentaráði skólans.
Næst á dagskrá er að fara skipuleggja næsta djamm. Hvort sem það verður, kvöldverður á rómantískum stað, keiluferð eða bekkjarpartý er óráðið. Hinsvegar er ljóst að upplýsingafulltrúi A-bekkjarins hún María er búin að tilkynna okkur það að við erum að fara að taka þátt í fótboltamóti fyrir hönd bekkjarins. Þær sem hafa verið tilnefndar í liðið eru: Harpa, Guðbjörg, Ásta og Pálína. Hinsvegar er eitthvað verið að ræða um að reyna að fá Steinþór með okkur í lið...en það eru skiptar skoðanir um það hvort við ættum að fá lánaðann liðsmann eður ei. Fótboltamótið verður nk.föstudag og eru klappstýrurnar komnar í gírinn.
Kv frá höfuðstöðvunum, Pálína

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home