Fílíngur!!!
Já nú er sko allt að gerast. Leiðarbókarskil eru á morgun og Pálína stupido er búin að krafsa sig fram úr verkefninu.
Sitjum hér tvær, Villa og Pálína í fílíng, einar í Kennaraháskólanum, kl að ganga hálf 12 en það er ekkert fararsnið á okkur, við erum komnar með Robbie Williams á fóninn í tölvunni og farnar að svífa um hljóða lessalinn. Ef það væri alltaf svona gaman í skólanum....?
Við erum alvarlega að íhuga að fara ekkert heim...við getum sofið á bekkjunum frammi og mætt fyrstar í morgunmat í mötuneytið! Nú svo sé ekki talað um það að við losnum við biðröð á klósettið!
Það var útihlaup í Árbænum áðan, við Harpa erum komnar með svaka hugmynd. Skokkklúbbur, a-bekkjarins. Villa segist reyndar ekki hlaupa eða skokka nema að vera elt, en við fundum ráð á því. Hún verður bara alltaf fyrst þá eltum við hana bara. Svo geta þær sem vilja ekki hlaupa labbað hringinn. Það er nauðsynlegt að anda að sér frísku lofti frá bókum og óargadýrum á heimilinu. Í kvöld var grenjandi rigningu en það var bara betra...!
Jæja hittumst hressar á morgun...!
Kv Pálína

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home