Gellurnar í Þriðja A

3.A bekkur Grunnskólaskor KHÍ

9.17.2004

Skólablaðið

Góðan daginn elskurnar:)

Jæja skólablaðið komið út, voða spenna yfir því í skólanum. Við stöllurnar ég, Nína og Elva vorum upp í skóla að læra og kíktum spenntar í skólablaðið því að við vorum búnar að frétta að það ætti að koma bekkjarmynd af 1.a síðan úr Laugarvatnsferðinni frægu... en nei ekki var hún þar:( og við svaka móðgaðar.. ekki einu sinni minnst á okkur, við sem vorum svo sætar, hressar og skemmtilegar í ferðinni ;) En við kættumst voða fljótt þegar við uppgötvuðum að það var mynd af Pálínu vinkonu okkar á FORSÍÐUNNI !!! með formanninum...að vísu bara lítil mynd en það er sama..gaman að þessu og vildi bara deila þessu með ykkur kæru bekkjarsystur!!
Sjáumst hressar og kátar á mánudaginn, og góða helgi.
kv María.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home